Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 15. AGÚST 1977. Barbara og Tom búa með sautján börnum sínum, en sex eru flutt að heiman. Þarna eru atjan krakkar, en það er vegna þess að einn er gestkomandl. Dálaglegur bamahópur Það er til gamall íslenzkur málsháttur sem segir „Eitt barn sem ekkert, tvö sem tíu“. Það er heilmikill sannleikur í þessu. En hvað er tíu barna hópur hjá tuttugu og þriggja barna hóp? Ekki mikið. Ekki er það þó ein kona sem aliðhefur öll þessi tuttugu og þrjú börn. Kona nokkur, Bar- bara McCarthy í Dallas í Texas missti manninn sinn, en þau höfðu átt átta börn saman. Árið eftir að eiginmaðurinn dó hitti Barbara ekkjumann, Thomas O’Keefe, sem bjó handan við götuna. Hann átti fimmtán börn! Þau gengu í það heilaga á gamlárskvöld 1975. Nú búa þau með sautján börnum sinum en sex eru gift og gengin út. Svona stór fjölskylda kemst ekki fyrir í hvaða húsi sem er enda búa þau í stórhýsi með fimm risastórum svefnher- bergjum, sex baðherbergjum, og risastórri dagstofu sem er yfir 100 fermetrar á stærð. í húsinu eru þrír ísskápar, tvær frystikistur (hvort tveggja auðvitað af stærstu gerð), tvær sjálfvirkar þvottavélar og tveir þurrkarar. Fjölskyldan fer með um 40 þúsund krónur á viku eingöngu í mat og þykir það mikið þar í landi. Þau O’Keefe hjónin fengju dágóðan skatta- afslátt ef þau væru búsett á Islandi með allan þennan barnahóp eða tæpar sex hundruð þúsundir ef við reikn- um með að tólf barnanna sem enn eru heima, séu undir sex- tán ára aldri. Á myndinni eru átján krakk- ar, en það er vegna þess að einn var gestkomandi. Vonandi hafa hjónin ekki háttað gestinn ofan í rúm hjá sér í misgripum. Barbara segir að þau séu öll ákaflega hamingjusöm og rekstur heimilisins gangi al- deilis prýðilega með því að allir leggi hönd á plóginn. Hver skyldi vera barnflesta fjölskyldan á Islandi í dag? Ef þið vitið um barnmarga fjöl- skyldu, sendið okkur þá línu. - A.Bj. STÆRSTISORPBÍLL í HEIMI Þessi sorpbfll er miklu líkari einhvers konar tunglófreskju eða einhverju úr visindaskáldsögu en því sem hann raunverulega er, stærsti sorpbíll í heimi. Bíllinn er frá General Motors og getur tekið 350 tonn af sorpi í einni ferð. Hann er með 16 strokka vél sem gefur 3.300 hestöfl. Verið er að reyna bilinn í Kaliforníu. Þessir gengu á Rauðhettu Frúin við rafmagnsviðgerðar- manninn: Og þú sem lofaðir að koma og gera við útidyrabjölluna hjá mér í gærkvöldi og komst svo aldrei! Rafmagnsviðgerðarmaðurinn: Eg kom vist og hringdi þrisvar sinnum á bjölluna. Það svaraði enginn! Jói öriagaskalii stóð fyrir framan spegillinn og strauk yfir glansandi kollinn: Alltaf unglegur. Ekki eitt einasta grátt hár! 17 Þórir Baldursson útsetur lögin í fyrsta og þriðja sæti í Bretlandi Undanfarnar vikur hafa vin- sældalistarnir fallið niður en nú verður þráðurinn tekinn upp að nýju sumum til mikils ama — öðrum og vonandi miklu fleiri til ómældrar gleði og ánægju. Donna Summer er I fyrsta sæti brezka vinsældalistans þessa vikuna og hefur verið þar nokkrar undanfarnar vikur. Lag hennar nefnist I Feel Love og er tekið af nýjustu LP plötu hennar, I Remember Yester- day. Lagið er eftir söngkonuna sjálfa og útsetningu og hljóm- borðsleik annast Þórir Baldurs- son. Þórir útsetur einnig lagið í þriðja sæti. Það nefnist Ma Baker og er með Boney M. Þetta lag hefur náð miklum vinsældum í óskalagaþáttum ríkisútvarpsins. Einhver hvísl- aði því að DB, að Ma Baker væri bara Daddy Cool spilað aftur á bak, en hvað sem til er í því, þá eru tónsmíðar Boney M ávallt ákaflega keimlíkar. Athyglisvert er að í fjórða sæti í Bretlandi eru Sex Pistols — ræflarokkhljómsveitin alræmda. Hljómsveitin á í mestu erfiðleikum með að fá lög sín leikin í útvarpi og koma þeim á framfæri að öðru leyti, en plötur hennar virðast seljast vel. I tíunda sæti er hljómsveit- in Stranglers sem er á mörkun- um að vera „normal” og ræfla- rokkarasveit. Þetta fyrirbæri kalla Bretar nýbylgjuhljóm- sveitir. Stranglers njóta talsverðrar virðingar í Bretlandi fyrir að kunna þó að nota hljóðfæri sín. Það er meira en margar ræfla- rokkhljómsveitir geta hrósað sér af. I Bandaríkjunum er yngsti Gibbbróðirinn, Andy Gibb, í efsta sæti. Lagið nefnist I Just Want To Be Your Everything. Lagið samdi Andy ásamt stóra bróður sínum, Barry Gibb. Athyglisvert er, að Rita Coolidge, eiginkona leikarans Kris Kristoffersonar, virðist nokkuð hátt skrifuð um þessar mundir. Hún er með lög á topp tíu beggja vegna hafsins. I Bretlandi er We’re All Alone í fimmta sæti og Your Love Has Lifted Me er einnig í fimmta sæti í Bandaríkjunum. Rita Coolidge hefur ekki áður náð jafngóðum árangri. Hún hefur fengizt við dreif- býlissöng undanfarin .ár og notið mikillar hylli sem slik. - AT- ENGLAND — Melody Maker 1. (1 ) I FEEL LOVE ...................DONNA SUMMER 2. ( 3 ) ANGELO ..................BROTHERHOOD OF MAN 3. ( 2 ) MA BAKER............... ...........BONEY M 4. ( 4 ) PRETTY VACANT....................SEX PISTOLS 5. (7) WE'RE ALL ALONE .................RITA COOLIDGE 6. ( 8 ) FLOAT ON.............................FLOATERS 7. ( 6 ) SO YOU WIN AGAIN ............. HOT CHOCOLATE 8. ( 9 ) YOU GOT WHAT IT TAKES.......SHOWADDYWADDY 9. (15) IT'S YOUR LIFE... ...................SMOKIE 10. (19) SOMETHING BETTER CHANGE...........STRANGLERS BANDARÍKIN — Cash Box 1. ( 1 ) I JUST WANTTO BE YOUR EVERYTHING..ANDYGIBB 2. ( 3 ) BEST OF MY LOVE...................EMOTIONS 3. ( 4 ) WHATCHA GONNA DO ...............PABLE CRUISE 4. ( 2 ) UNDERCOVER ANGEL ..s.............ALAN O'DAY 5. ( 6 ) YOUR LOVE HAS LIFTED ME........RITA COOLIDGE 6. ( 8 ) EASY ..........................COMMODORES 7. ( 5 ) MY HEART BELONGS TO ME......BARBRA STREISAND 8. ( 4 ) YOU MADE ME BELIEVE IN MAGIC .BAY CITY ROLLERS 9. (11) YOU AND ME......................ALICE COOPER 10. (14) JUST A SONG BEFORE I GO.CROSBY. STILLS AND NASH ¥ Islenzku diskóteklistarnir KLUBBURINN 1. Love Is Unkind........... 2. Couldn’t Get It Right.... 3. Ma Baker................. 4.1 Feel Love .............. 5. Disco Carmen ............. 6. Inky Dinky Wang Dang Do.. 7. A Woman Can Change A Man 8. Ain’t Gonna Bump No More... 9. Rendezvous .. 10. Uptown Festival 11. Dreams....... 12. Get On The Funk Train.... 13. Don’t Leave Me This Way.. 14. Classically Elise........ 15. Do What You Wanna Do .... 16. N.Y. You Got Me Dancing 17. Disco Mania Pt. 2.... 18. Eva ................. 19. Chanson d’Amour ..... 20. Superman.................. SESAR 1. (í) 2. ( 3 ) 3. (2 ) 4. (4 ) 5. (—) 6. ( 7 ) 7. ( 6 ) 8. (10) 9. (11) .........Donna Summer ......Climax Blues Band ................Boney M .........Donna Summer ...Grammophone Revival ..............Shalamar ................Boney M ................Joe Tex ..........Tina Charles ..............Shalamar .........Fleetwood Mac .........Munic Machine ........Thelma Houston ..........Munic Machine ..........T. Connection ..Andrea True Connection ............The Lovers ................Brimkló .....Manhattan Transfer ....Celi Bee And The Buzzy Love Is Unkind/I Feel Love .......Donna Summer Devil’s Gun.............................C.J. & Co. 24 Hours A Day................Barbara Pennington Ma Baker/A Woman Can Change A Man .......Boney M Discomania ...........................The Lovers Do What You Wanna Do................T. Connection Life Is Music..................The Ritchie Family Disco Luc.v ............Wilton Place Street Band Up Jumped The Devil.............John Davis & The Monster Orehestra 10. (—) Angelo.......................Brotherliood of Men 11. ( 8 ) Don’t Leave Me This Way .......Thelma Houston 12. ( 9 ) Too Hot To Handle ...................Heatwave 13. (13) So You Win Again..................Hot Chocolate 14. (18) N.Y. You Got Me Dancing ....Andrea True Connection 15. (15) Black IsBlack..........................Cerrone 16. (—) Why Did It Have To Be Me ..................Abba 17. (12) Classically Elise....Dino Solera & The Munlc Machlne 18. (20) Feel The Need .................Detroit Emeralds 19. (19) Uptown Fcstival......................Shalamar 20. (—) Breakawav.........................Dead End Kids

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.