Dagblaðið - 26.01.1980, Page 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1980.
/ ' ...........................
Verzlunarmenn og kaupmenn
eru ekki „svindlarar, brask-
arar eða óþarfir milliliðir”
V
,,í hinum vestræna heimi hefur
það verið mikið og vaxandi
áhyggjuefni þeirra sem starfa í at-
vinnurekstri hversu slæma imynd
almenningur hefur um atvinnulifið.
Þeir sem i atvinnurekstri standa eru
ímynd auðs og valds og andsjæðingar
hins vinnandi manns. Þessi slæma
imynd er talin eitt mesta vandamál
sem atvinnurekendur og samtök
þeirra eiga við aðglíma í dag.”
Þessi orð mælti Sigurður
Guðmundsson formaður fram-
kvæmdanefndar samtakanna
Viðskipti og verzlun sem hófu. á
miðvikudag tveggja ára starf til
kynningar og fræðslu á viðskiptum
og verzlun. Að samtökunum standa
átta aðilar, Bílgreinasambandið, Fél.
isl. stórkaupmanna, Kaupmanna-
samtök islands, Landssamband isl.
verzlunarmanna, Lífeyrissjóður
verzlunarmanna, Verzlunarbanki
Íslands, Verzlunarmannafélag
Reykjavikur og Verzlunarráð
íslands. í samningi aðilanna um
kynningarherferðina er ákveðið að
leggja l'ram samtals 80 milljónir
króna til kynningarstarfsins á
tveimur árum.
Kynningarherferðin er i höndum
sérstakrar framkvæmdanefndar sem
Sigurður Gunnarsson er formaður
fyrir en Pétur Sveinbjarnarson er
framkvæmdastjóri herferðarinnar.
í starfsáætlun er gert ráð fyrir að
taka I I viðfangsefni fyrir á þessu ári.
í febrúar verður innflutnings-
verzlunin kynnt. í apríl verður
íslenzk smásöluverzlun kynnt og
síðar fer fram kynningarstarf um
„Starfsmanninn í verzlun” svo dæmi
séutekin.
Kynningarherferðinni var hleypt af
stokkunum með blaðamannafundi i
verzlun Silla og Valda i þvi sögu-
fræga húsi Aðalstræti 10. Húsið er
eitt hið elzta i landinu og geymir
Kynningarstarfinu var hleypt af stokkunum 1 gömlu Silla og Valda-búóinni i einu
elzta húsi landsins, Aöalstræti 10. Sigurður Gunnarsson flytur ræðu sina. Að
baki standa Hjalti Geir Kristjánsson, Magnús L. Sveinsson og lengst til hægri
Sigurjón Þórðarson kaupmaður. DB-mynd: Bjarnleifur.
merka sögu sem samofin er íslenzku
viðskipta- og alhafnalifi, sögu
baráttu og bjartsýni.
í öðrum skjölum sem gerð hafa
verið á vegum kynningarherferðar-
innar segir m.a. að viðskipti og
verzlun eigi undir högg að sækja á
íslandi í dag. Verzlunarmenn. og
kaupmenn séu kallaðir „svindlarar,
braskarar og ójiarfa milliliðir”.
>
Það ætla sam-
tökin
„Viðskipti og
verzlun”
að afsanna
með kynningar-
herferð__________________
Reynt er að kippa fótunum undan
frjálsri verzlun með áróðri um
.„þjófnað og brask” og löggjafinn sé
seinn að skilja við hvaða skilyrði
viðskipti og verzlun starfa bezt.
Þessu áliti er kynningarherferð
samtakanna Viðskipti og verzlun
ætlað að breyta. Markmiðið er að
auka álit verzlunar og viðskiptalífsins
og stuðla að aukinni menntun og
betri kjörum starfsmanna og l'yrir-
lækja. Kynna á almenningi verzlun
og viðskipti og auka á :>g bæta sam-
starl' vinnuvcitenda og starfsfólks og
kynna lífeyrismál meðal sióðlclaga i
L.ífeyrissjóði verzhinarmanna.
„Þaðer ekki eilthvert fyrirheitið
land, sem förinni er ætlað til, heldur
höldum við okkur á jörðinni með
raunhæf markmið að leiðarljósi.
Frjáls viðskipti þýða umfram alll
aukið frelsi einstaklingsins,” segir i
einum bæklingunum. -A.St.
3969 kærumál til
RLR á árinu 1979
Esjan birtist Reykvíkingum I mörgum myndum. Hér má sjá eina þeirra. Mynda-
vélin fœrir hana nœr og Viðeyjarstofa sýnist vera höfuðból við rœtur fjalisins.
DB-mynd Hörður.
Fullnaðarafgreiðslu er lokið í 1769 málanna
3969 mál voru kærð til Rannsóknar-
lögreglu rikisins á nýliðnu ári. Er það
322 kærumálum fleira en árið 1978 en
þá voru kærurnar 3647. Af málunum
3969 sem kærð voru á sl. ári er
fullnaðarafgreiðsla komin i 1769
málum, en rannsókn hinna er á mis-
jöfnum stigum.
Málin skiptast milli flokka á eflir-
farandi hátt. i svigum eru tölur um
fullnaðarafgreiðslu kærumála.
Innbrol og
þjófnaðir 2179(528)
Árásir 144(73)
Skemmdarverk 92(36)
Svik og falsanir 825(694)
Vinnuslys
Brunar
Mannslát
Tollalagabrot
Önnur mál
127(127)
184(37)
122(122)
55(45)
241(107)
Á árinu 1978 voru kærumálin sem
l'yrr segir 3647. Þau skiptust þannig
milli flokka (i sviga tölur um endanlega
afgreidd mál).
Innbrot og þjófnaðir 2233 (759),
árásir 154 (114), skemmdarverk 90
(29), svik og falsanir 484 (410),
vinnuslys 94 (94), brunar 173 (40),
mannslát 132 (132), tollalagabrot 45
(43), önnur mál 236(129). -A.St
Léttvínsumsókn Homsins yfir á grænu Ijósi í borgarráði:
„Ég er jákvæður í málinu”
segir Vilmundur Gytfason dómsmálaráðherra
„Okkur hefur borizt jákvæð
umsögn borgarráðs vegna beiðni
Hornsins um leyfi til veitinga á léttum
vinum.Vinveilinganefnd á cftirað fjalla
um málið. Afstaða hennar ræður úr-
slitum. í framhaldi af fyrirspurn Dag-
blaðsins um málið hef ég óskaðeftir að
afgreiðslu þess verði flýtt i
nefndinni,” sagði Vilmundur Gylfason
dómsmálaráðherra I gær.
Tvö veitingahús í Reykjavik, Askur
á Laugavegi og Hornið, hafa óskað
.eftir leyfi til veitinga léttra veiga. Borg-
arráð hefur gefið Horninu grænt Ijós
fyrirsitt leyti.
„Ég er sjálfur jákvæður i málinu.
Ef umsögn vinveilingarnefndar verður
jákvæð mun ég skrifa upp á þetta sam-
dægurs,” sagði dómsmálaráðherra.
-ARH
Crestliner
77/ afgreiðs/u
fyrir sumarið
aKPh= Alcort/Paceship ^
AMF CRESTLINER,
PACESHIP, ALC0RT
Einkaumboð á íslandi
Höfum fyrirliggjandi
allar stærðir hraðbáta með eða
án disilvéla. Fíber eða ál. Ódýr-
ir og rúmgóðir fjölskyldubátar.
Sparneytnir og sterkir „rallbát-
ar”. Seglskútur í stærðum frá
11 fet — 26 fet. Greiðsluskilmál-
ar.
Upplýsingar og pantanir í
simum 86065 og 77612 frá kl.
18 til 20.