Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Blaðsíða 32
Helcj&rblað JOV LAUGARDAGU R IO. IVlA.f 2003
Atli hættir - Asgeir tekur við
- áhersla lögð á sóknarleik í næstu leikjum, segir Ásgeir Sigurvinsson
Það er einn besti knattspyrnumaður þjóðarinnar
fyrr og síðar, Ásgeir Sigurvinsson, sem fær það erfiða
hlutverk að taka við starfi landsliðsþjálfara næstu
vikurnar. Ráðning Ásgeirs kemur ekki mörgum á
óvart þar sem hann hefur setiö í landsliðsnefnd og
var einn af aðstoðarmönnum Atla Eðvaldssonar. Ás-
geir fékk ekki mikinn tíma til þess að melta tilboðið
því Eggert Magnússon, formaður KSÍ, bauð honum
starfið tveim dögum áður en tilkynnt var um ráðn-
ingu. DV-Sport tók Ásgeir tali í Laugardalnum í gær.
Nú spyrja menn sig, er þetta starf sem þú séró
þig i, til frambúdar eöa verdur þetta eingöngu
tímabundiö?
„Þetta er tímabundið starf og ég lít eingöngu á það
þannig. Ég er búinn að vera í kringum þennan fót-
bolta í öll þessi ár og ég vonast til þess að þeir leikir,
sem eru fram undan, muni þróast vel fyrir okkur og
við þurfum að fá 7-9 stig í næstu þrem leikjum til
þess að eiga einhvern möguleika í riðlinum."
Ásgeir Sigurvinsson inun leiða íslenska landsliðið í næstu leikjuin og Eggert Magnússon, forinaður KSÍ, bauð
hann velkoininn til starfa í gær. D-mynd E.Ól.
Vantar sjálfstraust
Hvaöa áherslubreytingar finnst þér þurfa aö
gera á liðinu i dag?
„í fyrsta lagi þarf að ná upp sjálfstrausti hjá liðinu.
Það er einna helst það sem hefur vantað í undanförn-
um leikjum en hvaða breytingar ég geri á eftir að
koma í ljós.“
Nú þekkir þú vel til liósins þar sem þú hefur
starfaö í kringum þaö undanfarin ár. Ætlar þú að
gera miklar breytingar á hópnum?
„Það verða einhverjar breytingar. Við erum að fara
að spila tvisvar við Færeyinga og einu sinni við Lit-
háa í næstu leikjum og það verður að spila þá leiki
með öðru hugarfari en gert var gegn Skotum og með
annarri uppstillingu. Við setjum okkur þau markmið
að ná þessum 7-9 stigum út úr þessum leikjum og til
þess að vinna leiki verður að skora mörk og aðal-
áherslan verður á sóknarleik og það er helst sú breyt-
ing sem verður í gangi. I þessum leikjum verður lögð
höfuðáhersla á sóknarleik."
Ef þessir leikir i júni vinnast ekki, er þá spiliö
búiö og er þá aö þínu mati kominn tími á aö
byggja upp á nýtt liöfyrir nœstu forkeppni?
„Það tel ég vera alveg augljóst. Ég vil samt helst
horfa bara til næstu leikja og horfa svo til framtíðar
eftir það,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson að lokum en
fyrsti leikur íslenska landsliðsins undir hans stjórn
verður gegn Færeyingum á Laugardalsvellinum 7.
júní næstkomandi.
Ásgeir fyrsti valkostur
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, stóð í ströngu á
fundinum í gærdag en fjölmiðlamönnum fannst illa
að sér vegið með þeirri gagnrýni hans að Atli hefði
mátt þola persónulegar árásir af hálfu fjölmiðla með-
an á landsliðsþjálfaratíð hans stóð og voru heitar um-
ræður um málið. DV-Sport náði tali af Eggerti eftir
fundinn í gær.
Var Ásgeir Sigurvinsson fyrsti valkostur hjá
knattspyrnusambandinu?
„Þetta var nú ekki langur tími og eins og staðan
var þá var Ásgeir nokkurn veginn sjálfskipaður í
starfið ef hann væri tilbúinn til þess að taka verkefn-
ið að sér. Einfaldlega vegna þess að hann hefur starf-
að náið með landsliðinu undanfarin sex ár og þekkir
alla leikmennina og þekkir mjög vel til þess sem hef-
ur verið að gerast hjá landsliðinu. Um leið og hann
var tilbúinn var þetta sjálfgefið. Ásgeir var fyrsti og
eini maðurinn sem leitað var til.“
Tími Ada var kominn
Finnst þér aö Atli sé aö hlaupast undan merkj-
um meö þvi aö segja starfinu lausu á þessum tima-
punkti þar sem stutt er í mikilvœga landsleiki?
Heföi ekki verið réttara af honum aö segja upp, ef
hann œtlaöi sér að gera það, fyrir Skota-leikinn
þar sem nýr þjálfari heföi þá haft nœgan tíma til
þess að koma sér inn i starfiö og undirbúa sig?
„Nei, alls ekki. Ég held að í fyrsta lagi hafi Atli
ekki verið ánægður með gengi liðsins undanfarið. Ég
held að hann hafi verið mjög svekktur og sár yfir
Finnaleiknum og einhvern veginn fundist að hann
næði ekki til leikmanna. Ég held að það hafi verið sá
vendipunktur sem gerði það að verkum að hann
óskaði þess að hætta störfum. Tímasetning er í sjálfu
sér alltaf erfið og mér finnst hann ekki vera að hlaup-
ast undan merkjum. Ef svo hefði verið hefði ég gert
miklu meira til þess að sannfæra hann um að halda
áfram en ég held einfaldlega að hann hafi verið búinn
að fá nóg og að hans tími að hætta væri kominn."
Var vilji innan knattspyrnusambandsins aö Atli
héldi starfinu áfram eða tókuö þið uppsögninni
mótþróalaust?
„Það kemur skýrt fram að ég hafi tekið mér um-
hugsunarfrest og ráðfært mig við ákveðna menn. Ég
held að það hafi verið sú skoðun eftir þennan um-
hugsunarfrest að þetta hafi verið rétta augnablikið til
þess að skipta um þjálfara."
Nú kemurfram i sameiginlegri yfirlýsingu ykk-
ar Atla aö mikil neikvœö umrœða um störf Atla
meö landsliöiö hafi haft slœm áhrif á gengi liös-
ins. Þráttfyrir afleitt gengi undanfarin tvö ár er
ekki hœgt aö sjá í yfirlýsingunni aö þjálfarinn
taki á sig ábyrgö á þessu slœma gengi liðsins?
Það kemur víst fram í yfirlýsingunni og ég mót-
mæli þvi algjörlega. Ef þú lest yfirlýsinguna þá stend-
ur „í þeirri von að liðinu takist að snúa við gengi liðs-
ins“ og menn geta lesið það sem þeir vilja út úr þessu
og ef þú lest þetta þá bara lestu það. Fyrst og fremst
það sem verið er að visa tU er að gengi liðsins undan-
farið hefur skapað neikvæða umræðu úti í þjóðfélag-
inu og fólk er óánægt með gengi liðsins. Ég get ekki
séð hvernig hægt er aö lesa þetta öðruvisi. Það er það
sem við erum að reyna að snúa og kannski er það
ástæðan fyrir því að verið er að fara þessa leið og að
Atli ákveður að fara þessa leið að umræðan er orðin
svo neikvæð úti í þjóðfélaginu."
En ef þú skoðar árangur liðsins undanfarin tvö
ár þá er ljóst að árangurinn er ekki beysinn og
finnst þér þá þessi umræða ekki eiga rétt á sér?
„Það hlýtur að vera ástæðan, annars skapast ekki
þessi neikvæða umræða.“
Má alltaf deila um tímapunkta
Miöaö viö árangur siöustu tveggja ára heföi þá
ekki mátt fara i þessar aögeröir fyrr?
„Það má alltaf deila um tímapunkta en það hefur
ekki verið uppi á borðinu hjá okkur að fara í aðgerð-
ir til þess að leysa Atla frá störfum þannig aö það má
eflaust gagnrýna það að það hafi ekki verið gert fyrr
en það hefur ekkert verið uppi á borðinu hjá okkur
fyrr en núna.“
Hvenœr hefst svo leitin aö nýjum langtímaþjálf-
ara?
„Það verður strax farið að litast um og gá strax
hvort einhvers staðar séu hæfir menn en það er alveg
ljóst að það verður ekki ráðinn nýr þjálfari fyrr en í
sumar. Það mun taka lengri tíma.“
Ef vel gengur í nœstu leikjum veröur þá metnaö-
urfyrir því aö halda Ásgeiri í starfinu áfram?
„Maður veit aldrei hvað tíminn ber í skauti sér.
Það spilast fyrst og fremst eftir því hvort tekst að
Finna hæfan mann sem við ráðum við fjárhagslega. Ef
það tekst ekki þá þarf að skoða aðrar leiðir."
Er sérstök ástceöa fyrir þvi aö þiö viljið frekar
fá erlendan þjálfara en íslenskan?
„Það eru 12 ár síðan við höfðum erlendan þjálfara.
Fyrst Sigi Held og svo Bo Johansson og það er alveg
ljóst að þessir menn komu með ákveðna nýja hluti
inn í íslenska knattspyrnu og íslenska landsliðiö sér-
staklega. Við höldum einfaldlega að á þessum tíma-
punkti sé tíminn réttur til þess að gera þetta aftur og
svo verður að koma í ljós hvort hæfur maður finnst,“
sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ, að lokum.
-HBG
Það sköpuðust heitar umræður um landsliðsþjálfaramálin á blaðamannafundinum í gær og Eggert Magnússon
sést liér svara íþróttafréttaniönnum fullum hálsi en Ásgeir Sigurvinsson lætur sér fátt um finnast, sem og
Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri sambandsins, sem skoðar símann sinn.
DV-mynd E.Ól.