Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
Sport
f Ímeistaradeildin
™ J*----------—-------------
A-riðill
Úrslit
Barcelona-Newcastle.....3-1
1-0 Daniel Garcia Dani (7.), 1-1
Foluwashola Ameobi (24.), 2-1
Patrick Kluivert (35.), 3-1 Thiago
Motta (58.).
Staóan
Inter Milan 2 2 0 0 7-3 6
Barcelona 2 2 0 0 5-2 6
Leverkusen 2 0 0 2 3-5 0
Newcastle 2 0 0 2 2-7 0
C-riðill
Úrslit
R. Madrid-L. Moskva.......2-2
1-0 Raul Gonzalez (21.), 1-1 James
Obiorah (47), 1-2 Bennett Mnguni
(74), 2-2 Raul Gonzalez (75.).
B. Dortmund-AC Milan......0-1
0-1 Filippo Inzaghi (49.).
Staöan
AC Milan 2 2 0 0 2-1 6
Dortmund 2 1 0 1 2-2 3
L. Moskva 2 0 1 1 3-4 1
R. Madrid 2 0 1 1 2-3 1
D-riðÍll
Úrslit
Man. Utd-Deportivo............2-0
1-0 Ruud Van Nistelrooy (7.), 2-0
Ruud Van Nistelrooy (55.).
Juventus-Basel ................4-0
1-0 David Trezeguet (3.), 2-0 Paolo
Montero (34.), 3-0 Alessio
Tacchinardi (43.), 4-0 Alessandro Del
Piero, víti (51.).
Staóan
Man. Utd 2 2 0 0 5-1 6
Juventus 2 1 1 0 6-2 4
Deportivo 2 0 1 1 2-4 1
Basel 2 0 0 2 1-7 0
-ósk
Evrópukeppnin 2008:
Austurríki/Sviss
sigurstranglegustu
umsækjendurnir
í dag kemur í ljós hver verður
gestgjafi Evrópukeppninnar í
knattspymu árið 2008 en þá mun
framkvæmdastjóm Knatt-
spymusambands Evrópu ákveða
hver hinna sjö umsækjenda er
hæfastur.
Sameiginleg umsókn Austur-
ríkismanna og Svisslendinga
þykir vera sigurstrangleg en for-
svarsmenn þeirrar umsóknar
em þó ekki famir að fagna.
Allt getur gerst
„Við munum enn hvað gerðist
fyrir fjórum árum þegar Portú-
galar hirtu keppnina árið 2004
fyrir framan nefið á Spánverj-
um, eingöngu af því að samband-
ið vildi styrkja knattspymuna í
Portúgal og taldi hana hafa
meiri þörf fyrir keppnina heldur
en Spánn. Þetta veltur allt á þvi
hvaða stefnu Knattspymusam-
band Evrópu tekur,“ sagði Pi-
erre Beniot, talsmaður sviss-
neska knattspymusambandsins.
Skotar og írar eru einnig
bjartsýnir en írar sendu staðfest-
ingu í gær þess efnis að þeir
myndu hafa tvo velli klára ef
þeirra umsókn yrði fyrir valinu.
í gær voru umsóknirnar
kynntar í síðasta sinn en að
þeim loknum fóru meðlimir
framkvæmdastjómar Knatt-
spymusambands Evrópu inn á
hótelherbergi þar sem þeir
munu dvelja án samneytis við
aðra þar til kosið verður.
Eggert situr hjá
Sex stjórnarmenn, þar á meöal
Lennart Johansson, forseti sam-
bandsins og Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, munu sitja hjá í
fyrstu umferð vegna tengsla viö
umsókn Norðurlandanna en þeir
munu koma inn í aðra umferð
þar sem kosið verður á milli
tveggja eða þriggja efstu um-
sóknanna. -ósk
DV
Fimm leikir fóru fram í meistaradeild Evrópu í gærkvöld:
Eintómt Bas(e)l
- svissneska liðið tapaði öðrum leiknum í röð, nú fyrir Juventus, 4-0
Hollendingurinn Ruud Van
Nistelrooy fagnar hér ööru
marki sinu gegn Deportivo La
Coruna í gærkvöld en Van Ni-
stelrooy hefur skorað fjögur
mörk í siöustu tveimur leikjum
Manchester United í meistara-
deildinni. Reuters
t
Svissneska liðið Basel er í tómu
basli í meistaradeild Evrópu og tap-
aði í gær, 4-0, fyrir Juventus í C-
riðli í snjókomu í Tórinó á Ítalíu.
Franski framherjinn David
Trezeguet, sem er búinn að vera
lengi frá vegna hnémeiðsla, var
fljótur að setja mark sitt á leikinn.
Hann skoraði fyrsta mark leiksins á
3. mínútu og sagði eftir leikinn að
það hefði verið mikil ánægja.
Ótrúlega ánægður
„Þetta var fyrsta markið mitt í
langan, langan tíma og ég er ótrú-
lega ánægður. Raunir mínar eru á
enda því að ég finn ekkert til í
hnénu. Ég er nú reyndar frekar
þreyttur enda á ég langt í land með
aö komast í fullt leikform en ég ætla
mér að æfa vel í jólafríinu og koma
í toppformi eftir það,“ sagði
Trezeguet.
Marcelo Lippi, þjálfari Juventus,
var ekki síður ánægður með að vera
búinn að endurheimta þennan
snjalla framherja.
„Ég er mjög ánægður með að
hann skuli vera byrjaður að spila á
ný. Það er mikilvægt fyrir mig að
hafa alla leikmenn heila og endur
koma hans og markið gaf liðinu
mikið sjálfstraust," sagði Lippi og
bætti við að liðið væri á réttri leið.
„Þessi sigur gerir það að verkum
að við erum tveimur stigum á eftir
Manchester United en við erum á
réttri leið. Við þurfum bara að
halda áfram að spila eins og við
gerðum í kvöld,“ sagði Lippi.
Christian Gross, þjálfari Basel,
blés til sóknar í leiknum og uppskar
ekki neitt nema fjögur mörk í sitt
eigið mark.
„Við erum að fá á okkur allt of
mörg mörk eins og staðan er í dag
en við erum sóknarlið, spilum alltaf
sóknarleik og þá er alltaf hætta á að
fá sig mörk,“ sagði Gross og var
ekki vonsvikinn.
„Við skulum muna það að við
höfum átt frábært ár og þetta er í
fyrsta sinn sem við spilum gegn
bestu liðum Evrópu,“ sagði Gross.
Gjörsamlega óstöðvandi
Hollendingurinn Ruud Van Ni-
stelrooy virðist vera gjörsamlega
óstöðvandi í meistaradeildinni.
Hann skoraði bæði mörk Manchest-
er United í sigri á Deportivo, 2-0, á
Old Trafford í gærkvöld og hefur
því skorað fjögur mörk í tveimur
fyrstu leikjum þessarar umferðar í
meistaradeildinni.
Alex Ferguson, knattspymustjóri
Manchester United, var ánægður
með pilt að leik loknum og reyndar
alla sína menn.
„Hann (Ruud Van Nistelrooy) var
stórkostlegur og ógnaði vörn
Deportivo allan leikinn. Það sem ég
er samt ánægöustur með er að liðið
allt spilaði vel sem ein heild. Sókn-
arleikurinn var mjög góður og varn-
arleikurinn batnaöi eftir því sem
leið á leikinn. Ég held að það hafi
gert gæfumuninn þótt annað mark-
ið hjá Ruud hafi einnig gert lífið
auðveldara fyrir okkur,“ sagði
Ferguson en hans menn hafa fullt
hús stiga á toppi C-riðils.
Tíu sigrar í röö
Barcelona jafnaöi í gærkvöld tíu
ára gamalt met AC Milan þegar lið-
ið vann sinn tíunda sigur í röð í
meistaradeildinni á þessu tímabili.
Fómarlambið var vængbrotið lið
Newcastle sem var án Alan Shearer
og Craig Bellamy. Leikmenn
Newcastle áttu við ramman reip að
draga en Bobby Robson, knatt-
spymustjóri liðsins, hrósaði sínum
mönnum fyrir baráttu og sagði að
þriðja mark Barcelona, sem var
frekar skrautlegt, hefði gert út um
leikinn.
„Við töpuðum leiknum á furðu-
legu marki í seinni hálfleik þegar
við vorum 2-1 undir. Mér fannst
hornspyman fara beint inn en ég
veit ekki hvort Shay Given (mark-
vörður Newcastle) missti af boltan-
um eða Kieron Dyer hreinlega sofn-
aði á stönginni," sagði Robson um
markið sem Thiago Motta skoraði
fyrir Barcelona.
„Við vomm samt alltaf að reyna,
börðumst eins og ljón og ég er stolt-
ur af strákunum. Barcelona er meö
stórkostlegt lið sem skapaði fjöl-
mörg færi en við stríddum þeim
líka,“ sagði Robson, sem fékk kon-
unglegar móttökur frá stuðnings-
mönnum Barcelona fyrir leikinn en
hann stýrði liðinu á árunum
1995-1997.
Sex leikir án sigurs
Það gengur lítið hjá Evrópumeist-
urum Real Madrid í meistaradeOd-
inni þessa dagana. I gær lék liðið
sinn sjötta leik í keppninni í röð án
sigurs þegar það gerði jafntefli, 2-2,
gegn rússneska liðinu Lokomotiv
Moskvu á heimavelli. Úrslitin hefðu
getað farið á verri veg ef ekki hefði
komið til framlag Raul Gonzalez
sem skoraði bæði mörk Madridar-
liðsins og jafnaði metin fimmtán
mínútum fyrir leikslok.
Vincente Del Bosque, þjálfari
Real Madrid, er þó ekki búinn að
gefast upp.
„Það er nóg af stigum eftir i pott-
inum og það væri Qjótfæmi aö segja
að við værum að berjast um annað
sætið. Það skal reyndar viðurkenn-
ast að við erum vanir að hafa Qeiri
stig í meistaradeildinni á þessum
tíma árs og því er þetta ný staða fyr-
ir okkur en ég trúi því aö reynslan
í liðinu og sigurviljinn muni Qeyta
því yflr þennan hjalla þegar keppni
hefst að nýju í febrúar," sagði Del
Bosque eftir leikinn en liðið tapaði
fyrsta leik sínum í D-riðli gegn AC
Milan, 1-0.
TQ að bæta gráu ofan á svart fyr-
ir Evrópumeistarana meiddust þeir
Ronaldo, Claudio Makalele og Fem-
ando Hierro í leiknum en óvíst er
hvort þeir verða lengi frá.
Enn mark frá Inzaghi
Framherjinn Filippo Inzaghi, sem
leikur með AC MQan, hélt upptekn-
um hætti í meistaradeQdinni í gær
en hann hefur verið óstöövandi í
keppninni í ár. Hann skoraði sigur-
mark AC MQan gegn Bomssia Dort-
mund í gærkvöld og hefur nú skor-
að níu mörk fyrir AC MQan sem er
með fuQt hús stiga í D-riðli.
Carlo Ancelotti, þjálfari ACMQ-
an, hrósaði Inzaghi eftir leikinn og
sagði að hann væri „maður hinna
mikQvægu augnablika“.
„Inzaghi liRr fyrir svona leiki og
enn einu sinni kom hann okkur tQ
bjargar á mikQvægu augnabliki,"
sagði Ancelotti.
„Mér Qnnst liðið vera í sífeUdri
framför og þetta var stórt skref sem
við stigum með þessum sigri. Við
spQuðum frábæra vöm og það var
lykQlinn að þessum sigri. Við vor-
um agaðir og þá er erQtt að brjóta
okkur á bak aftur,“ sagði Ancelotti
eftir leikinn.
Mathias Sammer, þjálfari Bor-
ussia Dortmund, var öskureiður út í
sína leikmenn eftir leikinn.
„Við getum kennt sjálfum okkur
um það hvemig fór. ACMQan er
með frábært liö en með fullri virð-
ingu fyrir þeim þá áttum við að geta
sigrað þá. Við reyndum bara ekki
nógu rnikið," sagði Sammer og
bætti við að frosinn vöUurinn hefði
ekki hjálpað tU.
„Það er ekki auðvelt að spUa á
móti liði sem hugsar bara um að
verjast á frosnum veUi. Ég man
bara eftir einu færi sem þeir fengu
og það er pirrandi að við skyldum
ekki nýta færin sem gáfust. Það
góða við þetta er þó að við ráðum
enn okkar eigin örlögum en ef við
æQum áfram þá þurfum við að spUa
mun betur heldur en í kvöld," sagði
Sammer eftir leikinn. -ósk