Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 DV Fréttir 9 Smábátamenn reiðir þingmönnum og bæjarstjórnarmönnum: Segja neyðarkall sjómanna hunsað DV-MVND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON Frá fundinum Fjölmennt var á aöalfundi Reykjaness, félags smábátaelgenda á Suörnesjum. Alþingismenn og bæjarstjómar- menn voru harðlega gagnrýndir á aðalfundi Reykjaness, félags smá- bátaeigenda á Suðumesjum, vegna lélegra undirtekta við neyðarkalli strandveiðisjómanna þess efnis að loka takmörkuðu veiðisvæði við Faxaflóa fyrir veiðum meö botn- og flotvörpu. Talsmaður félagsins, Jón Steinar Konráðsson, segir að áhersla sé lögð á þá staðreynd að um friðun sé að ræða en svæðið er þekkt hrygning- ar- og uppeldissvæði síldar, ýsu og þorsks en einnig hafi svæðið verið mjög mikilvæg veiðislóð strand- veiðiflotans við Faxaflóa og á Suð- umesjum. Jón Steinar segir að unn- ið hafi verið markvisst að þessu mikilvæga máli síðan í júni en þá var farið af stað með kynningu og undirskriftalista til manna sem tengjast sjávarútvegi og voru við- brögð allra mjög jákvæð enda feng- ust 216 undirskriftir. „Það liggur í augiun uppi að veið- ar með nokkur þúsund hestafla vél- um og 3-5 þúsund kílóa hlerum eiga ekki mikla samleið með línu og netaveiðum auk þess sem stórir tog- arar geta farið hvert sem er en við getum ekki farið neitt annað. Þegar togararnir em búnir að fara um svæðið fæst ekki bein úr sjó í marga daga á eftir,“ sagði Jón Steinar. Málið fékk hins vegar dræmar und- irtektir hjá bæjarstjómar- og al- þingismönnum því einungis 2 al- þingismenn svöruðu neyðarkallinu og bæjarstjórinn í Sandgerði tók strax undir kröfumar, aörir sýndu lítil viðbrögð. Málið er nú komið í hendur sjávarútvegsráðherra og mun væntanlega fá umsögn Hafró og fleiri aðila og sagði Jón Steinar að þeir væru nokkuð bjartsýnir á framhaldið. Fram kom á fundinum að við Vestfirði og Húnaflóa er mikil fiskgengd á grunnslóð og voru menn sammála um að aðal- ástæðan væri sú að togveiðar eru bannaðar fyrir innan 12 sjómílur. Eins væri í Færeyjum, þar eru all- ar togveiðar bannaðar á grunn- slóð. Á fundinum voru alþingis- mennirnir Hjálmar Árnason og Sigríður Jóhannesdóttir og tóku þau bæði undir sjónarmið smá- bátamanna og nauðsyn friðunar og að viðhalda öflugu lífi í útgerð smábáta. Jóhann Geirdal var eini sveitarstjórnarmaðurinn og taldi hann augljóst að allir gætu staðið saman að tillögum um verndun fiska og sjávarbotns. -ÞGK Kolkuós: Byggja upp á fornri frægð Uppi em áform um að endumýja og vernda hús í Kolkuósi í Skagafirði og koma þar upp menningartengdri ferðaþjónustu. Þetta mál hefur verið í undirbúningi siðasta árið og áhuga- mannafélag verið stofnað. Á dögun- um komu þessir aðilar saman ásamt fulltrúum frá sveitarstjórn Skaga- fjarðar og sveitarstjóra en á fundin- um var meðal annarra frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, sem er í stjórn áhugamanna- félagsins ásamt þeim Skúla Skúla- syni, skólameistara á Hólum, og Val- geiri Þorvaldssyni. „Við ætlum að bjarga þeim menn- ingarsögulegu verðmætum sem þarna em, varðveita þessa fornu frægð; verslunarsöguna, og leggja sérstaka áherslu á hrossaræktina," sagði Valgeir en auk þess að vera helsti verslunarstaður landsins frá alda öðli er frá Kolkuósi eitt frægasta hrossakyn landsins, Kolkuósshross- in. Húsin verða byggð upp og færð til fyrra horfs. Samstarfið nær til Hóla- skóla, Byggðasafns Skagafjarðar, Vesturfarasetursins, Söguseturs ís- lenska hestsins, Fornleifaverndar ís- lands og fleiri en mjög margir aðilar tengjast þessu máli. -ÞÁ .. Hafnarfjörður: Iþróttir barna niðurgreiddar Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Friðrik Ólafsson, formaður ÍH, skrifuðu í gær undir samkomulag um niðurgreiðslur á þátttökugjaldi barna yngri en tíu ára. Innan íþróttabandalags Hafnar- fjarðar starfa nú fjórtán íþróttafélög sem öll bjóöa upp á starfsemi á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Sam- komulagið á að auðvelda forráða- mönnum bama að gera þeim kleift að taka þátt í iþróttastarfi óháð efnahag. -aþ ■ i, DV-MVND E.ÓL Tóku bestu sumarmyndirnar Vinningshafar í sumarmyndakeppni DV og Kodak Express tóku á mótu verölaunum sínum síöastliöinn föstudag. Hjálmar S. Ásbjörnsson vann fyrstu verölaun og fékk Kodak DX- 3600 Easy Share myndavél. Önnur verölaun komu í hlut Kristínar Marísdóttur og fékk hún Kodak Advantix T - 700. ísleifur A. Vignisson hafnaöi í þriöja sæti og tók á móti Kodak Advantix T —750. Þátttaka í sumarmyndakeppninni vargóö sem endranær. Grímsnes- og Grafningshreppur: Um 1.200 frístunda- húsalóðir skipulagðar Orkuveita Reykjavíkur er að leggja heitavatnslögn frá borholu á Öndverðamesi að Ljósavatnsskóla við Sogsvirkjun, en á svæðinu býr allstór hópur fólks. Guðmundur Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, segir að í sveitarfélaginu séu um 1.800 sumarhús, sem margir vilji nú kalla frístundahús, og sífellt aukist þörfin fyrir heitt vatn þar sem fólk sé almennt farið að gera kröfur til þess aö geta keypt heitt og kalt vatn, m.a. vegna heitra potta, auk rafmagns. Nú þegar eru viða heitir pottar við frístundahús, en vatnið í hluta þeirra er hitað með rafmagni. Liðlega 3.000 lóðir eru nú þegar skipulagðar í hreppn- um, eða mun fleiri en í nokkru öðru sveitarfélagi á íslandi, og því tilbúnar um 1.200 lóðir í dag. Sveitarstjóri segir að afgreiðslur bygginganefndar sveitarfélagsins séu milli 60 og 70 á ári vegna frí- stundahúsa, bæði nýbyggingar og breytingar á húsum. Töluvert sé einnig um eigendaskipti og ástæð- ur þess séu fjölmargar. M.a. eldist fólk og geti ekki notið dvalar í hús- unum sem skyldi, og stundum neyðir versnandi fjárhagur fólk til þess aö selja. Hreppurinn undirbýr nú sölu heilsárs íbúðarhúsa í ibúð- arkjama. Sveitarstjóri telur þaö ekki tiltökumál að sækja vihnu þaðan til höfuðborgarsvæðisins, þaöan sé um 10 mín. akstur til Sel- foss og þaðan um 30 mín. akstur að fyrstu umferðarljósum á Vestur- landsvegi. Á síðasta sveitarstjómarfundi Grimsnes- og Grafningshrepps voru lagðir fram reikningar sem sveitarsjóður og skólasjóður Ljósafossskóla hafa þurft að greiða vegna vanefnda eins af fyrrverandi kennurum við Ljósa- fossskóla vegna símanotkunar svo og reikningar vegna þrifa á íbúð- arhúsnæði sem hann bjó í, alls um 100.000 krónur. Sveitarstjórn sam- þykkti að Grímsnes- og Grafnings- hreppur greiddi áfallinn kostnað og jafnframt að fá lögmann sveit- arfélagsins til innheimtu á áfolln- um kostnaði. -GG Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. VW Polo Comfortline, 5 d., bsk., skr. 7/01, ek. 40 þús. Alfa Romeo, 5 d., bsk., skr. 11/98, ek. 34 þús. Verð kr. 890 þus. Nissan Micra GX, 5 d., bsk., skr. 8/01, ek. 8 þús. Verð kr. 1190 pús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---Y/M-----------—■ SUZUKI BÍLAR HF. Skeífunni 17, sími 568-5100 aleno W . 6/98, ek kr. 1030 þús. on 4x4, ús. Ford Focus High-series, bsk., skr. 11/99, ek. 36 þús. Verð kr. 1220 þús. Toyota Yaris, 5 d., bsk., skr. 6/01, ek. 32 þús. Verð 950 þús. Suzuki Grand XL-7, ssk., skr. 5/02, ek. 16 þús. Verð kr. 2990 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk., skr. 6/00, ek. 46 þús. Verð kr. 1380 þús. uzuki Jimny JLX, bsk., skr. 6/00, ek. 41 þús. Verð kr. 1190 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.