Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Blaðsíða 15
15 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003 Menning Kammerkórinn Vox academica og Rússíban- amir héldu tónleika í Salnum í Kópavogi síðast- liðið sunnudagskvöld. ásamt Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur söngkonu og Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðlu- leikara. Efnisskráin var tvískipt, annar hlutinn samanstóð af lögum úr ýmsum áttum en hinn var helgaður nýju íslensku verki eftir Hróðmar Inga Sigurbjömsson við sjö ljóð eftir ísak Harðarson. Verkið ber heitið Hjörturinn og einkennist textinn af heimspekilegum vangaveltum og aug- ljósri trúarsannfæringu. Húmorinn er þó ekki langt undan og var hann skemmtilega rammaður inn af tónlistinni, enda er Hróðmar afslappað tón- skáld sem hefur greinilega ekki miklar áhyggjur af því sem hann er að gera. Hann er ekki fastur í neinum akademískum tuggum heldur skrifar bara það sem virkar; sumt var nánast poppað, án þess þó að vera hallærislegt. Útkoman var eðlileg og sjálfri sér samkvæm, tónlistin flæddi áfram óheft allt til loka og var óvenju aðgengileg miðað við það sem gengur og gerist. Tónlist Fyrsti þáttiu- verksins kallast ísafold úr greip- um dauðans og er látlaus sálmur við liggjandi einfaldan hljóm, örlítið útflúraðan. Því næst kom Gobbedí, gobbedí þar sem skáldið horfir á Jörð- ina brokka til móts við örlög sín. Fléttaði Hróð- mar þar saman karl- og kvenröddum sem sungu á víxl en undir brokkaði hljómsveitin í afslöppuð- um takti. Þetta var enginn forleikur að William Tell, en næsti kafli, Golgata, var talsvert popp- aðri. Sama má segja um síðasta þáttinn, Stjömur yfir Stokkseyri, þar var tónlistin allt að því rokk- uð og vakti mikla hrifningu áheyrenda. Hér má ekki skilja sem svo að tónverk Hróð- mars hafi verið einhver rokkópera. Tónlistin var á köflum aðeins einfaldur sálmasöngur, innhverf- ur og dreymandi, og því má segja að heildar- myndin hafi verið litrík. Auðvitað má deila um meðhöndlun tónskáldsins á ljóðunum og hversu vel honum tekst að fanga anda þeirra í tónum; ég saknaði t.d. dýptarinnar og trúarvímunnar sem einkennir síðasta ljóðið. Tónlistin sem slík bjó hins vegar yfir miklum áhrifamætti og því ekki Gobbedí gobbedí gobbedí Tatu Kantomaa og félagar í Vox academica Tónlistin var á köflum aöeins einfaldur sálmasöngur, innhverfur og dreymandi... DV-MYND KARL PETERSEN hægt að amast yfir einhverju er flokkast undir persónulega túlkun hvers og eins. Eins og áður sagði samanstóð hinn hluti efnis- skrárinnar af lögum úr ýmsum áttum og var ánægjulegt að hlýða á glæsilegan söng Sigrúnar Hjálmtýsdóttur (Non ti scordar di me eftir de Curtis, La danza eftir Rossini og fleira) og kraft- mikinn fiðluleik nöfnu hennar Eðvaldsdóttur í frægum sígaunatrylli eftir Sarasate. Ekki var eins ánægjulegt að hlýða á Býflugu Rimsky-Korsakoffs í meðfórum Guðna Franzsonar; hún var ekki vel spiluð þó lifnað hafi yfir tónlistinni þegar Tatu Kantomaa harmónikuleikari tók við suði flug- unnar í ógnarhröðum krómatískum tónstigum. Guðni hefði líka mátt læra utan að textann að Ó mín flaskan fríða en þar söng hann einsöng með kórnum. Hann var í hlutverki fyllibyttunnar en ómarkvisst handapat og aðrir leikrænir til- burðir voru hjákátlegir. Á sama tíma var ekki sannfærandi að hann væri alltaf að fletta nótum; þá hefði verið betra að veifa brennivínsflösku. Annað á tónleikunum var prýðilegt og söngur kórsins var til fyrirmyndar undir öruggri stjórn Hákonar Leifssonar. Toppurinn var auðvitað verk Hróðmars og er tónskáldinu óskað til ham- ingju með vel heppnaðan frumflutning. JónasSen Guðbrandsmessa Kór Langholts- kirkju ásamt Kammer- sveit Langholts- kirkju og einsöngv- urunum Ólöfu Kol- brúnu Harðardóttur, Mörtu Hrafnsdóttur, Birni I. Jónssyni og Eiríki Hreini Helgasyni frum- flytja á fóstudaginn langa kl. 17 Guðbrandsmessu eftir Hildigunni Rúnars- dóttur. Stjórnandi er Jón Stefánsson. Tónleikamir eru liður í 50 ára afmælishátíð kórs- ins á þessu ári. í tilefni afmælisins var ákveðið að panta viðamikið verk fyr- ir kór og sinfóníuhljóm- sveit til flutnings í dymbilviku. Til verksins fékk kórinn Hildigunni Rúnarsdóttur tónskáld sem er gagnmenntuð í Tónlistarskóla Garðabæj- ar, tónfræðadeild Tónlist- arskólans í Reykjavík, hjá prófessor Gúnter Friedrichs í Hamborg og Svend Hvidtfelt Nielsen í Kaupmannahöfn. Kammersveit Lang- holtskirkju, sem Júlíana Elín Kjartansdóttir leiðir, er í þetta sinn fullskipuð sinfóníuhljómsveit og eru hljóöfæraleikarar um fjörutíu. Tónleikarnir verða end- urteknir sunnudaginn 27. apríl kl. 20. mmM leikfélag Reykjavíkur BORGARLEIKHUSIÐ Leikftílag Rcykjavíkur STÓRA SVIÐ ÖFUCU MEGIN UPPI f. Dcrcl Bmfuli Forsýning fi. 24/4 kl. 20 - Kr. 1.000 FRUMSYNING su. 27/4 - UPPSELT Mi. 30/4 kl. 20 - UPPSELT Fi. 1/5 kl. 20 -1. maí, tilboð kr. 1.800 Fö. 2/5 kl. 20 Lau. 10/5 kl. 20 PUNTILA OG MATTI <r. Bntolt Bmht Lau. 26/4 kl. 20 Su. 4/5 kl. 20 Su. 11/5 kl. 20 SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sdlina og KarlÁgúst Úlfsson Fö. 25/4 kl. 20 Lau. 3/5 kl. 20 Fö. 9/5 kl. 20 ATH. Sýningum lýkur í vor DÚNDURFRÉTTIR - TÓNLEIKAR Dark side of the Moon Mi. 23/4 kl. 20 Mk23/lkL22JÖ NÝJA SVIÐ ptnn 26/4 kl. 20 SUMARÆVINTYRI i e. Shokespeare ogjeikhópii : Mi. 23/4 kl. 20. Lau. 26. Su. 27/4 kl. 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRIHATTUR eftir Peter Brook og Maru-Hél'ene Estienne Fö. 25/4 kl. 20. K. 1/5 kl. 20 KVETCH eftir Steven Berkoff, f SAMSTARFI VIÐ Á SENUNNI Fi. 24/4 kl. 20 Lau. 3/5 kl. 20 ATH. SÍÐUSTU SÝNINGAR 15:15 TÓNLEIKAR- BERGMÁL FINNLANDS I Ferdalög - Poulenc-hópurinn Lau. 26/4 kl. 15.15 CESTURINN e. Eric-EmmanuelSchmitt Su. 11/5 kl. 20. Su. 18/11 kl. 20 örfáar sýningar vegna fjðlda áskorana | ÞRIÐJA HÆÐIN PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Lau. 3/5 kl. 20. Su. 11/5 kl. 20 Talcmarkaður sýningafjöldi_______ | LITLA SVIÐ STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN I SAMSTARFI VIO SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum -ogísd eftir! 1 Lau. 26/4 kl. 14 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakcspcare I SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT Fö. 25/4 kl. 20. Lau. 27/4 kl. 20 Fö. 2/5 kl. 11 - UPPSELT Fö. 2/5 kl. 20 ALLIR í LEIKHÚSlÐ - ENGINN HEIMA! Ðorgarleikhúsið er fjölskylduvænt ieikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt i leikhúsíð í t'ylgd með forrádamonnum. (Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.) Mióvikudagur 16. aprít kt. 20 TÍBRÁ: Sönglög dr. Páls fsólfssonar Hanna Dóra Sturludóttir, Finnur Bjarnason og Nína Margrét Grímsdóttir flytja öll sönglög Páls. Verö kr. 1.500/1.200 Mióvikudagur 23. apríl kl. 20 Gítartónleikar. Krisdnn H. Árnason leikur verk eftir Milan, J.S.Bach, Henze, Giulini, Llobet, Granados og Barrios.Tónleikar kennaraTónlistarskóla Kópavogs. Verö kr. 1.500/1.200/500. Fimmtudagur 24. apríl kl. 17, sumardaginn fyrsta Kór Menntaskólans í Reykjavík undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar syngur stúdentasöngva, þjóðlög og lög eftir Andrew Lloyd Webber. Verð kr. 1.500. Nfna Margrét Grímsdóttir Hanna Dóra Sturludóttir ÍlM !rS| Finnur Bjarnason Hin smyrjandi jómfrú Nærondi lciksýning fyrir líkama og sól. Sýnt í Iðnó: Mið. 16. apríl. kl. 20.00, örfá sæti. Lau. 19. aprfl. kl. 20.00. Lau. 25. apríl. kl. 20.00. Sun. 26. apríl. kl. 20.00. Síðustu sýningar. "Charlotte var hreint út sagt frábœr í hlutverki hinnar smyrjandi jómfrúar og hún átti ekki ( neinum vandrœðum með að heilla áhorfendur upp úr skónum með... einlœgni sinni, ósviknum húmor og ekki s(st kómískri sýn á hina (slensku þjóðarsál." S.A.B. Mbl. b'Vtlt i löltú Hin smyrjandi ómfrú al l. ’i ‘ i m. li.. ; ■eftir Eve Ensler í Borgarleikhúsinu Takmarkaður sýningafjöldi Miðasala 568 80 BORGARLEIKHUSIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.