Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Side 40
44 H e Igo rh lað H>V LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 Hættul j átning - játaði á sig nauðgun og morð til að losna við rafmagnsstólinn í Virginíuríki í Bandaríkjunum er dauðadómur við lýði og er slíkum dómum fuilnægt með því að binda dauðamenn í rafmagnsstól og hleypa straumi gegnum skrokk þeirra. Þetta þykir heldur hrollvekjandi dauðdagi sem flestir vilja komast hjá. David Vasquez er engin und- antekning frá því. Hann er þroskaheftur en er vel fær um að stunda vinnu og vel við mælandi og þvi talinn sakhæf- ur. Sem sagt tilvalið fómarlamb ósvifinna lögreglu- manna sem þurftu nauðsynlega á morðingja að halda til að sanna getu sína og fæmi við að leysa viðbjóðslegt morðmál. Vasquez var svo hræddur við rafmagnsstólinn að hann játaði á sig morð sem hann hafði ekki framið til að komast hjá lífláti. Rannsóknarlögreglumennimir, sem yf- irheyrðu hann, töldu honum trú um að ef hann játaði það sem á hann var borið myndi hann fá vægan dóm og yrði sleppt lausum eftir skamma fangelsisvist. Hann var ákærður 1984 fyrir nauðgun og morð og væri annað tveggja dauður eða sæti í lífstíðarfangelsi hefði tilviljun ekki ráðið þvi að upp komst um raðmorðingja og nauðg- ara sem var sekur um glæpinn sem annar maður var dæmdur fyrir. Þá komst einnig upp hvemig málatilbún- aðurinn á hendur þroskaheftum manni var unninn og hve auðtrúa og óvandaður dómarinn var. Það var nokkrum áram síðar að hinn raunverulegi morðingi var handtekinn fyrir afbrot sem í fyrstu var ekki tengt morðinu sem Vasquez sat á dauðadeild fyrir. Hann hét Timothy Wilson Spencer og hafði mánuðum saman haldið íbúum borgarinnar Richmond í Virginíu í heljargreipum óttans vegna endurtekinna nauðgana og morða á konum. Hann var kallaður Suðurbæjarkyrkjar- inn og benti heitið til þess hluta borgarinnar þar sem hann athafnaði sig. Lögreglan og dómstóllinn töldu hann hafa útlit nauðgara og morðingja og var þroskaheftur maðurinn dæmdur vegna játningar sem var þvinguð fram. Plataður til að játa Þegar yfirvöldin áttuðu sig á að morðin sem Spencer varð uppvís að vom nánast eins og það sem þroskahefti maðurinn var dæmdur fyrir og nánari rannsókn leiddi í ljós að raðmorðinginn hafði nauðgað og deytt konuna sem annar var sakaður um, játuðu þau mistökin. Þá hafði Vasquez setið inni í fimm ár og sætt ómældum mis- þyrmingum og nauðgunum í fangelsinu. Hann er nú 54 ára og annast sjúka móður sína, sem ávallt var viss um að sonur hennar hefði verið dæmdur saklaus þrátt fyrir að játning hans lægi fyrir. Hann lýsir játningu sinni á þann veg að þegar lögreglumenn vora að lesa sakarefnin yfir hon- um eftir handtökuna hafi hann ekki skilið hvað þeir vora að fara og bað þá að lesa þau upp aftur, hægt og rólega. Þá var hann sleginn í hnakkann og skipað að vera ekki að eyða tíma rannsóknarlögreglumannanna að óþörfu. Þá var leikið sjónar- spilið gamla um vondu lögguna og góðu lögguna. Annar hótaði og barði en hinn var vingjam- legur og hélt aftur af þeim skap- vonda og bamsmíðaóða til að vinna trúnað þess sem verið var að yfirheyra. Hann settist fyrir framan þann grunaða og gaf honum sígarettu og var hinn vinsamlegasti. Hann ávarpaði David Vasquez og var fullur umhyggju fyrir velferð hans: „Sjáðu til, Dave. Ég held að þú sért ágætis náungi sem hefur liklega gert eitthvað slæmt af þér. Það gerir þig ekki að vondri manneskju. Ég er á móti dauðarefsingu og ég vil ekki sjá á eftir þér í dauðann. ímyndaðu þér hvemig mömmu Móðir Vasquez var alltaf viss um að sonur hennar væri saklaus af þeim glæpum sem á hann voru bornir. Falskar játningar eru vel þekkt fgrir- bæri íalvarlegum sakamálum. Þegar morð sem i/ekja mikla athggli eru fram- in og morðinginn finnst ekki strax eru einatt margirsem gefa sig fram i/ið lög- reglu og játa á sig glæpinn. Oft þjást þessir fölsku glæpamenn af geðveilu og athgglissgki. Þess eru líka dæmi að játningar eru knúnar fram af lögreglu til að legsa mál sem verðir laganna ráða ekki við en þurfa að sgna árangur ístarfi og að þeirséu vandanum vaxnir. Hér segir frá manni sem játaði á sig morð sem hann framdi ekki og hvers vegna hann lét lögreglumenn plata sig til að Igsa verknaðinum á hendursér. þinni liði ef hún yrði að horfa á eftir þér í rafmagnsstól- inn. Ef þú undirritar þessa játningu mun það aldrei gerast. Þú situr inni í einhvem tima og verður svo sleppt sem frjálsum manni.“ Hinn granaði var orðinn hræddur og ringlaður og skrifaði undir skjaldið sem að honum var rétt. Engin sönnunargögn Konan sem Vasquez var dæmdur fyrir að myrða hét Carolyn Hamm. Hún fannst hengd í kjallara húss síns i úthverfinu Arlington í Virginíuríki. Henni hafði verið nauðgað ítrekað og líkið bar þess glögg merki að hún hafði verið pyntuð áður en hún var hengd. Nágranni sagði lögreglunni að hann hefði séð Vasquez í námunda við heimili hinnar myrtu. Ekkert var eðli- legra því hann bjó þar skammt frá, en enginn mundi eft- ir að hafa séð hann á sveimi við hús Hamm um svipað leyti og hún var myrt. David Vasquez var við vinnu sína á McDonald’s skyndibitastað á þeim tíma sem álitið var að Hamm hefði verið pyntuð og myrt. Hann kunni ekki að aka bíl svo að það var nær útilokað að hann hefði skroppið úr vinn- unni til að nauðga konu nokkrum sinnum og kvelja hana og myrða. Ekkert af þeim fótsporum sem fundust við hús hinnar myrtu voru eftir skó í eigu þroskahefta manns- ins. En það atriði sem alvarlegast er og dómuram sást yfir að taka tillit til var að sæðið sem fannst í líkama látnu konunnar var frábragðið sýni sem tekið var úr hin- um granaða. Á þeim tíma voru DNA-rannsóknir skemmra á veg komnar en nú er og lítið notaðar í saka- málum. Þrátt fyrir alla þessa annmarka á rannsókninni var Vasquez þægilegt morðinaaefni fyrir ósvífna lögreglu- menn og siðlausan dómstól. Greindarvísitala hans var lág og auðvelt var að fá hann til að gera játningu sem átti ekki við nein rök að styðjast. Að ytra útliti bar hann þess ekki merki að vera þroskaheftur og gat unnið einfóld störf, haldið uppi samræðum og svarað einfóldum spum- ingum. Því þótti játningin vera nóg til að sakfella mann- inn sem ómögulega gat hafa framið þann glæp sem hon- um var kennt um. Meintur morðingi brotnaði saman undir yfirheyrslun- um og þegar lögreglumennimir endurtóku í sifellu lýs- ingar á meðferðinni á Hamm fór hann að herma eftir þeim og fór síðan að lýsa hræðilegum draumi sem hann sagði sig hafa dreymt. Þessi draumur var gerður að vera- leika í málskjölunum. Veijendur bentu á veilumar í málatilbúnaði ákæra- valdsins og að játningin og draumurinn stæðust ekki fyr- ir rétti. En allt kom fyrir ekki, játningin var talin gild og útlit og ffamkoma sakbomingsins var slík aö dómari og kviðdómendur gátu ekki annað séð en aö hann væri vel sakhæfur og var dómsniðurstaðan eftir því. Raðmorðinginn loks handtekinn Þremur árum eftir að Hamm var myrt lauk Timothy Spencer refsivist fyrir innbrot. Á næstu þremur mánuð- um myrti hnann þrjár konur í Richmond og nágrenni og þegar hann skrapp til Arlington til að hitta frændfólk sitt nauðgaði hann og kyrkti konu í námunda við fyrrum heimili Carolyn Hamm. Spencer varð brátt frægasti raðmorðingi í Virginíu. Hann var kynóður og haldinn pyntingahvöt og eftir að hafa svalað öfúguggahætti sínum limlesti hann líkin. Mikill ótti greip um sig í nágrenninu og lögreglan marg- faldaði eftirlit. DNA-sýni bendluðu Spencer við fjögur morð á svæö- inu og nauðgunarmál í Arlington. Engin sýni vora eftir af leifúm Hamm en flest benti til þess að þar hefði sami morðingi verið að verki. Þótt saksóknarar væra nú viss- ir um að Vasquez væri saklaus af morðinu, sem hann var dæmdur fýrir, var ekki hægt að láta hann lausan 'úr fangelsi. Samkvæmt lögum Virginíuríkis urðu nú sönn- unargögn í máli að koma fram ekki síðar en 21 degi eft- ir dómsuppkvaðningu. Sá timi var löngu liðinn í máli mannsins sem lögreglan hafði safnað lélegum sönnunar- gögnum gegn. Því var lausnin sú að ríkisstjórinn náðaði fangann, sem aldrei hafði brotið neitt af sér, til að hann fengi frelsi á ný. Spencer náðist fljótlega eftir að hafa misþyrmt og myrt konumar þijár eftir að hann slapp út. Hann var dæmd- ur til dauða og 1994 var hann tekinn af lífi í rafmagns- stólnum. Eftir að Vasquez var látinn laus er hann bitur út í sam- félagið og hefur aldrei náð sér fullkomlega eftir meðferð- ina sem hann hlaut. En hann reynir eftir bestu getu að gleyma þeirri hræðilegu reynslu sem á hann var lögð og lifa eðlilegu lífi. Móðir hans var alltaf viss um að sonurinn væri borinn röngum sökum. Hún sótti um að fá að vera viðstödd af- töku Spencers en var neitað að njóta þeirrar ánægju að sjá hann bijótast um í rafmagnsstólnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.