Dagblaðið - 05.04.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 05.04.1976, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. APRlL 1976. Hjónarúm í úrvali m/dýnum frá kr. 37.750,- Hjónarúm í amerískum stíl, m/bólstrudum göflum, frá kr. 62.000,- Svefnbekkir m/springdýnum frá kr. 26.700,- Springdýnur í öllum stærdum og stífleikum. Úrval af rúmteppum 'Ml'MS Spvingdýnur Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Simi 53044. Sjúkraþjálfi Sjúkraþjálfi óskast aö heilsuhæli NLFÍ Hveragerði. Laun eftir sam- komulagi. íbúð getur fylgt. Upplýsingar gefa yfirlæknir og for- stöðumaður. Sími 99-4201. Atvinna Óskum eftir ad ráda strax lagtæka, duglega konu, helzt vana strauingum og frágangi í fataframleidslu. Verksmidjan Max Skúlagötu 51 Sími 11152. 25050 Getum tekið nokkra bila i afgreiðslu Jimmy Carter í Washington: Carter hefur veríð óþreytandi i kosningabaráttunni og vill að á sig sé litið sem talsmann mannsins á götunni. Hann hefur undanfaríð sópað að sér fylgi, en samt er búizt við, að róðurínn geti reynzt honum þungur í New York. „ÉG HLAKKA TIL AÐ BÚA HÉR..." Jimmy Carter, sem talinn er líklegastur frambjóðenda til þess að hljóta útnefningu sem fram- bjóðandi Demókrataflokksins í forsetakosningunum, heimsótti Washington í gær og skoðaði m.a. Hvíta húsið, þar sem hann hefur hugsað sér að búa í framtíðinni. Hann gekk með dóttur sinni um húsið og sýndi henni minnismerk- ið um George Washington. Litlu munaði að hann rækist á. Ford forseta, sem var að koma úr kirkju. Forsetanum var ekki skemmt og Carter sagði síðar, að hann hefði ekki haft hugmynd um, að forsetinn hefði verið í kirkjunni þegar þau feðgin voru að skoða hana. Þegar þau voru búin að skoða Hvita húsið sagði hann: ,,Ég hlakka til að búa hér.” Carter flaug síðan til Wisconsin, þar sem búizt er við að hann hljóti meirihluta atkvæða kjörmanna, næstur á undan Udall sem staðið hefur sig vel að undan- förnu. Lítið hefur borið á Jack- son, en hann hefur aðallega beint spjótum sinum að meirihluta íbúa New York borgar, sem eru Gyð- ingar. Vonast hann til þess að hljóta a.m.k. annað sæti í kosning- um þar. Stöðugar óeirðir á Spáni: BÚIZT VIÐ UMFANGSMIKLUM VERKFÖLLUM íKATALÓNÍU Þúsundir vinstri sinnaðra stjórnarandstæðinga hafa hótað verkföllum um gjörvalla Katalóníu í dag eftir mótmæla- aðgerðir nú um helgina til þess að leggja áherzlu á kröfur um aukið stjórnmálalegt og per- sónufrelsi. Þing Katalóníu, samtök vinstri manna allt frá harðlínu öflum til vinstri til hægfara rmðmanna hvatti verkafólk til þess að mæta ekki í vinnu í verksmiðjum og skrifstofum í þessu mikla iðnaðarhéraði. I óeirðum, sem urðu í Barce- lóna nú um helgina, voru nokkrir handteknir og lögregl- an notaði gúmmíkylfur og táragas til þess að dreifa mannfjöldanum. Fjórir leiðtogar stjórnarand- stöðunnar, sem handteknir voru í síðustu viku í Madrid, eru enn í fangelsi, þar sem þeir bíða dóms fyrir tilraun til þess að breyta ríkisstjórninni og eiga yfir höfði sér þunga refsingu fyrir vikið. Sendibílastöðin hf. Borgartúni 21, sími 25050 'ifatóúsuvi passaMyndir t it'u*ÞJ/i t/zisi i - • nu/n* 7 kJ/rí&LnL OCZ/Ú- .0kóiu, 5/j, o./l• rífömynda<$tch<a' Amator LAUCAVEGI R C ' Úrvals k jötvöru r z5úfV og þjönusta *<venf) ÁVALLT EITTHVAÐ V GOTT í MATINN Stigahlíb 45-47 Sími 35645 Nýr forsœtisráðherra í Bretlandi: Caflaghan heimsœkir Elísabelv í dag Elisabet Bretadrottning mun afhenda nýjum forsætisráðherra embættisskjöl í dág og eru menn ekki í neinum vafa um að sa verður James Callaghan. Búizt er við að hann vinni síðustu atkvæðagreiðsluna af þrem, sem nauðsynlegt hefur verið að hafa vegna fjölda fram- bjóðenda til starfans. Það eru þingmenn flokksins, sem kjósa formann flokksins, sem jafnframt er forsætisráðherra. Er þúizt við því, að Callaghan fái allt að tíu atkvæðum meira en Michael Foot, sem þó fékk 133 atkvæði í síðustu atkvæðagreiðslu. Callaghan, sem er yfirlýstur miómaður, fékk 141 atkvæði og fær að líkindum öll atkvæðin 38, sem greidd voru Denis Healey. Samkvæmt reglum fellur sá út, er fæst fær atkvæðin. 1 hópi stuðningsmanna Foot hefur nú verið viðurkennt, að hann geti ekki farið með sigur af hólmi, en Foot, sem er 62 ára og atvinnumálaráðherra, hefur grætt mikið á þátttöku sinni í kapphlaupinu og styrkt stöðu vinstri aflanna innan flokksins. Sagt er að Callaghan muni í ávarpi til brezku þjóðarinnar hvetja til samstöðu á erfiðum tímum efnahagskreppu og i nýju fjárlagafrumvarpi, sem lagt verður fram á morgun, boðar hann töluverðar skattalækkanir, en í staðinn kemur loforð verka- lýðshreyfingarinnar um minni kauphækkanir á næstu árurn. Forsœtisráðherra Thailands fallinn Kukrit Pramoj, forsætisráð- herra Thailands, tapaði í öðrum almennu kosningunum, sem haidnar hafa verið i iandinu undanfarna fimmtán mánuði. í tilk.vnningu kjörstjórnar um úrslitin sagði að forsætisráðherr- ann, 64 ára, hafi verið í þriðja sæti i kjördæmí sínu (Norður- Bangkok) i kosningunum í gær. 1 fyrsta og öðru sæti voru fram- bjóðendur Demókrataflokksins, andstöði^flokks hans. Þar sem Pramoj á nú ekki lengur rétt til þingsetu, er ekki hægt að skipa hann forsætisráð- herra. Demókrataflokkurinn sigraði i kosningunum víðast hvar um landið. Leiðtogi þeirra er Seni, eldri bróðir forsætisráðherrans. Af fimmtíu og fjórunt kjördæm- uni. þar sem úrslit lágu fyrir í ntorgun. höföu demókratarnir sigrað í 34.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.