Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2002, Qupperneq 32
LJ
L
H
BILAMÁLUN
RÉTTINGAR
o—o \
Smiöjuvegi 48 (Rauö gata) - Kópavogi
Síml 567 0790 • Fax 567 0798
<g>
' Tjónaskoöun
Vönduö vinna - aöeins unnin af fagmönnum
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz(jfi)/
Loforð er loforð
Sími: 533 5040
Heilsugæslumál á Suðurnesjum:
Róðurinn þyng-
ist dag frá degi
- orðið mjög erfitt, segir framkvæmdastjóri
„Þetta gengur með því að vísa
fólki frá. Róðurinn þyngist dag frá
degi og þetta er orðið mjög erfitt,“
sagði Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri Heilsugæslunn-
ar á Suðurnesjum. Tæpur hálfur
mánuður er nú liðinn frá þvi að
heilsugæslulæknar gengu út. Sig-
rún sagði að það sem heföi bjargað
málunum væri einn heilsugæslu-
læknir sem ræki stofu úti 1 bæ og
barnalæknir á staðnum sem hefði
bætt við sig verkefnum.
Skriða féll
á hús á
Almannavarnanefnd Seyðis-
flarðar lét loka veginum sunnan
megin í Seyðisfirði í gær vegna
hættu á skriðufollum. Gríðarleg
úrkoma var á Austurlandi í gær,
ekki sist á Seyðisfirði þar sem
hún mældist 160 mm á sólarhring,
og flæddi vatn víða yfir götur í
bænum þar sem holræsakerfið
haföi ekki undan vatnsflaumnum.
í morgun hafði stytt töluvert upp
og vatn að mestu horfið af götum
og aflétti þá almannavarnanefnd
Seyðisfjarðar hættuástandinu.
Skriða féll á rústir gamals sam-
komuhúss á Vestdalseyri norðan
Seyðisfjarðar, ruddi því um og
nánast fyllti af aur. Skriður gætu
einnig hafa fallið út við Selstaði.
-GG
( (
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 www.securitas.is
112
EINN EINNTVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
ER SJALFSTÆÐIS-
FLOKKURINN
ÞVERSUM?
„Það hefur verið mjög mikið að
gera á daginn,“ sagði hún. „Við
þurftum að fá aðstoð frá Liðsinni,
sem lánar út hjúkrunarfræðinga
um tíma. Álagið er mest á dag-
vinnutímanum, það er frá kl.
8-16.“
Sigrún sagði að engin stórvægileg
neyðartilvik hefðu komið upp á frá
mánaðamótum. Hins vegar yrði æ
erfiðara að manna dagvinnuvaktir
hjúkrunarfræöinganna. Hún kvaðst
vera undrandi á því hve lítið heyrð-
ist frá almenningi.
Aðspurð um hvort Landlæknis-
embættið og heilbrigðisráðuneytið
hefðu fylgst með þróun mála sagði
hún að landlæknir hefði átt fund
með starfsfólki heilsugæslunnar í
síðustu viku. Hins vegar væri það
embætti að fylgjast faglega með mál-
unum. Boltinn væri hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu.
„Við bíðum bara eftir því að heil-
brigðisráðherra láti frá sér heyra
þegar hann kemur frá Kína,“ sagði
Sigrún. -JSS
DV-MYND SIGURÐUR HJÁLMARSSON
Gulrófur teknar upp með nýrri tækni í Mýrdalnum
Félagsbúin í Þórisholti og á Litlu Heiöi í Mýrdal hafa látiö smíöa fyrir sig nýja upptökuvél fýrir gulrófur. Hönnuöur og
smiöur er Smári Tómasson, þúsundþjalasmiöur í Vík. í Þórisholti hafa gulrófur veriö ræktaðar í 30 ár og alltaf veriö
teknar upp meö handafli þar til í haust aö þessi nýja vél var tekin í notkun. Nú þarf aöeins þrjá til fimm menn viö
upptökuna og afköstin eru fjórföld. í dráttarvélinni er Guöni Einarsson, bóndi í Þórisholti, á upptökuvélinni standa
Ólafur Sigursveinsson og Finnbogi Gunnarsson.
Guðjón Guðmundsson um gagnrýni Vilhjálms Egilssonar:
Við gerðum bind
andi samkomulag
- segir að menn verði að halda haus þótt þeir tapi
„Ég hef verið lengi í pólitík og aldrei
verið vændur um óheiðarleika á því
sviði," segir Guðjón Guðmundsson
þingmaður um þá gagnrýni Vilhjálms
Egilssonar flokksbróður hans i nýju
Norðvesturkjördæmi, að Guðjón hafi
setið aðgerðarlaus hjá á meðan utan-
kjörfundaratkvæðum var safnað ólög-
lega í heimabæ hans, Akranesi, fyrir
prófkjör Sjálfstæðismanna um nýliðna
helgi. „Auðvitað er skemmtilegra að
vinna, en menn verða að halda haus
þótt þeir tapi og það finnst mér V0-
hjálmur ekki gera,“ segir Guðjón.
Guðjón segist ekki hafa orðið var
við neitt óeðlilegt í aðdraganda próf-
kjörsins, enda hafi hann verið á ferð
vítt og breitt um kjördæmið. „Ég vissi
þó að menn töldu sér heimilt að fara
með utankjörfundaratkvæðaseðla úr
húsi. Það var misskilningur, en menn
gerðu þetta í góðri trú. Það er augljóst
að þeir hefðu ekki gert þetta nema
Guðjón
Guðmundsson.
Davíð
Oddsson.
þeir stæðu í þeirri meiningu að það
væri heimilt,“ segir Guðjón.
Sem kunnugt er var áttatíu og einn
kjörseðill ógiltur á Akranesi fyrir
helgi vegna þessa. Guðjón segir Vil-
hjálm núna svíkja samkomulag sem
gert var þá. „Það var gert bindandi
samkomulag um að málinu væri lok-
ið, en Vilhjálmur Egilsson hefúr ekki
staðið við það samkomulag."
Guðjón hafnaði í fjórða sæti í próf-
kjörinu. Hann segist eiga eftir að gera
upp við sig hvort hann þiggi sætið,
sem verður væntanlega baráttusæti.
„Ég ræði það við kjömefhdina. Það
liggur ekkert á,“ segir Guðjón.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir í Morgunblaðinu í dag að menn
hefðu átt að geta sagt sér það sjálfir að
utankjörfundaratkvæðagreiðslan á
Akranesi væri brot á reglum.
Hægt er að vísa ágreiningsefhum
um prófkjör til Kjördæmisráðs. Þórólf-
ur Halldórsson, formaður kjördæmis-
ráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvest-
urkjördæmi, segir að tekið hafi verið
á misbrestum fyrir kjördag. Ekkert
hafi komið fram eftir það sem gefi til-
efni til frekari rannsóknar. „Það er
okkar niðurstaða að kosningin hafi
verið fullkomlega eðlileg," segir
Þórólfur. -ÓTG
Sjá umfjöllun á bls. 6
Krónan
styrkist
Islenska krónan hefur styrkst'
nokkuð gagnvart helstu gjaldmiðl-
um viðskiptalandanna síðan í síð- j
ustu viku. Miðgengi dollars var
morgun skráð hjá Seðlabanka ís-
lands á 85,47 krónur en var fyrir t
réttri viku, eða 5. nóvember, skráð |
á 87,12 krónur. Þá var miðgengi
evrunnar skráð í morgun á 86,82.
krónur en var fyrir viku skráð á
87,32 krónur. Breska pundið hefur
þó nokkurn veginn staðið í stað
gagnvart krónu, þó um örlitla j
lækkun sé að ræða. Þannig var
gengi pundsins í morgun skráð á
136,14 krónur en var fyrir vikul
skráð á 136,27 krónur.
-HKr.
Haf narf j arðarvegur:
Sex bíla árekstur
i
Sex bíla árekstur varð á Hafnar- j
fjarðarvegi á móts við Silfurtún um
klukkan níu í morgun. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu var einn flutt-1
ur á slysadeild með sjúkrabU. Hér *
var í raun um að ræða tvo aðskUda
árekstra en á svipuðum slóðum. I
Mikill viðbúnaður var vegna um-l
ferðar sem tepptist á meðan fólk var
á leið tU vinnu. -Ótt i
Aflaverðmæti Júlíusar Geirmundssonar komið yfir milljarð:
Vonandi góð jólagjöf
- segir skipstjórinn sem er á leið í síðasta túr ársins
Frystitogarinn Júlíus Geirmundsson,
flaggskip Hraðfrystihússins-Gunnvarar
hf. í Hnífsdal, er kominn með meira en
eins mUljarðs króna ailaverðmæti þegar
tæpir tveir mánuðir eru eftir af árinu.
Skipið kom tU hafnar á ísafirði i gær eft-
ir stutta útivist með um 275 tonn af unn-
um afurðum að verðmæti um 100 miUj-
ónir króna. Það þýðir um 523 tonn af
fiski upp úr sjó. Afli Júlíusar Geir-
mundssonar á fiskveiðiárinu frá byrjun
september 2001 tU ágústloka 2002 var
rúmlega fimm þúsund tonn og aflaverð-
mætið 1.122 milljónir króna.
Gunnar Amórsson skipstjóri segir að
veiðar hafi gengið vel þetta árið. „Við
eigum nægan kvóta og höfum nánast
verið með tvöfalda áhöfn á skipinu. Við
eigum einn túr eftir og ég vona að við
eigum eftir að slá öU okkar fyrri met ef
vel gengur." Gunnar segir að þeir hafi
að mestu getað einbeitt sér að þorski og
grálúðu. „Við höfum mest verið á Vest-
fjarðamiðum, en farið einn og einn túr
austur fyrir land.“ Skipið heldur aftur
tU veiða á fóstudagskvöld i 36 daga túr
sem standa mun fram undir jól og verð-
ur túrinn því mun lengri en venja er tU.
- Má þá ekki búast við aflameti í
þessum túr?
„Við vonum það að þetta verði góð
jólagjöf," segir Gunnar Amórsson.
-HKr.
Brother PT-2450 merkivélin er komin
Mögnuö vél
sem, meö þinni hjálp,
hefur hlutina í röö
ogreglu.
Snjöll og góö lausn á
óreglunni.
Rafport
Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 ■ www.rafjióFt.is
BYSSUR
OG SKOT
L./
SPORTVÖRUGERÐIN
SKIPHOLT 5 562 8383
!