Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2002, Blaðsíða 32
iiJli juuj £i JjJjjjJj
j JjjjjjjJJíjJíJí]
^SUZUKI
FOSTUDAGUR 31. MAI 2002
Alrisinn Alcoa
Bandaríski álrisinn Alcoa, sem
hugsanlega tekur við hlutverki Norsk
Hydro um byggingu álvers í Reyðar-
firði, er leiðandi fyrirtæki í áliðnaði á
heimsvísu. Alcoa rekur um 30 ál-
bræðslur víða um heim. Starfsmenn
eru um 129.000 i yfir 350 fyrirtækjum
í 35 löndum.
Ekki eru allir jafn hrifnir af álvers-
áformum í Reyðarfirði en í þeim hópi
er Árni Finnsson, formaður Náttúru-
vemdarsamtaka íslands, sem segir:
„Við munum gera allt sem i okkar
valdi stendur til að sannfæra Alcoa
um að þátttaka fyrirtækisins í bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar geti ekki
samrýmst umhverfisstefhu þess.“
Sjá fréttaljós á bls. 8 og 9
Tímamótaviðtal:
Barátta Odds
Oddur Helgi HaUdórsson, stjóm-
málaleiðtogi á Akureyri, segir í
helgarviðtali DV á morgun frá bar-
áttu sinni við geðsjúkdóm. Hann
kemur til dyranna eins og hann er
klæddur og tilgangurinn er að eyða
fordómum landsmanna gagnvart
andlegum sjúkdómum. Eftir þvl
sem DV kemst næst er þetta í fyrsta
skipti sem leiðtogi stjómmálahreyf-
ingar hér á landi ræðir svo við-
kvæmt mál og viðurkennir andlega
erfiðleika.
Oddur vann glæstan kosningasig-
ur um síðustu helgi sem efsti maður
Lista fólksins á Akureyri. Hann hef-
ur verið umdeildur vegna ýmissa
mála en í viðtalinu segist leiðtoginn
líta á það sem hrðs að vera kallaður
naivistinn í stjórnmálunum. -BÞ
SÓLTÉR
SORTNA!
Færri sækja í nám á hjúkrunarbrautum:
Stefnir
legan
í alvar-
skort
DV-mynd ÓK
Mikil stemning
KA og Þór áttust viö í bæjarslag á
Akureyri í gær. 2112 manns mættu
á Akureyrarvöllinn til að hvetja sína
menn í þessum fyrsta úrvalsdeildar-
leik liöanna í 10 ár. KA haföi betur
og raufþar langa sigurgöngu Þórs í
viöureignum liöanna. Sjá bls. 27
- ef hjúkrunarfræðingum fjölgar ekki
Fyrirsjáanlegur er alvarlegur
skortur á hjúkrimarfræðingum ef
ekki fjölgar á hjúkrunarbrautum
háskólanna í landinu á næstu
árum.
„Undanfarin ár hefur orðið tals-
verð fækkun á umsóknum um
hjúkrun£ufæðinám,“ sagði Herdís
Sveinsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, við
DV. „Hún hefur fallið á nokkrum
árum úr 150-170 nemendum niður
í rétt rúmlega 100. Áður þurfti að
beita fjöldatakmörkunum í hjúkr-
unarfræði bæði hér í Reykjavík og
á ALkureyri. En núna er ekki full-
skipað í öll námspláss. Þetta hefur
alvarlegar afleiðingar í fór með sér
til framtíðar litið.
„Herdís sagði enn fremur að Fé-
lag hjúkrunarfræðinga hefði gert
spá um þörf fyrir fjölda hjúkrunar-
fræðinga til næstu ára vorið 1999.
Spáin hefði verið uppfærð vorið
2001. Með hliðsjón af henni væri
ljóst að til mikilla vandræða
horfði ef ekki yrði aukning á að-
sókn i hjúkrunarnám.
„Við reiknuðum út að þar þyrfti
að koma tölu útskriftaðra hjúkr-
unarfræðinga i um það bil 116 á
ári tO að geta mætt þörfmni. Að
undanfornu hafa útskrifast út báð-
um skólum samtals um 90 hjúkr-
unarfræðingar. Meðalaldur hjúkr-
unarfræðinga fer hækkandi
þannig að eftir 15-20 ár koma til
með að detta út mjög stórir ár-
gangar. Tækifærunum í heilbrigð-
isgeiranum fjölgar stöðugt þannig
að starf hjúkrunarfræðinga er að
breytast mjög. Þeir eru famir að
sækja mjög út á almenna markað-
inn í stað hefðbimdinna starfa
inni á sjúkrahúsunum og heilsu-
gæslu. Það er orðin heilmikil sam-
keppni um vinnuafl hjúkrunar-
fræðinga, sem hefur ekki skilað
sér til unglinga sem fara í fram-
haldsnám. Þeir virðast vera
spenntari fyrir öðrum störfum.
-JSS
DV-MYND SH
Móðuriaus kópur
Pétur Thor frá Reykjavík var á ferðalagi í Vík í gær og gekk þá fram á þennan
móöurlausa kóp í fjörunni og haföi hann greinilega legið þar allnokkra stund.
Fréttaritari DV átti leiö hjá og náöi þessari mynd afPétri og kópnum. Vonandi
kemur móöirin í kvöld aö vitja kópsins.
Stjórnarmaður Sólheima um skýrslu Ríkisendurskoðunar:
Finnst ráðherra fara
4
4
4
fram með algeru offorsi'
„Mér finnst vafasamt hjá Ríkis-
endurskoðun að bera saman ráðstöf-
un fjárframlaga fyrir árin 2000 og
2001 vegna þjón-
ustu við fatlaða
við rekstrarfor-
sendur á árinu
1995 og leggja það
til grundvaUar að
stjómendur Sól-
heima hafi verið
bundnir við for-
sendur i ákvæði
þjónustusamn-
ings þar sem fyr-
ir liggja skýr gögn sem sýna aö
bæði starfsmenn félagsmálaráðu-
neyfisins og ráðherra sjálfur litu
svo á að samningurinn væri ekki
lengur í gildi."
Þetta sagði Sigurbjöm Magnús-
son, stjómarmaður Sólheima, vegna
nýrrar úttektar Ríkisendurskoöun-
ar á rekstri Sólheima í Grímsnesi
Sigurbjórn
Magnússon.
og viðbragða Páls Péturssonar fé-
lagsmálaráðherra við henni.
Sigurbjöm sagði að framkvæmda-
stjóm Sólheima hefði á hverju ári
sent endurskoðaðan reikning til
bæði Ríkisendurskoðunar og félags-
málaráðherra og ekki dregið á
neinn hátt dul á það með hverjum
hætti fjármununum hefði verið ráð-
stafað. Engar athugasemdir hefðu
komið fram frá þessum aðilum
varðandi þá ráðstöfun fyrr en nú.
„Mér finnst ráðherra fara fram
með algeru offorsi þar sem hann ósk-
ar eftir því að stjórn Sólheima viki,“
sagði Sigurbjörn enn fremur. „í
fyrsta lagi hefur hann ekkert með
það aö gera. Fuiltrúaráðið kýs
stjórnina og hún sækir sitt umboð til
þess. Svo fmnst mér að enginn beini
sjónum sínum að eftirlitsskyldu
ráðuneytisins og Ríkisendurskoðun-
ar sem hafa fengið endurskoðaðan
reikning Sólheima á hverju árti.“
Sigurbjöm sagði að öll skýrslan
væri byggð á forsendum samnings
sem Ríkisendurskoðun telji „vafa á“
að sé í gildi. Fyrir lægi sjáifstætt
lögfræðiálit sem Sólheimar hefðu
aflað sér frá Karli Axelssyni hrl.,
þar sem segði ótvírætt að með engu
móti væri hægt að halda því fram
að samningurinn væri í gildi.
„Ég hlýt að gera mjög alvarlegar
athugasemdir viö það að svo víð-
tækar ályktarir séu dregnar á svo
veikum lagalegum grunni. Ekki er
deilt um að þessum peningum sé
varið til annars en staifseminnar á
Sólheimum, sem byggis't á því að
þarna er rekið samfélag með fótluð-
um og ófótluðum einstaklingum
sem byggist á allt annarri hug-
myndafræði en gengur og gerist.
Sólheimar hafa ekki viljað beygja
sig undir miöstýringu úr ráðuneyt-
inu í þessu sambandi og standa fast
á því.
Ráðherra hefur lýst því yfir að
hann muni ekki geta samið við
þessa stjóm. Það er ákaflega mikil
stríðsyfirlýsing. Spumingin er
hvort hann sé að lýsa því yfir að
hann ætli að taka þessa þjónustu af
Sólheimum og flytja hana annað.
Sólheimar líta svo á að þeir séu að
veita ríkinu ákveðna þjónustu og fái
greitt fyrir það ákveðið fjárframlag.
Ég legg áherslu á að menn spari
stóm orðin og geri tilraun til að ná
samkomulagi áður en þeir útiloki
allt slikt með yfirlýsingum. Ekki má
gleymast að þama eiga 40 fatlaðir
einstaklingar og aðstandendur
þeirra hlut að máli. Við höfum talið
aö við værum að vinna þama í
ágætri sátt við ráðuneytið og verja
fjármununum með þeim hætti sem
okkur var heimilt. Við munum
standa fast við þann skiining."
Sjá bls. 6 -JSS
Kjaradómur ákveður launahækkanir:
Laun æðstu manna hækka um 3%
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Kjaradómur hefur ákveðið að
hækka laun aðila sem undir hann
faUa samkvæmt lögum um 3 pró-
sent. Er sá gjömingur í samræmi
við lagaákvæði þar sem fram kem-
ur að Kjaradómur skuli taka tillit
til þróunar kjaramála á vinnu-
markaöi og taka mál til meðferðar
ef orðið hafa verulegar breytingar
á þeim launum í þjóðfélaginu sem
höfð eru til viðmiðunar. Síðasta
ákvörðun Kjaradóms var 29. nóv-
ember 2001 um 3 prósenta hækkun
launa frá 1. janúar 2002 en síðan
hafa „ýmsar breytingar orðið á
launum opinberra starfsmanna
Laun skv. kjaradómi
1.417.628 Forseti íslands
682.185 Forsætisráðherra
620.274 Ráðherrar
433.743 Biskup
344597 Alþingismenn
undanfarin misseri sem ekki eru
komin fram í ákvörðunum Kjar-
dóms“, eins og segir í tilkynningu
frá dómnum.
Eftir hækkunina verða mánað-
arlaun forseta íslands 1.417.628
krónur, laun forsætisráðherra
682.185, og annarra ráðherra
620.274 krónur, hvort tveggja að
meðtöldu þingfararkaupi. Forseti
Hæstaréttar fær 494.117 krónur en
aðrir dómarar 449.144 krónur. Rík-
issaksóknari fær 449.144 krónur,
ríkissáttasemjari og ríkisendur-
skoðandi 429.529 krónur, biskup
íslands 433.743 krónur, héraðs-
dómarar 359.198 krónur, umboðs-
maður bama 357.446 krónur og al-
þingismenn 344.597 krónur í mán-
aðarlaun.
-hlh
CÖöf^D
Sérfraeðingar k 0
í fluguvdð^^ ^
Sportvörugcrðin lif.,
Skipliolt 5. s. 562 «3«3.