Dagblaðið - 04.11.1975, Page 9

Dagblaðið - 04.11.1975, Page 9
Pagblaðiö. Þriöjudagur 4. nóvember 1975. Sprengingar októbermánaðar urðu einnig i Vientiane, höfuð- borg Laos þar sem að minnsta kosti 20 manns særðust. í Pesh- awar i Pakistan særðust fjórir i sprengingu á rútubilastöð. 1 Eþiópiu var bardögum stjórnarhersins og aðskilnaðar- sinna Eritreumanna haldið áfr.am. Stjórnarherinn gerði loftárásir á þorp og akra i þeirri von að hungur neyddi upp- reisnarmenn til uppgjafar. Svo fór þó ekki, langt i frá. Aðskilnaðarsinnar segjast hafa myrt að minnsta kosti fimmtán embættismenn sljórnarinnar á götum stærstu borgar Eritreu. í Argentinu átti sér stað eitt- hvert mesta blóðbað mánaðar- ins. t einum bardaga Montonero-skæruliða og stjórnarhermanna og lögreglu féllu ekki færri en 90 manns. Stjórnin shefur leyft hernum að hefja algjört strið gegn vinstrisinnuðum skæruliðum, en eftir þvi sem leið á mánuðinn fjölgaði pólitiskum morðum og mannránum án þess að nokkuð fengist að gert. Filippseyjar fóru ekki var- hluta af ofbeldinu. Einn helzti ráðgjafi Marcosar forseta var skotinn til bana á skrifstofu sinni. í Japan lét ungur stúdent lifið og sjö særðust i átökum tveggja róttækra stjórnmála- hópa. Lögreglu- og hermenn i Mexikó skutu 6 eða 7 manns til bana og særðu 14 þegar 400 landlausir bændur voru bornir út af yfirgefnum búgarði i héraðinu Sinaloa i norðurhluta landsins. Listaheimurinn fékk einnig að kenna á hryðjuverkunum. 1 Paris sprakk bensinsprengja utan við heimili maddömu Francoise Mallet-Joris, félaga i nefndinni er velur árlegan þega Goncourt-verðlaunanna,virtustu bókmenntaverðlauna Frakk- lands. Málningu var gusað á annan nefndarmann. Járnbrautar- og flugslys tóku sinn toll mannslifa i október 1975. 1 Bóliviu létu 67 manns lifið þegar herflugvél flaug á fjall. Sjötiu og fjórir létu lifið þegar júgóslavnesk flugvél með 115 manns innanborðs flaug á hæð nærri Prag. Og i Mexikó City létu 26 manns lifið og 60 særðust er járnbrautarlestir skullu saman á neðanjarðarstöð. Og hér á Islandi hafa jafn- margir látizt i umferðarslysum það sem af er árinu og allt árið i fyrra. GJÖF FRÚ MARGRÉTAR 1 þvi sýningaflóði sem nú gengur yfir hafa margir sjálf- sagt gleymt að lita inn i Lista- safn ASl við Laugaveg, þótt i al- faraleið sé. Þar stendur yfir sýning á listaverkagjöf Margrétar Jónsdóttur, ekkju Þórbergs Þórðarsonar, en safn- inu gaf hún samtals 37 verk eftir alla helstu listamenn þjóðarinn- ar. Ekki man ég eftir þvi að hafa séð margar tilvitnanir i myndlist i verkum Þórbergs, en frú Margrét meira en bætir upp þá ávöntun. 1 35 ár hefur hún með smekkvisi og afborgunum komið sér upp safni málverka, kritarmynda og tússteikninga sem sennilega á sér ekki marga lika hér á landi. Eins og vænta má eru þau flest litil um sig og viðráðanleg, en samt eru hér inn á milli stór verk og dýr sem eflaust hafa sett drjúgt mark á pyngju frú Margrétar. Flestar myndirnar hér eru eftir Benedikt Gunnarsson, bæði gamlar og nýjar, sex að tölu. Undirstrika þær skýrt hversu tæknilega öruggur Benedikt hefur ávallt verið, einkanlega i litameðferð sinni. Þetta öryggi hefur einstaka sinnum leitt hann út i yfirborðskennd flott- heit, — en frú Margrét hefur varast myndir af þvi tagi. Siðan eru hér fjórar myndir á mann, eftir þau Einar G. Baldvinsson, Jóhann Briem og Ninu Tryggvadóttur. Gimsteinar Nínu Að öðrum ólöstuðum vil ég meina að myndir Ninu séu gim- steinarnir i safni frú Margrétar. Arið 1940 kaupir hún fyrsta mál- verkið eftir hana, „Uppstilling” sem gert er af formfestu en e.t.v. of mikilli byrjandastifni. Næst kaupir frú Margrét verk Nina Tryggvadóttir — „Málverk” (nr. 28). eftir Ninu árið 1942, „Hús i Reykjavik”, sömuleiðis gert af miklu öryggi en kannski dálitið þyrrkingslegt i lit. Svo kemur önnur uppstilling 1946, og þá er Nina búin að hrista af sér bönd strendingsmyndskipunar og vinnur hratt með frjálslegum súrreölskum formum. Nýjasta verk Ninu i eigu Margrétar, „Málverk”, er svo bezta verkið á þessari sýningu, og verður sú fullyrðing min vart rökstudd svo vel fari. t þessari mynd fara saman sterk formskipun og fin- gerð áferð formanna, við- kvæmnislegir litir og hörkuleg- ir, — i stuttu máli: persóna listakonunnar uppmáluð, og samt finnum við áhorfendur hvernig myndin snertir okkur. inn að beini. Myndir þær eftir Einar G. Baldvinsson, sem frú Margrét eignaðisf, eru margar keimlikar að efni og mynd- skipan, bátar á strönd, séðir stutt að, oft frá kröppu sjón- horni. Óneitanlega minna þær á myndir Snorra Arinbjarnar, en þó er i litum Einars einhver hrjúf expressjónisk dulúð sem persónuleg er. Misjafn Jóhann Eftir Jóhann Briem eignaðist frú Margrét bæði góðar myndir og slæmar. Mynd hans „Frá Jerúsalem” býr yfir draum- kenndri kynngi og rómantik, „Forum Romanum” er aftur á móti yfirmáta veik i hugsun og útfærslu, teikningin er stirð og málunin þurrleg. „Sumarleyfi” Jóhanns frá 1944 er einnig mis- heppnað verk, dálitið stirðlegur primitifismi þess er aldrei sannfærandi. „Nýrúið lamb” er hinsvegar mjög einkennandi fyrir siðari verk Jóhanns, dýra- mótif séð knappt, formin flöt en iðandi af lifi i sterkum sam- hljómum litanna. Eirikur Smith á hérna tvær myndir, gamla „Vormynd” og siðan „Fantasiu”, traustlega gerða en mjög i anda Ninu. Guðmunda Andrésdóttir á oliumálverk er nefnist „Vefnað- ur”, i stil dönsku listakonunnar Else Alfehlt eins og vænta mátti, og Gunnlaugur Scheving á hér hrifandi „Landslag i Grindavik”, Ijómandi i litum og þykkt málaða. Frú Margrét hef- ur einnig fest kaup á „Mál- verki” eftir Hafstein Austmann, i hinum flotta og áreynslulausa stil hans. Eftir Hörð Ágústsson er hérna litil og þunglyndisleg tússmynd, „Taumar” frá 1963, og Jóhannes Jóhannesson á hér forvitnilega afstraktmynd frá 1949, þar sem hann er að fikra sig inn i lögmál hins óhlut- bundna. Tvær litlar og skemmtilegar fantasiumyndir eftir Kristján Daviðsson hefur frú Margrét sömuleiðis eignast, auk kritarmyndar eftir Sigurð Sigurðsson frá 1952, fast og markvisst teiknaða. 9 Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Smekkskemmandi Oft hafa sýningar að Kjar- valsstöðum verið slæmar þetta árið, en aldrei hafa þær verið eins nálægt þvi að vera smekk- skemmandi og sýning Höllu Haraldsdóttur. Hverja sögu verður að segja eins og hún er: hér er á ferðinni algjör amatör sem hvergi i Evrópu mundi fá inni i húsi á borð við Kjarvals- staði fyrir sýningu sina. Þar sem einhverja myndhugsun er að finna fellur hún marflöt i grátkonuviðkvæmni myndefnis og lita, — en oftast er listakonan sjálfri sér samkvæm að þvi leyti að saman fer i myndum hennar algjört skilningsleysi á eðli og hlutverki lita, skortur á list- rænni myndhugsun og velgjuleg viðkvæmni. Gunnlaugur Sclieving „Landslag í Grindavik” (16) Ljóðrænn Svavar Myndin „Hrynjandi björg” eftir Svavar Guðnason frá 1945 er að mörgu merkileg. Hún er óvenjulega þunnt máluð, útlinur eru ekki sterkar heldur renna saman við massann, út i eina alfsherjar hreyfingu á ská yfir myndflötinn. Sömuleiðis eru lit- ir Svavars óvenju ljóðrænir og samstilltir. Hér eru myndir frá þrem skeiðum á listferli Valtýs Pét- urssonar. Fyrst er uppstilling, liklega frá árunum eftir 1950, þar sem geómetriu er vel og varfærnislega beitt i þeim til- gangi að draga fram massa og samhljóm litatóna. Siðan kemur litið „Málverk” frá 1961, þykkt málað en með nokkur'ri tilfinn- ingu fyrir lit. Siðast er svo mál- verk frá 1973 af landslagi, þar sem bæði myndbygging og lita- meðferð Valtýs eru orðin harla stefnulaus. Forvitnileg er einnig litil mynd eftir Þorvald Skúla- son hér, „Danskt landslag”, lik- lega frá þvi 1947—50. Þar er Þorvaldur undir áhrifum þess sem var að gerast i Evrópu eftir heimsstyrjöldina siðari, aðal- lega Kóbra-listinni, og er ekki laust við að i mynd þessari kenni áhrifa Svavars Guðnason- ar framar annarra. aðallega i vissum sveiglinum. Siðan rekur Gylfi Gislason lestina með blek- teikningu af „1. mai”, — og ekki má svo gleyma útsaumi eftir gefandann sjálfan, frú Margréti. Þessi listaverkagjöf hennar er talandi dæmi um það hvernig einstaklingurinn, fjáður eða litt fjáður, getur stiklað yfir það smekkleysi, sem viðskipta- þjóðfélag einatt heldur að al- menningi, og komið sér upp safni litilla listaverka, sér og öðrum til langvarandi ánægju. Þessara verka hefur frú Margrét notið og nú vill hún að aðrir fái einnig notið þeirra. Þessi sýning á listaverkagjöf Margrétar Jónsdóttur i lista- safni ASl verður opin fram að næstu helgi. komið uppgjör við siðræn við- horf nútimans. Undirritaður er Bahá’i og framansagt er inntakið i félags- legri afstöðu Bahá’ia. Þar sem heimurinn umhverfis okkur er nýr og vandamál hans ný af nál- inni, verða þau aðeins leyst með nýjum viðhorfum hvers ein- staklings i samfélaginu. Aukin tæknivæðing, brellur hagfræð- inga og stéttaátök munu hafa svipuð áhrif á þessi vandamál og giktartöflur á sjúkling, sem þjáist af geðklofa. Vandinn verður á okkar timum aðeins leystur með gagnkvæmu trausti og heilshugar sáttum einstakl- inga, stétta og þjóðfélaga. Ef allir menn gerðu skyldu sina með þessu hugarfari mundu vandamálin hverfa af sjálfu sér og enginn framar minnast þeirra. Samkvæmt þessum skilningi verður trú, sem að minu viti er undirstaða þessa Kjallarinn Eðvarð T. Jónsson lifsviðhorfs, ekki með neinu móti aðskiíin þjóðfélagslegum veruleika. Veruleiki þessara tima er einn og óskiptur, sam- mannlegur og alþjóðlegur. Deildaskipting hans i trú annars vegar og verslegt bjástur hins vegar er óhugsandi. Trúin tjáir sig framar öllu i verki i félags- legu samhengi. Það merkir blátt áfram, að trú er þjónusta eins manns við aðra menn sakir þess Guðs, sem hefur skapað þá alla. Þetta er hinn sameiginlegi og sameinandi kjarni trúar- bragðanna. Hinar nýju aðstæð- ur mannkyns leggja þvi hverj- um og einum þá skyldu á herðar að þjóna meðbræðrum sinum, þjóð og mannkyni ofar allri kröfu og handan allrar hlut- drægni. Jafnframt verður að leggja á hilluna hvers kyns karp og úlfúð, sem undantekningar- laust byggjast annaðhvort á skilningsleysi á mannlegri sam- ábyrgð eða þeirri tilhneigingu, sem er aðal dýra fremur en manna, að hugsa fyrst og fremst um eigin hag. Þvi þegar öll kurl koma til grafar, eru hagsmunir allra manna hinir sömu og flokkadrættir geta að- eins orðið til þess að skaða sam- eiginlega hagsmuni allra. Trú- uðum mönnum ætti að vera ein- ing af þessu tagi hugleikin um- fram aðra menn, með þvi þeim er ljóst að illdeilur og fjand- skapur skaða það sem dýrmæt- ast er: ódauðlega sál þeirra. Deilur, og alveg sérstaklega deilur um trúmál, hafa aldrei leitt neitt i ljós, sizt af öllu sann- leikann. Nærtækasta dæmið um hina hættulegu sundrung, sem er sjúkdómseinkenni þessara tima, er verðbólgan. Verðbólgu- hugarfarið hefur að engu þann sannleika, að maðurinn er and- leg þroskavera, sem stefnir að andlegu takmarki: afhjúpun og uppfyllingu þess sem i honum býr. öll vandamál hans, sem einhverju skipta, koma þvi að innan, einnig efnahagsvandinn. Lausn hans gæti falizt i þvi að gera jafnvel strangari kröfur um skyldurækni og þjónustu- lund (sem ekkert á skylt við þjónkuneða þrælslund) til sjálfs sin en maður gerir til annarra. A okkar timum mega þessar kröfur ekki taka mið af einka- hagsmunum heldur fyrst og fremst þvi sem gagnar heild- inni. Eins og fyrr segir telja Bahá’iar að trú sé framar öllu þjónusta við mannkyn og verði þvi aldrei aðskilin þjóðfélags- legum veruleika. Þar sem einn Guð, ofar nöfnum og skilgrein- ingum, hefur skapað alla menn. eru allir menn ekki aðeins jafnir heldur er andlegur veruleiki þeirra einn og hinn sami. Um leið og þetta rennur upp fyrir mönnum og þeir gera sér ljósar þærskyldur, sem þeirhafa hver við annan, mun dagur einingar og friðar renna yfir heims- byggðina. Á þeim degi og i þess- um skilningi mun Guð rikja með mönnum á þeirra eigin jörð.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.