Dagblaðið - 14.06.1979, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ1979
7
Erlendar
fréttir
REUTER
Mjúk lending
íþurrum mart-
ini kokkteil
Herramaður að nafni Bruce
Bradshaw frá Illinois i Bandaríkjunum
hefur fengið viðurkenningu fyrir
heimsins stærsta þurra martini kokk-
teilinn. Hann var gerður í tilefni af eins
árs afmæli veitingastaðar vestra.
Til að halda upp á afmælið og
viðurkenninguna frá heimsmetabók
Guinness klifraði Bradshaw upp í flug-
vél með fallhlíf á baki. Er komið var i
þúsund metra hæð kastaði hann sér út
og lenti i miðju kokkteilglasinu.
Heimildir DB geta ekki um stærð þess
né magn vökvans. Svamlaði kappinn
síðan að „glas” brúninni. Ekki fara
sögur af ástandi hans eftir slíkt sund í
þurrum martíni. Af öryggisástæðum
var ólívuberið ekki haft í glasinu en
Bradshaw flutti það með sér í
stökkinu, bundiðvið ökklann.
DC-10
þoturfá
flugleyfi
íEvrópu
DC-10 þotur í eigu evrópskra flug-
félaga munu hefja. aftur farþegaflug
næstkomandi þriðjudag að því er
franski flugmálastjórinn tilkynnti i
gær. Er þetta ákvörðun flugyfirvalda í
tuttugu og einu Evrópuríki, sem tekin
var á fundi þeirra í Strassborg. Þýðir
þetta að um það bil sextíu DC-10 þötur
hefja flug hinn 19. júní næstkomandi.
Bandarísk flugmálayfirvöld hafa til-
kynnt að ekki verði hvikað frá flug-
banni þotnanna þar þrátt fyrir ákvörð-
un yfirvalda.
Gettymeð
nýtteyra
Sex árum eftir að mannræningjar á
Ítalíu skáru eyrað af Paul Getty yngra
hafa læknar í Los Angeles í Bandaríkj-
unum bætt þar úr. Sérfræðingar í lýta-
lækningum tóku hluta úr rifbeini
Gettys og gerðu úr því nýtt eyra. Síðan
var grædd húð af baki hans i smíðina.
Aðgerðin er sögð hafa kostað rúmlega
þrjár og hálfa milljón króna. En Paul
Getty yngra munar að líkindum ekki
mikið um það, þar sem hann var einn
höfuðerfinginn eftir afa sinn með sama
nafni. Hann lézt fyrir nokkrum árum
og var sagður einn ríkasti maður heims.
Bretland:
150 þúsunda fækkun
ríkisstarfsmanna
—námamenn segjast ætla að neyða Thatcher til nýrra kosninga innan skamms
Tilkynnt hefur verið að miklar
sparnaðaráætlanir ríkisstjórnar
Thatcher forsætisráðherra muni
leiða til verulegrar fækkunar
opinberra starfsmanna i Bretlandi.
Af fjárlagafrumvarpinu nýja og
opinberum yfirlýsingum vegna þess
er ljóst að stefnt er að miklum
sparnaði í opinberum rekstri. Tals-
menn ríkisstjórnarinnar brezku hafa
þó ekki viljað segja neitt ákveðið um
hve mörgum starfsmönnum í
opinberri þjónustu verði sagt upp.
Verkalýðsleiðtogar hafa aftur á
móti bent á að hinir þrír möguleikar,
sem verið er að athuga geti leitt til
allt að hundrað og fimmtíu þúsund
starfa fækkunar. Möguleikarnir þrír
eru þeir að minnka launakostnað
hins opinbera um tíu, fimmtán eða
tuttugu af hundraði.
Nýja fjárlagafrumvarpið, sem
gerir ráð fyrir verulegum lækkunum
á beinum sköttum en hækkunum á
óbeinum sköttum eins og söluskatti,
hefur sætt mikilli gagnrýni verkalýðs-
leiðtoga, sem segja það ekki þýða
annað en aukna verðbólgu og aukinn
hagnað þeirra sem betur mega sín.
Mick Mcgahey leiðtogi
námumanna í Skotlandi lýsti því yfir
í gær, að hann og félagar hans
ætluðu að neyða Thatcher til að boða
aftur til kosninga innan skamms.
Hann iét ekki getið um aðferðina.
Siðasta ríkisstjórn ihaldsmanna á
Bretlandi var undir ^tjórn Edwards
Heath. Hann féll eftir að hafa beðið
lægri hlut í mikilli verkfallsbaráttu
velskra námaverkamanna.
Grænland
Ferö til Grænlands—þótt stutt sé er
engu lík. I Grænlandi erstórkostleg
náttúrufegurö og sérkennilegt
mannlíf, þar er aö finna hvort
tveggja í senn nútíma þjóöfélag
eins og viö þekkjum þaö - og
samfélag löngu liöins tíma.
Stórskemmtilegar feröir
sérstaklega fyrir fjölskyldur
- starfshópa og félagasamtök.
Færeyjar
Þaö sem gerir Færeyjaferö aö
ævintýri erhin mikla náttúrufegurö,
ásamt margbreytilegum
möguleikum á skemmti- og
skoöunarferöum um eyjarnar, og
síöast en ekki síst hiö vingjarnlega
viömót fólksins.
Ef þú ert einhvers staöar velkominn
erlendis - þá erþaö í Færeyjum.
Spyrjiö sölufók okkar,
umboösmenn eöa feröaskrifstofurnar
um nánari upplýsingar.
FLUGLEIÐIR