Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Side 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003
Grindavík
keppm i hveriu orði
Gréta tekur við KR
Gréta María Grétarsdóttir hefur veriö
ráöin þjálfari KR í Intersport-deild
kvenna í körfuknattleik til næstu
tveggja ára. Gréta María, sem hefur
leikið með KR-liðinu síðustu fjögur ár,
tekur við af Ósvaldi Knudsen, sem er á
leið til Bandaríkjanna í nám.
Ólíklegt þykir að Gréta leiki mikið
með liðinu á næstu leiktíð þar sem hún
sleit krossbönd í hné undir lok nýafstað-
ins tímabils.
-vig
1- 0 Gunnar Þór Pétursson (30., skot beint úr aukaspymu eftir að brotið var á Finni).
2- 0 Haukur Ingi Guðnason (51., skot innan teigs eftir sendingu frá Birni Viðari).
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson ......3
Kristján Valdimarsson .... 4
Þórhallur Dan Jóhannsson 4
Valur Fannar Gíslason. ... 4
Gunnar Þór Péturson.....4
Ólafur Ingi Skúlason....3
Finnur Kolbeinsson......4
(71. Jón B. Hermannsson .. 3)
Hrafnkell Helgason .....3
(71. Helgi Valur Danielsson 3)
Björn Viðar Ásbjömsson .. 4
Haukur Ingi Guðnason ... 4
Ólafur Páll Snorrason .... 2
(57. Thedór Óskarsson .... 3)
Dómari: Bragi Bergmann
(4).
Ahorfendur: 1514
Gul sniðld:
Fylkir:
Þórhallur Dan.
Grindavík:
Kekic, Sharpe.
Rauð spjöld:
Ray Jónsson.
Skot (á mark):
8 (4) - 5 (2)
Horn:
0-2
Aukaspyrnur:
13-16
Rangstöóur:
4-4
Varin skot:
Kjartan 2 -
Ólafur 4.
Grindavík (4-3-3)
Ólafur Gottskálksson....3
Óðinn Ámason ...........3
Senisa Kekic ...........3
Ólafur öm Bjarnason .... 4
Gestur Gylfason.........3
Eysteinn Hauksson ......2
(74. Alfreö Jóhannsson ....-)
Guðmundur Bjamason ... 3
Lee Sharpe .............3
Paul McShane ...........2
Óli Stefán Flóventsson .... 1
Ray Jónsson ............2
óaói leiKs
Maður leiksins hjá DVSporti:
Valur Fannar Gíslason, Fylki
Sakna Grétars mikið
Lee Sharpe ógnaði ágætlega í
fyrri hálfleik og dreifði spilinu vel. í
síðari hálfleik fór minna fyrir hon-
um og hann hvarf á köflum. Sharpe
lék nú betur en í fyrsta leiknum en
á samt nokkuð í land. Grindvíking-
ar eru að leika langt undir getu og
verða heldur betur að spýta í lófana
ef þeir ætla sér á annað borð að vera
í toppbaráttunni. Það sem fyrst þarf
að taka til hendinni er hvað sóknina
áhærir. Það vantar allt bit í hana og
alveg ljóst að liðið saknar Grétars
Ólafs Hjartasonar. Það veit enginn
hvað átt hefur fyrr en misst hefur og
þvi fá Grindvíkingar að kynnast
þegar hans nýtur ekki við. Það
mætti að ósekju færa Senisa Kekic
framar á völlinn, þar myndi hann
njóta sín betur en svona aftarlega.
Ólafur Örn Bjarnason komst einna
best frá leiknum hjá Grindvíking-
um.
-JKS
á langt í
land ennþá
Fylkismenn tylltu sér upp að
hliðinni á Valsmönnum i efsta sæt-
inu í Landsbankadeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld þegar liðið sigr-
aði Grindvíkinga, 2-0, í viðureign á
Árbæjarvelli. Hlutskipti þessara liða
er ólík þegar tveimur umferðum er
lokið, Fylkisliðið hefur unnið fyrstu
tvo leikina en Grindvíkingar eru
enn án stiga. Þetta hlýtur að vera
Suðurnesjaliðinu áhyggjuefni en
það er langt frá að leika með þeim
hætti sem búist var við fyrir mótið.
Grindvíkingar hafa aðeins skorað
eitt mark og kom það úr vítaspyrnu
í fyrstu umferð.
Það er alveg ljóst að Bjarni Jó-
hannsson, þjálfari liðsins, hefur
verk að vinna á næstunni. Hann hef-
ur vissulega mannskapinn til staðar
til að rétta skútuna og koma henni
inn á réttar brautir. Það er eins og
það vanti allt sjálfstraust í liðið og
óneitanlega vill leikur þess snúast
um Lee Sharpe þótt þaö hafi ekki
verið með eins áberandi hætti í
þessum leik og þeim fyrsta gegn
Valsmönnum. Einu verða menn aö
gera sér grein fyrir, að einn maður
vinnur ekki leiki, það er liðsheildin
sem leggur grunninn að leiknum og
því verða Grindvíkingar að átta sig
á áður en lengra verður farið inn í
mótið.
Liö Fylkis til alls líklegt
Fylkisliðið er til alls líklegt í sum-
ar. Það er sterkur heildarsvipur á
því og þetta lið getur farið langt. Það
var fátt sem gladdi augað í fyrri
hálfleik í Árbænum í gærkvöld. Áð-
ur en fyrsta markið kom áttu liðin
sitt tækifærið hvort sem hæglega
hefðu getað komið mörk upp úr.
Haukur Ingi Guðnason átti gott skot
úr markteignum en Ólafur Gott-
skálksson varði vel í marki Grind-
víkinga. Skömmu síðar komst
Anthony Ray Jónsson í ákjósanlegt
færi eftir frábæra sendingu Lee
Sharpe inn fyrir vöm Fylkismanna.
Ray hafði ekki heppnina með sér og
skaut yfir markið úr teignum.
Gullmark hjá Gunnari Þór
í næstu sókn komust Fylkismenn
yfir í leiknum og það ekki með
marki af verri endanum. Gunnar
Þór Pétursson framkvæmdi auka-
spyrnu af um 20 metra færi og bolt-
inn söng efst í vinstra horni marks-
ins. Sannkallað glæsilegt mark sem
Ólafur Gottskálksson átti aldrei
möguleika á að verja.
Eftir markið léku Grindvíkingar
ágætlega saman úti á vellinum en
þegar nálgaöist mark Fylkismanna
runnu söknir þeirra út í sandinn.
Vörn Fylkis var föst fyrir og hvergi
veikan blett aö finna í henni.
Þegar sex mínútur vora liðnar af
síðari hálíleik má segja að Haukur
Ingi Guðnason hafi gefið Grindvík-
ingum rothöggið. Hann fékk boltann
á eigin vallarhelmingi og einlék
honum allt inn í vítateig Grindvik-
FylkMrindavík 2-0 (1-0)
Arbæjarvöllur
26. maí 2003 - 2. umferð
inga. Þar lét hann skot ríða af og
skoraði gott.mark fram hjá Ólafi í
markinu. Þarna sýndi Haukur Ingi
enn eina ferðina hve eldsnöggur
hann er og í raun stórhættulegur
hvaða vörn sem er þegar hann nær
sér á skrið.
Eftir þetta mark var fátt sem
gladdi augað. Fylkismenn drógu sig
i fyrstu nokkuð til baka og fyrir vik-
ið fengu Grindvíkingar meira svig-
rúm. Allt kom fyrir ekki og þeir
höfðu ekki erindi sem erfiði því
vörn Fylkis var þétt fyrir og gaf ekk-
ert færi á sér.
Tólf mínútum fyrir leikslok var
Anthony Ray Jónssyni vikið af leik-
velli fyrir að hrinda Kristjáni Valdi-
marssyni varnarmanni. Kristján
braut á Anthony Ray úti á kantin-
um. Sá síðarnefndi brást ókvæða við
og fékk fyrir vikið umsvifalaust að
líta rauða spjaldið hjá Braga Berg-
mann dómara.
Fylkismenn voru stundum hættu-
legir þegar þeir beittu langspyrnum
fram á völlinn á Hauk Inga og Jón
Björgvin Hermannsson var ekki
flarri því að bæta við þriðja mark-
inu en skot hans fór yfir af stuttu
færi.
Valur Fannar Gíslason og Þórhall-
ur Dan Jóhannsson voru traustir í
vörninni hjá Fylki. Helgi Valur Dan-
íelsson kom inn á í síðari hálfleik og
á hann örugglega eftir að styrkja lið-
ið sem var þó ekki árennilegt fyrir.
Kristján Valdimarsson skilaði
einnig sínu vel sem og Gunnar Þór
Pétursson. Haukur Ingi Guðnason
skilaði sinni vinnu með sóma.
Fbp ekki fp
- segir Aöalsteinn Víglundsson, þjálfari
„Það er ekki hægt að vera sátt-
ari og ég get augljóslega ekki far-
ið fram á meira en sex stig úr
tveimur fyrstu leikjunum," sagði
Aðalsteinn Víglundsson, léttur i
lundu, við DV-Sport eftir leikinn.
Hann kvaðst
hafa kortlagt
Grindavíkur-
liðið aö mörgu
leyti fyrir leik-
inn í gær-
kvöld.
„Það ein-
kennir svolítið
Grindavíkur-
liðið að þeir
halda boltan-
um vel innan
liðsins en í dag skorti hug-
myndaflugið í sóknarleiknum. í
raun og veru fannst mér þeir
aldrei ná að ógna markinu að
neinu ráði. Grindavík á mikið
inni og þegar liðið smellur í gang
eins og þeir gerðu t.d. í fyrra þá
er erfitt að eiga við þá.
En þeir hafa sina galla og við
nýttum okkur þá i kvöld,“ sagði
Aðalsteinn um leið og hann lýsti
yfir ánægju sinni með varnarleik
Fylkis.
„Við spilum ekki jafn vel á
móti Fram en Grindavík er öðru-
vísi andstæðingar. Auk þess eru
Finnur (Kolbeinsson) og Hrafn-
kell (Helgason) ekki komnir í sitt
allra besta form og þá vantaði
hlaupadrottninguna á miðjuna,"
sagði Aðalsteinn glottandi og átti
þá við Sverri Sverrisson sem
eignaðist son á meðan á leiknum
stóð.
Er meö góðan hóp
Þrátt fyrir að Sverrir hafi ver-
ið fjarverandi er hópurinn ekki
verri en svo að menn eins og ný-
liðinn Helgi Valur Daníelsson
verða að gera sér sæti á vara-
mannabekknum að góðu.
„Ég er með mjög breiðan hóp
og geri mér fyllilega grein fyrir
því. Ég er í þeirri stöðu að geta
sett inn á menn sem leysa hlut-
verkin jafn vel og þeir sem voru
inn á fyrir. En allir léku vel i dag
og þegar menn spila vel þá halda
þeir stöðu sinni - það er ekki
spurning," sagði Aðalsteinn.
Haukur Ingi Guönason byrjar
vel og svo viröist sem hraöi hans
henti ykkar leikstíl fullkomlega?
Hann gerir það vissulega og er
■5m'mi
Aðalsteinn
Víglundsson.