Dagblaðið - 29.11.1980, Side 1

Dagblaðið - 29.11.1980, Side 1
6. ÁRG. — LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 — 271. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022. Verkfall bankastarfsmanna fráS. desemberþýðir: Engin bankastarfsemi og ekki króna til lífeyrisþega —banka- ogsparisjóösstjómirgeta takmarkað sparifjárúttekt fyrir verkfall Komi til verkfalls bankastarfs- manna 8. desember, sem nú þykja miklar líkur til, má engin afgreiðsla af neinu tagi fara fram í bönkum. Allir bankar, sparisjóðir og fleiri stofnanir verða bkaðar. Engar vörur verður hægt að leysa úr tolli aðrar en þær sem fyrir verkfall hafa fengið bankastimpil. Engar greiðslur fyrir seldar afurðir verða afgreiddar inn í landið. Sáttasemjari frestaði verkfalli bankamanna frá 3. til 8. desember. Komi til verkfallsins 8. desember er það sama dag og færa átti greiðslur til allra lífeyrisþega inn í banka- kerftð. Verkfall bankamanna yrði þá til þess að ellilífeyrisþegar fengju ekki lífeyri sinn á réttum tíma. Þegar hefur gætt meiri úttektar sparifjár úr bönkum en venja er, ef til vill vegna hræðslu fólks við verk- fallið og hugsanlegar takmarkanir á úttekt. Heimildir til takmarkana á út- tekt er að finna í lögum um sparisjóði og banka. Stjómir lánastofnana geta ákveðið ,,að heimta að upþhæðir frá 500—1500 kr. sé sagt upp með viku fyrirvara og upphæðum þar yfir með 2 mánaða fyrirvara. Án tveggja mán- aða fyrirvara er eigi skylt að borga meira en 2000 kr. á mánuði hverjum úr sömu viðskiptabók” segir í einni slíkri reglugerð. Bankamenn fara ekki dult með að þeir telja verkfall blasa við. Huga þeir m.a. að verkfallssjóðum en hann eiga íslenzkir bankamenn tiltölulega nýstofnaðan með nokkrum milljóna- tugum á, en auk þess eiga þeir aðgang að verkfallssjóði norrænna banka- manna fyrst til lántöku en síðan styrk. í lánasjóði norrænna banka- manna eru nú sagðar 110 milljónir sænskra króna eða 14 milljarðar 850 milljónir íslenzkra króna. -A.St. —sjánánarábls.5 Til hverser eiginlega verið að þessu? Linnaþarf þvíhneyksli — Ólafur iónsson skrifarum leiklist íútvarpinu — sjá bls.6 • „Hernaðarieg áætlun vegna byltingarinnarfr — segirráðherrann Tekere, sem segist stolturaf adhafa myrt hvítan bónda íZimbabwe — sjá erl. yfirlit bis.ll Brotsjór olli tugmilljóna tjóni á togaranum Apríl: ÞESSIALDA HEFÐI LAGT BRÚNA SAMAN —svo við vorum heppnir að hún skall á dekkinu — sagði Svavar Benediktsson skipstjóri Smiðir voru þegar mættir um borð i gær og könnuðu skemmdir. Á þessari mynd má sjá hvernig brúin hefur sigið niður um ca 10 ferm. Hurðarkarmurinn lét undan og hurðin fór af iömunum. t herbergi eins hásetans var aðkoman þessi. Timburveggir brotnir og loft sigið. Þarna kom einnig gat á skipið. DB-myndir Gunnar Örn. „Ég sá ölduna koma tveimur eða þremur mínútum áður en hún skall á skipið. Það vildi til að skipið var með stefnið beint upp í vindinn þegar sjór- inn hvolfdist yfir. Við vorum staddir um 65 milur suðaustur af Vestmanna- eyjum og veðrið var slæmt — 10—12 vindstig,” sagði Svavar Benediktsson, skipstjóri á togaranum Apríl, í samtali við blaðamann DB um borð í skipinu í Hafnarfjarðarhöfn í gær. „Þótt skipið sé ekki mikið skemmt að utan er hér um tugmilljóna tjón að ræða,” sagði Svavar. Sjórinn skall yftr dekkið sem seig niður um ca 10 cm. Þrjú herbergi eru mjög illa farin. Loft brotin, húsgögn ónýt og jafnvel hurðir fóru af lömunum. Þá kom einnig gat á skipið úr einu herberginu. Brúin beygl- aðist töluvert og eins öldubrjóturinn. „Það er mjög sterkt stálið í þessum togara, það sýndi sig. Einhverjir togar- ar hefðu farið verr jafnvel eyðilagzt við þetta. Við vorum heppnir að aldan skall beint á dekkið. Ef hún hefði lent ofan á brúna. hefði hún vafalaust lagzt niður,” sagði Svavar Benediktsson.ELA

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.