Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003
I>V
Fréttir
Bláeygir íslendingar auöveld bráö
útsjónarsamra fjárglæframanna.
Samkvæmt tölum Ríkislögreglustjóra
hafa auðgunarbrot á íslandi verið á
ellefta þúsund á hverju ári, eða hátt í
þrjátíu á dag.
Fjársvjkamál j
Iðngum röðum
Fjárdráttur sem gjaldkeri Lands-
síma íslands hefur játað á sig, og er
að líkindum upp á að minnsta kosti
160 milljónir króna, þykir um margt
með ólíkindum, ekki síst í ljósi mik-
illar og endurtekinnar úttektar á fyr-
irtækinu á umliðnum árum vegna
fyrirhugaðrar sölu ríkisins á sínum
hlut í félaginu. ÖU þessi svik hafa
árum saman farið fram hjá kjömum
endurskoðendum fyrirtækisins,
innri endurskoðun, utanaðkomandi
endurskoðunarfyrirtækjum eins og
PricewaterhouseCoopers ehf. og Rík-
isendurskoðun. í fljótu bragði virðist
þetta mál vera áfellisdómur yfir
þeim sem hafa annast endurskoðun
fyrirtækja á borð við Landssímann.
Annaðhvort hafa þeir ekki unniö
vinnuna sína, sem eflaust hefur þó
kostað háar upphæðir, eða flárdrátt-
urinn hefur verið svo vel falinn í
bókhaldskerfmu að hreina snillinga
hefur þurft til að uppgötva brotið. Ef
svo er má ljóst vera að maðurinn,
sem komst í þá miklu ábyrgöarstöðu
sem aðalgjaldkeri í Landssímanum,
hefði líklega sómt sér vel sem há-
launaöur sérfræöingur við að benda
á slíkar glufur.
Nærri 30 brot á dag
Fjárdrættinum í Landssímanum
er vart á bætandi raunasögu að-
draganda að sölu fyrirtækisins.
Þarna viröist um stórafbrot að
ræða, en er þó alls ekki einsdæmi
í skrautlegri flárdráttarsögu ís-
lenskra fyrirtækja og stofnana.
Samkvæmt tölum Ríkislögreglu-
stjóra hafa auðgunarbrot á Islandi
verið á ellefta þúsund á hverju ári,
eða hátt í 30 á dag. Sum mjög stór
í sniðum en önnur á borð við brot
mannsins sem gripinn var í
Kringlunni með eina dós af síld,
ost og ólífur í dós samtals að and-
virði 837 krónur. Fyrir brotið fékk
hann 30 daga skilorðsbundinn fang-
elsisdóm.
Endurskoðandi ábyrgur
Frægasta flárdráttarsaga hin síð-
ari ár er án efa mál fyrrverandi
þingmanns sem sætir nú refsingu
fyrir margfalt minni sakir en nú
eru sagðar í Landssímamálinu.
Mörg fleiri mál hafa þó komið upp
og má t.d. nefna Natan & Olsen mál
sem komst upp 1996 þar sem gjald-
keri félagsins hafði dregið sér 32
milljónir króna á tímabilinu
1992-1996. Þar höfðu svikin líkt og í
Landssimamálinu farið fram hjá
glöggum augum endurskoðenda
PricewaterhouseCoopers ehf. sem