Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 22
22
Helcjarblaö H>V
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003
kíkt í snyrtibudduna
i
Líkamssprei frá Victoria’s Secret
„Vinkona min keypti
. þetta líkamssprei handa mér í
á ® \ New York en það heitir Love spell
w ''Wy~ * og er frá Victoria’s secret. Það er algjör
sumarlykt af því, svona fersk ávaxtalykt, og ég
mun sem sagt aldeilis geta ilmað vel með þessu í sumar.“
ti.O
Hunangsgyllt sólbrúnka
„Ég hef ekki prófað mörg sólbrúnkukrem
enda var ég strax svo ánægð með Ho-
ney glow sólbrúnkukremið frá
Kanebo að ég hef haldið mig við
það. Það er alveg bráðnauðsynlegt
að eiga svona sólbrúnkukrem til að
hressa upp á húðlitinn i stað þess að fara í ljósabekkina."
Juicy tub frá Lancöme
„Þetta gloss frá Lancöme nota ég
dagsdaglega. Það er á litinn eins og
melóna og bragðast þannig líka.“
Texture mousse
„Ég læt alltaf klippa mig á Mojo, enda besta stof-
an í bænum að minu mati. Þar kaupi ég líka
þessa hárfroðu sem gefur hárinu ferskleika
og lyftingu. Það er einhvers konar fersk
hárstofulykt af þessari froðu."
Sólarpúður frá
Guerlain
„Þetta sólarpúður frá Guerlain nota ég á kinnarnar
en dagsdaglega er ég lítið máluð. Ég legg meira upp úr
þvi að ilma vel og set svo bara á mig gloss.“
Nína Björk Gunnarsdóttir kláraði Ijós-
mijndanám hjá Sissu síðastliðið vor og
hefur síðan þá verið að mgnda aðeins
fgrir Fróða. Nína sést þó einnig hinum
megin linsunnar þvíhún hefur starfað
sem Ijásmyndafgrirsæta ímörg ár. Sjálf
tekur hún aðallega svarthvítar mgndir og
stefnir fljótlega á meira nám á sviði Ijós-
mgndunar. DV fékk að kíkja ísngrti-
buddu Nínu sem segist regndar leggja
meira upp úr þvíað ilma vel en mála sig.
DV-myndir Hari
Anna og Erla taka á móti viðskiptavinum í nýju stílistastofunni sem var opnuð í gær. Þar er hægt að fá ráð-
gjöf varðandi fatavalið.
Allar konur geta
verið dásamlega
fallegar
Ng stílistastofa tók til starfa íversluninni Debenhams ígær. Þar
gefst konum kostur á að hafa stílista sér við hlið þegar fötin eru
mátuð - og njóta leiðsagnar um fatastílinn. Markmið er að konum
líði vel íþeim fatnaði sem þær velja.
Verslunin Debenhams hefur verið
með stílráðgjöf í rúmlega eitt og háift ár
þar sem viðskiptavinir hafa fengið ráð-
gjöf með snið, liti og fatasamsetningu sér
að kostnaðarlausu. Viðtökumar hafa
verið góðar og þess vegna var ákveðið að
stækka aðstöðuna og auka þægindin
með nýrri stílstofu, sem opnaði formlega
í gær.
Anna Toher, þjónustustjóri í Debenhams, segir nýju stí-
ilistastofuna í raun útvíkkun á þeirri þjónustu sem hefur
verið í boði. Ráðgjöf um fataval sé ekki ný af nálinni í versl-
uninni og þekkt er að konur geta fengið nákvæma mælingu
fyrir kaup á réttri stærð af brjóstahaldara.
Anna segir engan vafa leika á því að stílistastofan eigi eft-
ir að nýtast mörgum konum. „Margar konur þekkja þann
vanda að velja réttan fatnað og því miður er alltof algengt
að konur kaupi eitthvað sem þær nota svo aldrei. Við vilj-
um koma í veg fyrir.það og aðstoða konur við að kaupa
réttu fótin. Við leggjum mikið upp úr því að konunni líði vel
á meðan hún er að máta og nýtur aðstoðar stíilista sem
hjálpar henni að velja snið og íiti,“ segir Anna.
Hægt verður að bóka tíma í
nýju stíilistastofunni og segir
Anna ekki óvarlegt að áætla að
fyrsti tíminn taki allt að einni og
hálfri klukkustund. Ef konur
kjósa þá eru upplýsingar um þær
færðar í spjaldskrá og þá getur
næsta heimsókn tekið mun
styttri tima. „Það gefur konunni
lika möguleika á að hringja á
undan sér og biðja okkur að frnna
fatnað sern hentar einhverju sér-
stöku tilefhi," segir Anna.
Þá geta konur komið með stak-
ar flíkur með sér, til dæmis upp-
áhaldssparipilsið, og fengið að-
stoð viö að flnna flíkina sem pass-
ar við.
Stílistinn veitir alla almenna
ráðgjöf við heildarútlit og segir
Anna að þaö hafi nokkuð oft
komið fyrir að konan hafi gengið
út sem „ný manneskja." „Það
veitir okkur mikla ánægju að sjá
konuna ganga ánægða út - hún
hefúr kannski breytt alveg um fatastíl
eða fúndið sinn rétta stíl aftur. Það er
nefnilega býsna algengt að konur upp-
götvi eitthvað nýtt þegar þær njóta að-
stoðar. Sumar konur eru vanar að fara
beint í svarta rekkann og veija eitthvað
„öruggt." - en það þarf ekki endilega að
vera sá klæðnaður sem fer konunni
best,“ segir Anna.
Konur á öllum aldri eru velkomnar á stilistastofuna enda
segir Anna versiunina hafa það að markmiði að vera með
fatnað fyrir alla hópa. Stór númer eru líka á sinum stað.
„Við viljum að konur lifi lífinu lifandi og þeim líði vel í
þeim klæðnaði sem þær velja sér. Það er engin spuming að
allar konur geta verið dásamlega fallegar," segir Anna.
Debenhams hefur auk þess tekið upp snyrtivörulínuna
Mac sem nýtur nú gríðarlegra vinsælda erlendis og hefúr að
sögn Önnu verið beðið með eftirvæntingu. Þar geta konur
líka fengið góða ráðgjöf um allt er viðkemur fórðun. í snyrti-
vörudeildinni er að fmna „vin“ sem er snyrtistofa Kanebo
og þar er veitt öll almenn snyrtiþjónusta og húðmeðferðir
fyrir sál og líkama.
Anna Tolier, þjónustustjóri Debenhams, spjallar við viðskiptavin í nýju
stílistastofunni.