Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 24
24 I Iþróttir Iþróttir DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979. Iþróttir Iþróttir I Grimes lét verja vítaspymu og United missti af efsta sætinu! — Liverpool á toppinn eftir góðan sigur á Aston Villa á Villa Park. Martröðin hjá Forest heldur áf ram „Aðeins topplið hefði unnið Aston Villa eins og liðið lék i dag," sögðu fréttamenn BBC á laugardag eftir að rauði herinn hans Bob Paisley hafði unnið sannfærandi sigur gegn Aston Villa á Villa Park i Birmingham. Villa hafði ekki tapað í siðustu 11 leikjum sínuni ii ’ í fyrri hálfleiknum héldu hinir ungu leir.menn liðsins í við hina leik- reyndu landsliðskappa Liverpool. Ray Kennedy hefur verið mjög á skotskónum það sem af er keppnis- timabilinu og hann kom Liverpool yfir á 55. mínútu. Ekki liðu nema tvær mínútur þar til Aston Villa hafði jafnað metin. Brian Little var þar að verki. En þá var eins og Liverpool-vélin færi loks í gang Hraðinn var keyrður upp og leikmenn Villa voru oft á tíðum eins og statistar á vellinum. Alan Hansen skoraði annað markið á 60. mínútu — hans annað mark i þremur leikjum — og á 75. mínútu setti Terry McDermott punktinn yfir i-ið með fallegu marki. Liverpool hafði mikla yfirburði síðasta hálftímann og virtist ekkert hafa fyrir sigrinum. ,,Ég skil ekki af hverju liðið lék ekki þannig allt frá b.vrjun leiksins,” sagði fréttamaður BBC einnig. Malcolm Allison, fram- kvæmdastjóri Manchcster City, sagði á laugardagsmorgun að Liverpool væri þegar búið að vinna Englandsmeistara- titilinn. Deildakeppnin er enn ekki nema tæplega hálfnuð, en sigurganga Liverpool er slík nú að erfitt er að gera sér í hugarlund að nokkurt lið geti haldið aftur af liðinu. I.iðið hóf kcppnistímabilið illa — a.m.k. fannst áhangendum liðsins svo — og hlaut aðeins 7 stig úr fyrstu 7 leikjunum. Ekki er úr vegi að líta á stöðu efstu liða eins og hún var fyrir sjö vikum. Nottm. For. Manch. Utd. Crystal Pal. Wolves Liverpool Norwich, 12 7 3 2 23—12 17 12 7 3 2 18—8 17 12 4 6 2 18—13 14 116 2 3 17—12 14 114 5 2 19—10 13 Southampton, Manch. City, Coventry og Tottenham voru öll einnig með 13 stig eftir 12 leiki. Síðan hafa leiðir skilið. Livcrpool hefur hlotið 13 stig af síðustu 14 mögu- legum og skorað 20 mörk gegn aðeins 3 á meðan hin liðin hafa engan veginn náð sambærilegum árangri. Sýnu verst er þó hrun Nottingham Forest, sem aðeins hefur hlotið 3 stig i síðustu 7 leikjum. Enn eitt tap Forest Já, og Forest tapaði enn einu sinni á laugardag. Liðið er nú vart svipur hjá sjón og sjálfstraust leikmanna virðist vera gersamlega horfið. Palace hafði lengst af undirtökin í leiknum á Sel- hurst Park á laugardag en tókst ekki að færa sér yfirburði sína úti á vellinum i nyt upp við markið. Þær fáu skipulegu sóknarlotur Forest, sem ógnuðu marki Palace voru allar stöðvaðar af mið- verðinum Jim Cannon, sem átti stór- kostlegan leik í vörninni. Þegar aðeins ein mínúta var til leikhlés tók sverting- inn snaggaralegi, Vince Hilaire, á rás upp kantinn, sneri á varnarmenn Forest og lagði knöttinn síðan fyrir fætur lan Walsh. Hann spyrnti að marki og á klaufalcgan hátt missti Peter Shilton knöttinn inn fyrir mark- línuna. Shilton hefur verið ólíkur sjálfum sér undanfarnar vikur. í síðari hálfleiknum gerðu leikmenn Palace þá reginskyssu að leggjast í vörnina og nokkrum sinnum komst mark þeirra í hættu. John Burridge var þó iðulega vel á verði en eigi sjaldnar en þrisvar varð Shilton að taka á öllu sínu til að forða marki við hinn enda vallarins. Gary BiitL.virðist sakna Tony Wood- cock mjög í framlínunni og eitthvað róttækt þarf að gerast hjá Forest ef liðið ætlar sér að eiga möguleika á að endurheimta Evrópubikarinn. Alan Hansen skoraði fyrsta mark Liverpool gegn Aston Villa. Hansen er mikill hæfileikamaður og hefur leikið fyrir hönd Skotlands í knattspyrnu, golfi, biaki og squash. Everton — Brighton 2—0 Ipswich — Manchester C 4—0 Manchester U — Leeds U 1 — 1 Middlesbro — Southampton 0—1 Stoke — WBA 3—2 Wolves — Bolton 3-1 2. deild Burnley — Watford 1—0 Fulham — Shrewsbury 2—1 Leicester — Orient 2—2 Luton — Newcastle 1 — 1 Notts County — Birmingham 1 — 1 Oldham — Chelsea 1—0 Preston — Cambridge 2—2 QPR — Wrexham 2—2 Sunderland — Cardiff 2—1 Swansea — Charlton 1—0 West Ham — Bristol R 2—1 3. deild Blackburn — Oxford 2—1 Blackpool — Reading 5—2 Brentford — Hull 7—2 Chesterfield — Millwall 3—2 Grimsby — Mansfield 2—1 Plymouth — Barnsley 2—1 Rotherham — Gillingham 2—1 Sheffield W — Exeter 0—1 Swindon — Bury 8-0 Wimbledon — Sheffield U I —1 Colchester — Carlisle 1 — 1 Southend — Cehstér 4—1 4. deild Aldershot — York 2-2 Crewe — Bournemouth 0—0 Darlington — Tranmere 3-1 Halifax — Lincoln 1—0 Hartlepool — Newport 0—0 Hereford — Bradford City 0-2 Northampton — Scunthorpe 0-0 Peterborough — Portsmouth 0—0 Torquay — Huddersfield 3—1 Walsall — Wigan 1 — 1 Port Vale — Stockport 1—2 Rochdale — Doncaster frestað Áður en við höldum lengra er rétt að fara yfir úrslitin á laugardag. l.deild Arsenal — Coventry 3—1 Aston Villa — I iverpool 1-3 Bristol C — Tottenham 1—3 Crystal P — Nottm. Forest 1—0 Derby — Norwich 0-0 Brady breytir öllu Liam Brady lék að nýju með Arsenal á laugardag og endurkoma hans virtist hafa góð áhrif á liðið. Arsenal hafði allan tímann yfirburði gegn Coventry og aldrei var nein spurning um hvoru megin sigurinn lenti. Frank Stapleton skoraði fyrsta markið á 22. mínútu og fjórum mín. síðar bætti Alan Sunder- land öðru marki við. Þótt Ray Gooding svaraði fyrir Coventry strax í næstu sókn voru yfirburðir Arsenal augljósir. Brady lét ekki mikið á sér kræla, en greinilegt að allur annar blær var á leik liðsins. í siðari hálfleiknum skoraði David O’Leary — fyrsta mark þessa sterka miðvarðar á keppnistímabilinu. United í vanda Manchester United, sem vermdi toppsæti deildarinnar fyrir helgina, mátti sjá af því til Liverpool, en hefði átt að hirða bæði stigin gegn Leeds. Svertinginn ungi, Terry Connor, hjá Leeds skoraði á 21. mínútu og á 37. mínútu gerði John Lukic sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu Ashley Grimes. Er þetta önnur vítaspyrnan sem Lukic ver á hálfum mánuði. Hann varði einnig víti gegn Aston Villa fyrir tveimur ivkum. Leeds-liðið lék á köflum nokkuð vel en sókn United varð þung í síðari hálfleiknum og á 55. mínútu uppskar liðið mark. Micky Thomas jafnaði þá metin hinum 57.478 áhorf- endum til mikils léttis. Kevin Moran hélt stöðu sinni, sem miðvörður, en Gordon McQueen var á varamanna- bekknum á laugardag eftir að hafa leikið með varaliðinu um fyrri helgi. Manchester United á næst leik gegn Coventry á útivelli, þá gegn Forest heima og á annan í jólum leika Liver- pool og United saman á Anfield. Erfiðir leikir framundan og nú er bara að sjá hvort lið Dave Sexton stenzt álagið. Þrenna hjó Gates og Crooks Miðherjinn ungi, Eric Gates, var svo sannarlega hetja Ipswich á laugardag er Malcolm Allison hélt innreið í borgina með lið sitt, Manhcester City. Gates skoraði tvívegis í fyrri hálfleiknum og Mick Mills bætti þriðja markinu við. í síðari hálfleiknum skoraði Gates svo þriðja mark sitt og stórsigur Ipswich var í höfn. Ipswich hefur nú hlotið 6 stig í síðustu 4 leikjum sínum og virðist heldur vera að taka við sér eftir sann- kallaða martraðarbyrjun á keppnis- timabilinu. Gates var ekki sá eini, sem skoraði þrennu á laugardag i 1. deildinni. Svertinginn Garth Crooks hjá Stoke sökkti West Bromwich Albion með þremur mörkum í sigri sem gerði þó ekki betur en að bjarga Stoke af allra mesta fallsvæðinu. Mörk Albion skoruðu þeir Cyrille Regis og Peter Barnes úr vítaspyrnu. Tvö mörk Hoddle Glenn Hoddle hjá Tottenham á nú hvem stórleikinn á fætur öðrum og hann skoraði tvívegis í auðveldum 3—1 sigri Tottenham á Ashton Gate í Bristol. Miðvörðurinn Paul Miller skoraði þriðja markið en eina mark Bristol City, sem nú hefur tapað þremur af fjórum síðustu heimaleikj- um sinum, skoraði Tom Ritchie úr víta- spyrnu. Ashley Grimes lét verja frá sér víta- spyrnu og Manchester United tapaði við það efsta sæti deiidarinnar til I.lverpool. Garth Crooks skoraði þrennu gegn WBA og færði liði sínu dýrmætan sigur. Andy King skoraði fyrir Everton á 15. mínútu og Brian Kidd bætti öðru marki við á 35. mínútu. Það reyndist nóg til að vinna sigur á Brighton, sem hafði hlotið 5 stig úr þremur síðustu leikjum sínum. Fallið vofir því enn yfir Brighton, en þó er ekkert lið eins dauðadæmt og Bolton Wanderers. Bolton ferðaðist til Wolverhampton og mátti þola þar enn eitt tapið. Úlfarnir sigruðu 3—1 og gátu leyft sér þann munað að brenna af vítaspyrnu, sem Peter Daniel tók. Andy Gray skoraði tvívegis og þriðja markið var sjálfsmark Walsh. Bolton lék þarna sinn 16. leik í 1. deildinni í röð án sigurs. Liðið hefur aðeins hlotið eitt stig á útivelli. Það var gegn Liverpool þótt ótrúlegt virðist, en síðan hefur liðið tapað 9 útileikjum í röð. Southampton vann sinn annan úti- sigur á þessu keppnistímabili með 1—0 sigri á Middlesbrough á Ayrsome Park. Boro hafði ekki tapað á heimavelli fyrir þennan leik, en Steve Williams sá til þess að breyting varð þar á. Loks er að geta hrútleiðinlegs leiks Derby og Nor- wich, sem lauk án marka. Ekki vantaði hamaganginn á Baseball Ground en leikurinn var ákaflega litið fyrir augað. Chelsea tapáði f 2. deildinni kom það helzt á óvart að efsta liðið, Chelsea, tapaði óvænt fyrir Oldham. Það var Simon Stainrod, sem áður lék með Sheffield United, m.a. á meðan liðið lék í 1. deild sem skoraði eina mark liðsins á 10. mínútu. Ekkert toppliðanna utan West Ham, ef hægt er þá að tala um „Hammers” sem eitt toppliðanna, sigraði. Mikið var um jafntefli í deildinni. Luton og New- castle skildu jöfn á Kenilworth Road. David Moss skoraði fyrir Luton í síðari hálfleiknum, en Billy Rafferty jafnaði. Leicester, sem eitt allra 92 liðanna i ensku deildunum, hefur skorað i öllum deildaleikjum sínum, brá ekki út af vananum á laugardag á Filbert Street, en tókst samt ekki að sigra Orient. Jafntefli varð, 2—2. QPR átti í hinu mesta basli með Wrexham og tókst ekki að ná nema öðru stiginu. Wrexham leiddi tvívegis i leiknum, en Ray Goddard skoraði tvi- vegis fyrir QPR og bjargaði andliti liðs- ins. Steve Lynex kom Birmingham yfir gegn Notts County en Ray O’Brien jafnaði fyrir heimaliðið. Bryan ,,pop” Robson skoraði sigurmark Sunderland gegn Charlton og á sama tíma unnu fyrrum félagar hans úr West Ham nauman sigur á Bristol Rovers. Stewart Barrowclough skoraði fyrir Rovers strax eftir 50 sek., en David Cross koraði tvívegis fyrir West Ham og tryggði þeim sigurinn. West Ham á nú tvo auðvelda leiki fyrir höndum og sigur í þeim báðum gæti komið liðinu i hóp allra efstu liða deildarinnar. En West Ham er bara West Ham og þvi allt eins víst að liðið tapi þeim báðum. 51 mark í 3. deild Hvorki fleiri né færri en 51 mark var skorað i leikjum 3. deildarinnar á laugardag. Ber þar hæst 8—0 sigur Swindon gegn Bury en Swindon á að leika gegn Arsenal á þriðjudag í deilda- bikarnum. Víst er að leikurinn verður ekki nein skemmtiganga fyrir leikmenn l. deildarliðsins og Swindon gæti allt eins tekið upp á því að sigra. Margir minnast vafalítið enn ársins 1969, en þá sigraði Swindon Arsenal 3—l á Wembley í úrslitaleik deildabikarsins. Hver veit nema sagan endurtaki sig? Hér að neðan er staðan í 1. og 2. deild svo og staða efstu liða i 3. og 4. deild. I.i deild Liverpool 18 10 6 2 39- -13 26 Manch. Utd. 19 10 6 3 28- -13 26 Crystal Pal. 19 7 9 3 24- -16 23 Arsenal 19 7 8 4 22- -13 22 Wolves 18 9 4 5 25- -22 22 Tottenham 19 8 5 6 26- -29 21 Nottm. For. 19 8 4 7 28- -24 20 Norwich 19 7 6 6 29- -27 20 Coventry 19 9 2 8 32- -33 20 Southampton 19 8 3 8 32- -28 19 Aston Villa 18 5 9 4 18- -18 19 Middlesbro. 19 7 5 7 16- -16 19 Everton 19 5 8 6 25- -25 18 Leeds Utd. 19 5 8 6 19- -25 18 WBA 19 5 7 7 26- -24 17 Bristol C. 19 5 7 7 18- -22 17 Stoke City 19 6 5 8 25- -30 17 Manch. City 19 7 3 9 18- -29 17 lpswich 19 7 2 10 21- -26 16 Derby Co. 19 6 3 10 19- -25 15 Brighton 18 4 4 10 19- -32 12 Bolton 19 1 8 10 14- -32 10 2 . deild Newcastle 19 10 6 3 26- -16 26 Luton 19 9 7 3 33- -19 25 Leicester 19 9 7 3 35- -24 25 Chelsea 19 12 1 6 31- -21 25 QPR 19 10 4 5 37- -19 24 Birmingham 19 9 5 5 25- -20 23 West Ham 19 10 2 7 22- -18 22 Sunderland 19 9 3 7 28- -23 21 Wrexham 19 9 2 8 22- -23 20 Swansea 19 8 4 7 22- -23 20 Notts County 19 7 5 7 28- -24 19 Preston 19 4 11 4 24- -23 19 Orient 19 5 8 6 24- -30 18 Cardiff 19 7 4 8 19- -25 18 Oldham 19 5 6 8 18- -21 16 Cambridge 19 4 7 8 22- -27 15 Watford 19 5 5 9 15- -22 15 Fulham 19 6 3 10 23- -34 15 Charlton 19 4 6 9 19- -34 14 Shrewsbury 19 5 3 11 22- -28 13 Bristol Rov. 19 4 5 10 25- -33 13 Bprnley 19 2 8 9 21- -34 12 3. deild Sheffield U. 22 13 2 7 41- -29 28 Colchester 22 11 6 5 33- -26 28 Swindon 21 11 4 6 37- -23 ,26 Brentford 21 11 4 6 38- -28 26 Millwall 22 10 6 6 34- -28 26 Grimsby 22 11 3 8 26- -25 25 Rotherham 22 11 2 9 37- -33 24 Sheffield W. 22 8 8 6 32- -29 24 4. deild Portsmouth 22 15 2 5 53- -27 32 Walsall 22 11 9 2 36- -22 31 Huddersfield 22 13 4 5 49- -24 30 Bradford C. 22 13 4 5 41- -24 30 Newport 22 13 3 6 46- -27 29 Torquay 22 10 8 4 43- -28 28 - SSv.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.