Dagblaðið - 03.09.1976, Side 23
DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976.
23
Sjónvarp
i
Útvarp
Utvarp
Föstudagur
3. september
12.25 Veðurfregr.ir og fréttir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Við vinnuna: Tðnleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Leikir í fjörunni"
eftir Jón Óskar. Höfundurles (7).
15.00 Miödegistónleikar.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom.
17.30 Ferðaþættir eftir Bjarna Sæmunds-
son fiskifræðing. Óskar Ingimarsson
les úr bókinni „Um láð og lög“ (1).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson
flytur þáttinn.
19.40 íþróttir. Umsjón: Jón Ásgeirsson.
20.00 Sinfónískir tónleikar frá svissneska
útvaroinu.
20.40 Félög bókagerðarmanna og konur í
þeirra hópi. Þórunn Magnúsdóttir flyt-
ur fyrra erindi sitt.
21.05 Hljómskálatónlist frá útvarpinu í
Stuttgart. Guðmundur Gilsson kynnir.
21.30 Útvarpssagan: „Öxin" eftir Mihail
Sadoveneu. Dagur Þorleifsson les þýð-
ingu sina (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: Ævisaga
Sigurðar Ingjaldssonar á Balaskarði.
Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur
les (5).
22.40 Áfangar. Tónlistarþáttur I umsjá
Ásmundar Jónssonar og Guðna
Rúnars Agnarssonar.
23.30 Fréttir.Dagskrárlok.
Sjónvarp i kvöld kl. 21,30:
R’itsljóri ó í hðggi við mcrfíuforíngja
Síðustu forvöð nefnist
bíómyndin sem er á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld kl. 21.30.
Þetta er bandarísk mynd fra
árinu 1952 og fara Humphrey
Bogart, Kim Hunter, Ethel
Barrymore og Ed Begley með
aðalhlutverkin.
í kvikmyndabiblíunni okkar
fær þessi mynd þrjar stjörnur
og þar segir að þetta sé átaka-
mikil mynd sem gerist á dag-
blaði. Humphrey Bogart fer vel
með hlutverk ritstjórans, sem á
í höggi við harðsvíraða mafíu-
foringja, sem svífast einskis.
Hann þarf einnig að reyna að
koma i veg fyrir að eigandi
blaðsins, sem er einnig vel
leikinn af Ethel Barrymore,
gefi allt upp á bátinn. Lokið er
sérstöku lofsorði á samleik
Humphreys og Barrymore og
þess getið að illa sé farið með
hæfileika Kim Hunter að
„eyða“ henni í hlutverk fyrr-
verandi eiginkonu Humphrey
Bogarts.
Þýðandi myndarinnar er Jón
Skaptason og sýningartími er
ein klukkustund og tuttugu og
fimm minútur.
-A.Bj.
Jim Backus og Humphrey Bogart í hlutverkum sínum í bíómynd kvöldslns.
Sjónvarp kl. 20,40: Fjallagóríllan
Fjallagórillan er seintekin
„Adrien Deschryver var
bóndi og veiðimaður í Zaire
áður en borgarastyrjöldin
brauzt út,“ sagði Björn Baldurs-
son sem er þýðandi og þulur
heimildarmyndarinnar um
fjallagórilluna sem sýnd verður
í sjónvarpinu í kvöld.
Deschryver var af belgískum
ættum.
Er friður komst á árið 1965
gerðist hann þjóðgarðsvörður
við þjóðgarð í Zaire sem heitir
Kahuzi-Biega. Deschryver
hefur lengi haft sérstakt dálæti
á fjallagórillum. Hann og menn
hans gæta þjóðgarðsisns mjög
vel en þarna er mikið um veiði-
þjófa og bændurnir umhverfis
garðinn stelast til að höggva
skóginn til að stækka land sitt.
Deschryver vinnur að því að fá
þjóðgarðinn stækkaðan. Og eitt
af þeim verkefnum sem hann
hefur með höndum er að rann-
saka skógana, en þarna eru víð-
áttumiklir skógar sem eru að
miklu leyti ókannaðir. Einnig
vinnur hann að því að telja
apana.
Deschryver gerði mjög at-
hyglisverða tilraun með
munaðarlausan apaunga. Hann
reyndi að koma honum í fóstur
hjá apafjölskyldu. Tilraunin
sjálf mistókst og kennir hann um
að þá gengu í garð mestu rign-
ingar og kuldar I manna
minnum á þessum slóðum og
apaunginn dó úr kulda og vos-
búð. Ef eðlilegt árferði hefði
verið telur Deschryver að þetta
hefði tekizt.
Hann hefur komizt í mjög
náin kynni við apafjölskyldu
eina. Það tók hann fjögur ár að
komast í samband við hana.
Hann getur verið hjá henni
meðan hún matast. Hann notar
sína aðferð við það. Hann
þykist borða laufblöð og annað
góðgæti og vita dýrin þá að
hann fer með friði. — KL
4
Fjallagórillan er stórt og stæði-
legt dýr, en þrátt fyrir ófrýni-
legt útlit er hún ekki hættuleg
nema á hana sé ráðizt.
Sjónvarp
Föstudagur
3. september
20.00 Fréttir og veflur.
20.30 Auglýsingar og dagskrái .
20.40 Fjallagóríllan. Hátt uppi í fjöllum
Zaíre-ríkis í Mið-Afríku er apategund,
sem hætt er við að deyi bráðlega út af
manna völdum. Einn maður, Adrien
Deschryver, berst þó fyrir þvi, að gór-
illunni verði sköpuð fullnægjandi lífs-
skilyrði. í þessari bresku heimilda-
mynd er lýst lifnaðarháttum górill-
unnar og vinsamlegum samskiptum
manns og apa. Þýðandi og þulur Björn
Baldursson.
21.30 SíAustu forvöfl. (Deadline l’.S.A.)
Bandarisk bíómynd frá árinu 1952.
Aðalhlutverk Humphrey Bogart, Kim
Hunter, Ethel Barrymore og Ed
Begley. Eigendur dagblaðs nokkurs
selja það keppinautum sinum. Rit-
stjórinn reynir að koma í veg fyrir
sölu og gefur blaðið út, meðan málið
fer fyrir rétt. Samtímis þessum erfið-
leikum er ritstjórinn að fletta ofan af
ferli mafíuforingja, sem leikið hefur
einn blaðamanninn illa. Þýðandi Jón
Skaptason.
22.55 Dagskráriok.
nýtt í hverri Viku
- Sagt fró brúðkaupi ó ótjóndu öld. — Ástkona Paul Gettys segir fró
IVlummi króna, framhaldssaga fyrir börn. — Ég hef verið nógu lengi stjarna
ildhúsi Vikunnar.