Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
Tilvera
DV
Jólablað Húsa og hibýla er komið!
-frumlegar, hefðbundnar og mínímalískar jólaskreytingar
DV-MVND GARÐAR HARÐARSON
Sigurvegarinn
Alda Rut Garðarsdóttir tekur viö sig-
urveröiaununum.
Sönglagakeppni:
19 ára stúlka
sigraði
Sönglagakeppni fór fram á veit-
ingahúsinu Kútternum á Stöðvar-
firði á laugardaginn. Flytjendur ell-
efu laga voru þar í úrslitakeppninni
frammi fyrir troðfullum sal af fólki.
Nítján ára stúlka, Alda Rut Garðars-
dóttir, var sigurvegari með laginu
Falling into the same sem hún söng
sjálf. í öðru sæti var lag Þorsteins
Mýrmanns Björnssonar, Undir Stór-
hól, við texta Björns Friðgeirssonar,
og í þriðja sæti var lag Hilmars
Arnar Garðarssonar, Myrkur. Var
það fólkið í salnum sem valdi lögin
sem öll voru eftir Stöðfirðinga. Út-
setningar allra laganna gerði Garð-
ar Harðarson og stjórnaði hann
hljómsveitinn sem lék undir. -GH
Guðrún Eva
og Hrafn í
Faktorshúsi
Lesið verður úr nýút-
komnum bókum í Fakt-
orshúsinu á ísafirði í
dag, 12. desember, kl.
20.30. Guðrún Eva
Mínervudóttir les úr
skáldsögu sinni, Sagan af sjóreknu
píanóunum, og Hrafn Jökulsson úr
ljóðabók Jóns Thoroddsens, Flugur,
sem kom fyrst út áriö 1922.
Sagan af sjóreknu píanóunum er
fiórða skáldsaga Guðrúnar Evu og
Flugur voru fyrsta íslenska bókin sem
einvörðungu hafði að geyma prósaljóð.
V/ Wr ^
v 4* 1*
'■ v ;VrU
7 JOLASKREYTT heimili
MÍNÍMALÍSK JÓL í miðbænum
í JÓLAHÚSINUvið Suðurgötu
Búðaróp - EÐALKAFFIVÉLAR MEÐ KVÖRN
MIÐJARÐARHAFSVEISLA milli jóla og nýórs
S
Jkreytum hús með ...
..gráfíkjum og gaddavír, eplum og ananas
ómissandi leiðarvísir að nútímalegu heimili.
íslensku jólasveinarnir
í Ráðhúsinu:
Forvitnir
pörupiltar
Hinir einu sönnu íslensku jóla-
sveinar koma til
byggða þrettán
dögum fyrir
jól og þá
einn í einu.
Þeir eru forvitnir
pörupiltar sem eiga
dálítið erfitt með að
átta sig í tækni-
væddri nútímaveröld.
Fötin þeirra eru ís-
lensk yst sem innst.
Eins og undanfarin
ár munu jólasveinarn-
ir koma við í Ráð-
húsi Reykjavíkur í
boði Þjóðminjasafns
íslands. Stekkjarstaur
kemur fyrstur,
fimmtudaginn tólfta
desember kl. 10.30 og
svo einn af öðrum klukkan 10.30 á
virkum dögum en kl. 14 um helgar.
Sunnudaginn 15. desember kl. 14
koma Grýla og Leppalúði við í ráð-
húsinu til að líta eftir Þvörusleiki.
Aðgangur að jólasveinadagskránni
er ókeypis og allir eru velkomnir.
Nýlistasafnið
Ásláttar-
konsertskúlptúr
Steve Hubback ásláttarleikari
heldur konsert á sérsmíðuð hljóð-
færi sín á 3. hæð Nýlistasafnsins, kl.
20 á laugardagskvöld. Steve
Hubback hefur haldið tónleika um
alla Evrópu, og víðar, til dæmis í
Suður-Kóreu, og hefur gefið út
fiölda geisladiska, ýmist einn eða
með hljómsveitum.
Tónlistarnálgun hans er fiöl-
breytt en á laugardaginn leikur
hann einn síns liðs á ásláttarskúlp-
túr sem hann hefur smíðað sjálfur.
Steve hefur smíðað ásláttarskúlpt-
úra fyrir fiölmarga listamenn, s.s.
Evelyn Glennie, Paolo Vinaccia og
Paal Nielsen Love.
Steve Hubback hefur dvalið hér á
landi um skeið og hélt meðal annars
tónleika ásamt Sigurði Hrelli og
Agli Jóhannessyni í Iðnó en þegar
þeir þrir leika saman þá kalla þeir
sig Jörð bifast.