Dagblaðið - 21.01.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 1980.
13
„Raunhæftað veraþakk-
látur fyrir siúkráhúsiö99
— fáist það undir Bókasafn ísafjarðar, segir Jóhann Hinriksson bæjarbókavörður — Bókasafnið annað
stærsta bókasafn landsins, utan Reykjavíkur
i kytrum uppi á Sundhallarloftinu á
ísafirði er bókasafn bæjarins til húsa,
annað stærsta bókasafn landsins utan
Reykjavikur. Þar er bókavörður
Jóhann Hinriksson og hefur sér til að-
stoðar Sigrúnu Magnúsdóttur bóka-
safnsfræðing auk afgreiðslustúlkna.
Blm. Dagblaðsins náði í Jóhann að
áliðnum útlánsdegi sem hafði átt ann-
rikt.
Mikið lesið
— Maður hefur það á tilfinningunni
að það séu dálítil umsvif hérna,
Jóhann, ekki í stærri húsum?
Já, þetta er að verða býsna örðugt,
við erum í 200 fermetra plássi og með
kompu niðri i kjallara. Þetta er pakkað
hjá okkur því þetta eru um 52 þúsund
bindi.
— Nú hefði einhverjum dottið í hug,
að i slíkum bæ sem jsafirði hefðu menn
lítinn tima aflögu að lesa bækur vegna
geysilegrar vinnu?
Já, en reyndin er önnur, við tánuðum
út tæplega 50 þúsund bækur í fyrra
sem gerir 15 eintök á mann. Barnaefni
er 40%, skáldsögur um 46% og svo
þessi 14% fræðirit og önnur lesning.
— Nú lánar þú viðar en hér til ísa-
fjarðar?
Já, þetta heitir Bæjar- og héraðs-
bókasafnið á ísafirði og auk þess að
vera með útibú í Hnifsdal lána ég býsn
inn i Djúp og þá tel ég Súðavík ekki
með, oft á annað þúsund bækur i Inn-
djúpið, bíddu við, 1132 á siðasta ári og
þetta eru um 250 manns. Þá lánum við
togurum og linubátum og einnig á
sjúkrah úsið.
— Hver eru þá útlánin á landsmæli-
kvarða?
Ef við tökum Reykjavík þá eru útlán
þar 12 bækur á íbúa og tíu á Akureyri.
— Eruð þið með einhver önnur
útlán?
Við erum með talbækur fyrir blinda,
en höfum bara fengið of fá eintök. Þá
erum við í sambandi við Norræna
húsið og lánum út grafík frá þeim.
— Þá kemur í hugann norræna
málaárið, eruð þið bókaverðir eitthvað
með i þvi?
Ekki heyrt um það, ég veit ekki til
þess að það séu neinir bókaverðir í
nefndinni.
Sjúkrahúsið
verði bókasaf n
— Hjartans mál varðandi stofnun-
ina, Jóhann?
Húsnæðið auðvitað, þetta stendur
okkur fyrir þrifum. Við erum í 1/3 af
því húsplássi sem talið er algjört lág-
mark samkvæmt alþjóðlegum staðli og
stöndum enn verr gagnvart þeim staðli
sem Danir nota.
— Hvernig er með nýtinguna á öll-
um þessum bókum?
Það er nú verkurinn, að koma upp
þokkalegu dreifbýliskerfi. Ég vil senda
góða slurka í minni söfnin og hafa
síðan aukaþjónustu í pósti auk leið-
beiningarstarfs, sem nú er að nokkrú
unnið að en fjármagnið til þess frá
ríkinu er lúsarupphæð. En það er Ijóst
ef sæmilegur skikkur á að komast á
dreifbýlissöfn þá verður rikið að koma
inn í og styrkja slíkt, og ég held það sé
alls staðar gert, nema hér, meira að
segja i Ameriku. Það er alveg augljóst,
að þjónustan verður svo miklu dýrari
þar sem um langar vegalengdir er að
ræða og eins vegna fámennis, sem
þýðir verri nýtingu.
— Hverjir er'u helztu póstar
varðandi rekstur bókasafns?
Laun, bókakaup og svo margir
smærri kostnaðarþættir.
— Sérðu fram til þess að fá stærra
og betra pláss fyrir þig og bækur þinar?
Auðvitað vildi ég helzt fá nýtt, sér-
teiknað bókasafn, en menn hafa verið
með vangaveltur um að gera sjúkra-
húsið hér á ísafirði að bókasafni þegar
það nýja verður fullgert, og það rúmar
slatta. Ég held það sé raunhæft að vera
þakklátur fyrir það.
Listsýningar
— Þú talar um þjónustu við ná-
Tí
Sjúkrahúsið á ísafirði. DB-mynd JH
Jafnréttisráð óánægt með
nýja skattframtalið
Jafnréttisráð hefur lýst yfir von-
brigðum sínum með hið nýja skatt-
framtal og segir það brjóta i bága við
meginregiu laga nr. 40/1978 um sér-
sköttun. Hefur ráðið því sent bréf til
ríkisskattstjóra þar sem segir að ráðið
telji æskilegt að framtölin séu
aðskilin og að hver einstaklingur eigi
að bera ábyrgð á sínu framtali.
Jafnréttisráð vill ennfremur vekja
athygli á að í drögum af skattframtali
barna mun einungis gert ráð fyrir ein-
um framfæranda. Segir ráðið það
hvorki samræmast lögum um réttindi
og skyldur hjóna, lögum.um afstöðu
foreldra til. skilgetinna barna né
framfærslulögunum.
Þá hefur Jafnréttisráð sent fjár-
hags- og viðskiptarfefnd neðri deildar
Alþingis umsögn varðandi lög nr.
40/1978 um tekjuskatt og eignar-
skatt. Einnig frumvarp til laga um
breytingar á þessum lögum og liggur
það nú fyrir á Alþingi.
Jafnréttisrjið vill vekja athygli á að
sérhver einstaklingur sé sjálfstæður
skattaðilrán tillits til hjúskaparstöðu
og skuli honum því ákveðinn tekju-
og eignaskattur sérstaklega.
- ELA
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105
Jóhann Hinriksson, bæjarbókavörður
á ísafirði.
DB-mynd: Finnbogi Hermannsson.
grannabyggðir, hefur þú gegnt því eitt-
hvað?
Já, sýnt lit á því, ég var að stilla upp
á Flateyri um daginn og fer inn í Súða-
vík'á næstunni að stilla upp, en þeir eru
nú búnir að innrétta húsnæði eftir að
safnið hafði legið í kössum upp undir
þrjú ár.
— Nú hafið þið verið með listsýn-
ingar hérna í safninu?
Já, það er hér salur, þó lítill, þar sem
sýningar eru haldnar, voru einar tólf á
síðasta ári. Og það sem kannski meira
er um vert, fólk er farið að taka þessum
sýningum eins og sjálfsögðum þætti í
daglegu lífi og útheimtir ekki lengur
spariföt.
— Nú eru bókasöfn orðin viður-
kenndur hluti af menningarsamneyzl-
unni í þjóðfélaginu, heldurðu að góð
bókasöfn dragi úr bóksölu, eins og
stundum hafa heyrzt raddir um?
Nei, þvert á móti, aukin jólabóka-
sala sannar það og bóksala til tæki-
færisgjafa allt árið. Góð bók, hvort
sem hún er fengin að láni eða keypt,
ýtir tvímælalaust undir áhuga fyrir
bókum og bóklestri, það sanna dæmin.
- F.H., Núpi.
GREIÐENDUR
vinsamlega veitið ef tirfarandi
erindi athygli:
Frestur til aö skila launamiöum
rennur út þann 23.janúar,
Þaö eru tilmæli embættisins til
yðar, aó þér ritiö allar upplýsingar
rétt og greinilega á miðana og
vandiö frágang þeirra. Meö því
stuóliö þér aö hagkvæmni í opin-
berum rekstri og firrið yöur
óþarfa tímaeyðslu.
RÍKISSKATTSTJÓRI