Dagblaðið - 23.02.1977, Page 14

Dagblaðið - 23.02.1977, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977. Rúnar lék siðast með hljóm- sveitinniHaukum og var meðal annars með á plötu þeirrar hljómsveitar. Áður var hann f Dínamiti og Dögg. Ragnar Sigurjónsson verður að teljast með reyndari trommuleikurum íslenzkum. Hann hefur komið víða við sögu á ferli sínum. Sfðast lék hann með Stuðmönnum á hljómleikum þeirra og þar áð- ur í hljómsveitinni Mexfco. Þá hefur Ragnar einnig unnið talsvert í stúdfói að undan- förnu við plötuupptökur. Engu er í sjálfu sér hægt að spá um breytingar á tónlist Paradísar við tilkomu þessara nýju manna. Björgvin Gíslason mun hefja hljómborðsleik að nýju ásamt gftarleik og Rúnar verður eingöngu með gítar. Allar horfur eru nú hins vegar á því að hljómsvietin nái sér upp úr þeim áhugadoða sem hún hefur verið í að undan- förnu. Á poppsfðu Dagblaðsins á síðasta föstudag var rætt við Pétur Kristjánsson. Þar kom fram sá reginmisskiiningur að talað hafi verið um að Paradís hætti störfum. Það eina sem rætt var, var að breytingar yrðu á hljómsveitinni. -AT breytingar...breytingar...breytingar...breytin PARADÍS Hljómsveitin Paradís er nú fullmönnuð á nýjan leik eftir hálfsmánaðar hlé. í stað þeirra Péturs Hjaltested og Ásgeirs Óskarssonar sem gengu f Eik. eru komnir til leiks Rúnar Þór- isson og Ragnar Sigurjónsson, trommuleikari. Þeir Rúnar og Ragnar eru báðir þekktir tónlistarmenn. hljómsveitunum hafi komið á óvart sú fregn að stórbreyting- ar hefðu átt sér stað í Eikinni. Hún átti miklum vinsældum að fagna f sinni fyrri mynd. Til dæmis kusu lesendur Dag- blaðsins hana hljómsveit ársins 1976. íslenzkar hljómsveitir virð- ast hins vegar vera með þvf markinu brenndar, að þær geti ekki starfað lengi saman óbreyttar án þess að deyfðar og sljóleika fari að gæta hjá meðlimunum sjálfum. Björg- vin Halldórsson söngvari benti eitt sinn á það í viðtali að er hljómsveit hefði starfað saman f tvö ár án breytinga, þá hlyti eitthvað að fara að gerast. Með nýjum mönnum færist væntanlega nýtt lff f Eikina. Málin standa nú svo f þeim herbúðum að fjórir nýir menn eru í hljómsveitinni en þeir gömlu aðeins þrír. Þeir sem eftir eru eru reyndar heilarnir á bak við velgengni Eikar, þannig að hún ætti vafalaust að halda einkennum sinum f framtfðinni. Fullvíst má telja að flestum sem fylgjast með íslenzku

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.