Dagblaðið - 03.09.1976, Síða 24
Þörungavinnslan þarf
fullt vatnsmagn þrótt
fyrír hálf afköst
— vatnið af og til vanýtt og hleypt út allt að 60 stiga heitt
* '
Frekari
heifavatns-
boranir á
Reykhólum
á nœstunni:
„Þörungavinnslan krefur
okkur um frekari boranir eftir
heitu vatni, enda er Orkustofn-
un ætlað að sjá verksmðjunni
fyrir heitu vatni, og mun vænt-
anlega verða borað þar frekar á
fyrirfram ákveðnum stað á
næstunni,“ sagði Karl Ragnars,
deildarstjóri vinnslutækni-
deildar Orkustofnunar í viðtali
við DB í gær.
Hann sagði að verksmiðjan
hefði upphaflega farið fram á
45 sekúndulitra vatnsmagn
rniðað við full afköst, og hefðu
tvær fyrstu holurnar að Reyk-
hólum í upphafi skilað um það
bil því magni. Síðan hefur
magni úr holunum dvínað
niður i 30 sekúndulítra, sem
Karl sagði ekki óalgengt á hita-
svæðum utan gosbeltisins. Þá
var það tekið til bragðs nú í
sumar að koma fyrir dælu í
annarri holunni og safna vatni
úr hverum til að bæta skilyrði
verksmiðjunnar.
Karl var spurður hvernig
vera mætti að verksmiðjan
þyrfti fullt vatnsmagn en fyrir-
séð væri að hún myndi ekki
framleiða nema í mesta lagi
helming afkastagetunnar í ár,
m.a. vegna erfiðleika við hrá-
efnisöflun og einnig vatnsöfl-
un, sem forráðamenn verk-
smiðjunnar bera við þótt vatn-
inu sé veitt í sjóinn allt að 60
stiga heitu.
Hann benti á að það væri
matsatriði hversu heitu ætti að
veita vatninu út, með því að
veita því heitara út, gengi þang-
þurrkunin hraðar. en á móti
eyddist meira vatn. Væri það
verksmiðjustjórnarinnar að
svara til um það. Þá benti hann
á að um væri að ræða tilrauna-
vinnslu enn sem komið væri og
því ekki hægt að tala um
stöðugleika í vinnslu verk-
smiðjunnar. Þannig er
stundum öllu sjálfrennandi
vatni frá holunum hent, þegar
ekki er unnið að þurrkun, en
svo kæmu dagar þegar núver-
andi vatnsmagn dygði ekki.
Hann vísaði enn til verksmiðju-
stjórnarinnar er hann var
spurður hvort ekki mætti jafna
þurrkunina svo ekki væri
vatnsskortur einn daginn og
vatninu hent hinn daginn.
Blaðið reyndi án árangurs að
ná i Vilhjálm Lúðvíksson,
stjórnarformann Þörunga-
vinnslunnar, í gær.
Friðrik og
Timman tefldu
ekki ó
tvœr hœttur
— Timman nú hœstur
eftir jafntefli þeirra
Timman og Friðrik tefldu ekki
á tvær hættur í skák sinni á
Reykjavíkurmótinu í gær og lauk
henni því að vonum með jafntefli,
þótt sumir teldu að Friðrik hefði
hugsanlega ívið betri stöðu. Hann
hætti þó ekki á að tefla skákina til
sigurs. Biðu margir með eftir-
væntingu eftir þessari skák
mótsins, eins og menn kölluðu
hana fyrir, enda voru þar á
ferðinni hæstu mennirnir.
Onnur úrslit urðu að Najdorf
og Björn Þorsteinsson gerðu
jafntefli. Jafntefli varð hjá
Tukmakov og Antoshsin,
sömuleiðis hjá Hauki
Angantýssyni og Guðmundi
Sigurjónssyni, og Vukcevich vann
Margeir Pétursson. Eftirtaldir
gerðu jafntefli: Helgi Ölafsson og
Matera, Gunnar Gunnarsson og
Keene og Ingi R. Jóhannsson og
Westerinen.
Athygli vakti hversu Rússarnir
Tukmakov og Antoshin voru
fljótir að semja um jafntefli
átakalaust og sýndist sumum sem
þaðhefðiverið fyrirfram ákveðið.
Timman er nú efstur með sex
vinninga og biðskák, Friðrik
næstur með sex vinninga og
Tukmakov þriðji með fimm og
hálfan vinning.
Af skákum, sem tefldar verða
kl. 2 á morgun má nefna að
Guðmundur og Friðrik tefla,
Antoshin og Helgi og Timman og
Naidorf. Þessi umferð var
langfjölsóttust hingað til.
-G.S.
Hér svífur Herbert vængjum þöndum hátt yfir vinnubúðunum í Kröflu. Farartæki haits vekur óhemju
forvitni hvar sem hann fer.
Kröflu
Fljúgandi verktaki við
— svífur í svifdreka yfir svœðið
Það fljúga fleiri eftir
heyrninni en leðurblökurnar
og þannig segist t.d. Herbert
Hansen, einn verktakanna við
Kröflu, fljúga dreka sínum að
verulegu leyti eftir heyrninni,
en með því að hlusta stöðugt á
slátt dúksins í drekanum segist
hann átta sig á hvernig svif-
hornið sé.
Herbert sagðist, í viðtali við
DB í gær, vera búinn að vinna
við Kröflu síðan ’74 og hefði
honum endilega fundizt sig
vanta einhverja tilbreytingu
þegar á leið. Fékk hann þá
hugmynd að fá sér svifdreka og
keypti hann frá Hálfdáni
Ingólfssyni á ísafirði, en hann
er brautryðjandi í svifdreka-
flugi hér og flytur þess háttar
tæki inn.
Eftir að hafa lært lítillega
hjá Hálfdáni fór Herbert með
drekann að Kröflu og með
aðstoð tímarita um drekaflug
hefur hann nú þreifað sig
áfram og flýgur hvað eftir
annað þegar rétt viðrar til þess.
Hann hefur mest náð 115
metra hæð yfir jörðu, hefur
flogið 24 sinnum og flugtíminn
samanlagður um hálftími, enda
eru drekaflug yfirleitt stutt hjá
byrjendum.
I þess konar flugi er talað um
fjögur stig eftir getu og taldi
Herbert sig vera kominn í
annað stig.
Hann sagði að nú væri talið
að um 64 þúsund manns stund-
uðu þessa íþrótt í heiminum,
en hún er upprunnin í Flórída.
Sagði hann slys fátið, þau yrðu
helzt hjá byrjendum, sem gerðu
einhver grundvallarmistök
eða hjá ofurhugum, sem ætluðu
sér of mikið og breyttu jafnvei
drekunum og riðluðu flugeigin-
leikum þeirra um leið.
Undirstöðuna að þessu flugi
sagði hann vera lærdóm á
uppstreymi og hegðun vinda á
láglendi Einnig að gera sér
sem gleggsta grein fyrir öllum
aðstæðum og haga fluginu eftir
því. Tryggvi Hansen, bróðir
Herberts, tók þessar mynd af
flugi hans fyrr í vikunni.
-G.S.
frjálst, úháð dagblað
3. SEPTEMBER 1976.
Strákar argast í fugli við Árbœjarstrfluna Um hádegisbilið í gær þurfti lögreglan i Árbæjar- hverfi að hafa afskipti af nokkrum unglingsstrákum sem voru í leyfisleysi á báti við Árbæjarstífluna. Strák- arnir voru að djöflast í fugl- unum, eins og lögreglan í Arbæ tók til orða, en þarna eru bæði álftir og endur með unga. Lögreglan vill beina þeim eindregnu tilmælum til foreldra, að þeir brýni fyrir börnum sínum að hætta þessari iðju, sem tekið er mjög hart á. —A.Bj. 1
Bilvelta í Hvalfirði Betur fór en á horfðist er bíl hvolfdi í Hvalfjarðar- botni um hádegisbilið í gær- dag. Tveir karlmenn voru i bílnum, sem var japanskur Lancer, og sakaði hvorugan. Bíllinn skemmdist þó mikið og varð að draga hann i bæinn. —EVI
Engin skýring á Tjalds-slysinu Sjópróf fóru fram hjá bæjarfógetaembættinu í Vestmannaeyjum á miðviku- dag. Var þar fjallað um at- burð þann, er Tjaldur EA 175 sökk á siglingu á leið frá Keflavík til Vestmannaeyja s.l. sunnudag. Engar nýjar staðreyndir eða skýringar á því af hverju báturinn sökk komu fram í sjóprófunum, að sögn Allans Magnússonar full- trúa bæjarfógetans. Skip- verjar urðu um kl. 10 á sunnudagsmorgun varir við að sjór var kominn í vélaf- rúm bátsins óg hækkaði sjórinn þar jafnt og þétt. Um kl. eitt fóru þeir í gúmbát og skömmu síðar sökk Tjaldur. Það var Siglingamála- stofnunin sem óskaði eftir sjóprófi. Hún hafði veitt bátnum siglinga- og veiði- leyfi til bráðabirgða. Fulltrúi hennar var við réttarhöldin. Allan Magnússon sagði að það sem athyglisverðast hefði komið fram væri að bæði vélstjóri og stýrimaður gegndu þeim störfum sam- kvæmt undanþágum. Skip- stjóri hefði hins vegar verið reyndur og ölluro hnútum kunnugur. —ASt.
Þrjú rússncsku skipanna í Re.vkjavikurhöfn í niorgun.
DB-mynd Sveinn Þormóðss.
RÚSSAR SELJA OKKUR
SMOKK í BEITU
— fjölmargar rússneskar skipakomur hingað i sumar
Tveir stórir rússneskir verk- um að togararnir væru að selja
smiðjutogarar og tvö rússnesk hér smokk til beitu. .
rannsóknaskip liggja nú í Reykja- Eins og vant er, mátti í gær og í
vikurhöfn og að sögn hafnsögu- morgun sjá litla hópa rússneskra
manns telst þessi fjöldi rúss- skipverja á ferð um bæinn, en
neskra skipa hér t einu vart til einhverra hluta vegna fara þeir
tíðinda. miðað við komur þeirra alltaf um í fjögurra til fimm
hingað í sumar sem hafa verið manna hópum og virðist það
fjölmargar. ganga jafnt yfir áhafnir af
Að vanda eru Rússarnir ekki olíusktpum, hafrannsóknaskipum
margorðir um ferðir sínar, en þó og togurum.
var hafnsögumönnum kunnugt —G.S.