Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 12
12 Útlönd FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 n>v REUTERSMYND Jaques Chirac Það eru sjálfsagt margir vinsælli en Frakklandsforseti í Bandaríkjunum. Frakkar fylgjast með bandarískum fjölmiðlum Franska utanríkisráðuneytið hef- ur sagt diplómötum sínum í Banda- ríkjunum að fylgjast með þarlend- um fjölmiðlum, hvort einhverjar ófrægingarherferöir eigi sér stað gegn Frökkum, sem voru hvað mest gegn aðgerðum Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra í írak. Yfirvöld í París hafa brugðist illa við fréttum þess efnis að ríkisstjóm þeirra hafi átt í samstarfi við ríkis- stjóm Saddams Husseins og að Frakkar hafi hjálpað eftirlýstum stjórnarmönnum íraks að komast á milli landa með franskt vegabréf. „Hluti af okkar áætlun til að út- skýra okkar mál fyrir Bandaríkja- mönnum er að telja ósannar stað- hæfingar um Frakka í bandarískum fjölmiðlum," segir Marie Masdupuy, talskona franska utanríkisráðuneyt- isins. önnur talskona, fyrir franska sendirráðið i Washington, hefur rit- að Bush Bandaríkjaforseta bréf þar sem kvartað er undan þessum frétta- flutningi; sem Frakkar viija meina að sé hreinn uppspuni. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Bergstaðastræti 46, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Friðfinnur Hallgrímsson, gerðarbeiðendur fbúðalánasjóður, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 13.30. Eldshöfði 19, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Plast- og álgluggar ehf., gerðar- beiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 11.30. Fossháls 1,0101, Reykjavík, þingl. eig. Mjólkurfélag Reykjavíkur svf., gerð- arbeiðandi Landsbanki íslands hf., að- alstöðvar, þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 10.30.______________________ Funahöfði 19, 020201, Reykjavík, þingl. eig. Bílaleigan Ernir ehf., gerð- arbeiðendur Sjóvá-Almennar trygg- ingar hf., Sparisjóður Mýrasýslu, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrenn- is, útibú, Tollstjóraembættið og Prótt- ur ehf., þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 11.00.__________________________ Glaðheimar 14, 0301, Reykjavík, þingl. eig. Þráinn Stefánsson, gerðar- beiðendur fbúðalánasjóður, íslands- banki hf., útibú 526, Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, Ríkisútvarpið, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 14.30. Háteigsvegur 38, 010301, Reykjavík, þingl. eig. Rakel Jónsdóttir, gerðar- beiðendur AX-hugbúnaðarhús hf., Búnaðarbanki íslands hf. ogTollstjóra- embættið, þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 14.00.______________________ Hjallavegur 33, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Guðmundur Harðarson og Hafrún Hauksdóttir, gerðarbeiðendur Kreditkort hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 15.00. Smiðshöfði 8, 0301, Reykjavík, þingl. eig. Kristján Friðrik Jónsson, gerðar- beiðendur Sparisjóður Hafnarfjarðar og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 20. maí 2003, kl. 10.00.________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Lítiö bneytt tillaga fyrin Öryggisráðið Bandaríkjamenn breyttu ekki miklu í meginatriðum tillögunnar, sem leggja á fyrir Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna, um hvemig mál- um skuli háttað í uppbyggingu íraks eftir stríðsátök í landinu. Breyttri útgáfu af tilllögunni var dreift í gær en í henni virðast Bandaríkjamenn viljugir að mæta öðrum sjónarmiðum á miðri leið, þó svo að hún sé í meginatriðum lítið breytt. Alls var 25 atriðum breytt í tillög- unni, eftir óskum hinna 15 meðlima Öryggisráðsins, en fréttaskýrendur segja þær flestar vera útlitsbreyt- ingar. Hlutverk Sameinuðu þjóðanna er aukið að einhverju leyti og er það sagt vera það afl sem samhæfir að- gerðir í uppbyggingu landsins. En, áður sem fyrr, eru það fyrst og fremst Bandaríkjamenn og Bretar sem fá valdið yfir olíulindum lands- — REUTERSMYND Olíulindir íraks Samkvæmt tillögunni fá Bandaríkja- menn og Bretar yfirráö yfir olíu íraks. ins og hvemig tekjum af sölu olí- unnar sé ráðstafað. Varðandi skuldir gömlu ríkis- stjórnarinnar í írak, sem eru um 400 milljarðar Bandaríkjadala, var óskum Rússa að einhverju leyti mætt en stór hluti af skuldum íraka er við þá. Bandaríkjamenn vilja að kosið verði um tillöguna í næstu viku en engin dagsetning hefur verið sett fyrir fund Öryggisráðsins. Annars handtóku bandarískar hersveitir nokkra af þeim 55 eftir- lýstu meðlimum gömlu ríkisstjórn- arinnar í Tikrit, heimabæ Saddams Husseins. Og þá hefur höfnin í Umm Qasr, sem bandamenn hertóku fyrir sjö vikum, verið afhent heimamönn- um á ný. Tólf sérfræðingar, sem mynda sérstakt tímabundið bæjar- ráð, hafa yfirráð yfir höfninni sem er fyrsta svæðið sem írökum er afhent aftur síðan stríðið hófst. REUTERSMYND 4 stig tunglmyrkvans Þessi samsetta mynd sýnir 4 stig tunglmyrkvans sem sást víöa í nótt en þessi mynd er tekin á Irazu-eldfjallinu sem er um 60 km frá San Jose í Kostaríku. Á neöri myndinni, hægra megin, sést rauöi litblærínn sem myndast þegar sólarljósiö er síaö og beygt til af lofthjúpi jaröar áöur en þaö skellur á tungliö. Kínverjar stöðva aðar ætMHngar tl úflanda vegna bráðahmgnabólgu Kínversk stjórnvöld hafa stöðv- að allar ættleiöingar barna til út- landa af ótta við að tilvonandi for- eldrar, sem koma erlendis frá, muni breiða út bráðalungnabólgu- veiruna. Á vefsíöu kínversku ættleiðing- armiðstöðvarinnar kemur fram að í gær hafi verið hætt að senda gögn til fólks sem gerir sér vonir um að ættleiða kínverskt bam. Þar segir enn fremur að þeir sem þegar hafi fengið leyfi til ættleið- ingar ættu að fresta ferð sinni, ef þess sé nokkur kostur. Heilbrigðisyfirvöld í Kína leggja nú allt kapp á að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn breiðist út til sveita landsins. Einn liðurinn í því var að hóta þeim lífláti eða ævilöngu fangelsi sem viljandi REUTERSMYND Sótthreinsaö í Peking Kínverskur verkamaöur sótthreinsar byggingarsvæöi í höfuöborginni Pek- ing af ótta viö bráöalungnabólguna. stuðla að útbreiðslu sjúkdómsins. Forseti Taívans, Chen Shui-hi- an, sagði löndum sínum í morgun að búa sig undir langa baráttu gegn bráðalungnabólgunni. „Við verðum að vera búin und- ir það versta," sagði forsetinn. Heilbrigðisyfirvöld á Taívan hafa sett hundruð manna í sóttkví á þremur stórum sjúkrahúsum af ótta við að faraldurinn breiðist enn frekar út. Alls hafa 35 látist á Taívan af völdum bráðalungna- bólgunnar og 274 hafa smitast. Höfuðborgin Taipei hefur orðiö verst úti. Verslanir og veitinga- staðir eru nánast mannlaus og hermenn hafa farið um alla borg og sprautað klór á allar byggingar til að sótthreinsa þær, svo og á all- ar götur og húsasund. Stuttar fréttir Páfi vill SÞ í forystu Jóhannes Páll páfi, sem var harður andstæð- ingur stríðsrekstr- ar Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í írak, sagði í gær að Sameinuðu þjóð- imar ættu að gegna lykilhlut- verki í endurreisn íraks. Útflutningur ekki leyföur Fiskeldisfyrirtæki í Færeyjum fá ekki leyfi til að flytja út fersk- an lax á meðan verkfall er, segir formaður Verkamannafélagsins. Rússar fá aö heyra í Tý Færeyska rokksveitin Týr hef- ur gert samning við rússneskt fyrirtæki um útgáfu á plötu sveit- arinnar, Hversu langt er í Ás- garð?, í Rússlandi. Klofningur í Frakklandi Tvö verkalýðsfélög gerðu í gær samkomulag við frönsk stjórn- völd um umbætur á eftirlauna- kerfinu og virðist því sem klofn- ingur sé kominn upp í verkalýðs- hreyfingunni. Samgöngur eru nú aftur komnar í eðlilegt horf. Powell leitar stuðnings Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hittir leiðtoga Þýskalands að máli í dag til að reyna að afla stuðnings þeirra við ályktun í Ör- yggisráði SÞ um að binda enda á refsiaðgerðir gegn írak. Færri leita hælis í Danmörku Hælisleitendum í Danmörku fækkaði um sextán prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. Sótt í olíusjóðinn Norsk stjórnvöld ætla að taka þremur milljörðum norskra króna meira en áformað var úr sérstökum olíugróðasjóði sínum þar sem skatttekjur ríkisins eru minni en ætlað var. Bush fékk góðar gjafir í fyrra George W. Bush Bandaríkjaforseti fékk ýmsar góðar gjafir í fyrra, eins og hann hefur nú upplýst. Cheney varaforseti gaf honum til dæmis gamalt landakort af Texas og yfirmaður hjá Sony gaf honum miða á tónleika Roll- ing Stones, svo eitthvað sé nefnt. Fundur verður haldinn Yfirvöld í Indónesíu sögðu að fundur með uppreisnarmönnum frá Aceh yrði haldinn í Japan um helgina, þótt fulltrúum uppreisn- armanna hefði verið meinað að fara úr landi. Öttast um ferðamenn Yfirvöld í Alsír óttast um afdrif 15 erlendra ferðamanna í haldi mannræningja í Saharaeyðimörk- inni eftir að fréttir bárust um frels- un sautján annarra ferðamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.