Dagblaðið - 24.04.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 24.04.1981, Blaðsíða 2
14 Sjónvarp næstu vika • •• 21.00 Vor í Vinarborg. Sinfóníu- hljómsveit Vínarborgar leikur létt- klassíska tónlist eftir ýmsa höf- unda. Hljómsveitarstjóri Gennady Rozhdestvensky. Einleikari Vikt- oria Posthikova. (Evróvision — Austurríska sjónvarpiö). 22.30 Demantaleitin. (Probe). Banda- rísk sjónvarpsmynd frá árinu 1972. Leikstjóri Russell Mayberry. Aðal- hlutverk Hugh O’Brien, John Giel- gud, Angel Thompkins og Elke Sommer. Einkaspæjaranum Hugh Lockwood er faliö að finna verö- mætt gimsteinasafn, sem Hermann Göring sölsaði undir sig á sínum tíma en hefur lengi verið týnt. Þýð- andi Dóra Hafsteinsdóttir. 00.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 3. maí 18.00 Sunnudagshugvekja. Methúsa- lem Þórisson skrifstofumaður flyt- ur hugvekjuna. 18.10 Barbapabbi. Þýðandi Ragna Ragnars. Sögumaður Guðni Kol- beinsson. 18.13 Hvernig á aö sofa i járnbrautar- lest? Sænsk mynd um Nínu, fimm ára, sem ferðast í lest með föður sínum. Þýðandi Hallveig Thor- lacius. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). 18.40 Of hcitt, of kalt. Þessi breska mynd sýnir að fjölbreytt líf getur þrifist jafnt í heitustu eyðimörkum sem á heimskautasvæðum. Þýð- andi og þulur Óskar Ingimarsson. 19.05 Lærið aö syngja. Þriðji þáttur. Lagið. Þýðandi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. 19.40 Hlé. 19.45 Fréttaágríp á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. 20.50 Karlotta Löwcnsköld og Anna Svard. Sænskur myndaflokkur í John QMgud far m«ð aðalhiut- vsrklð f bandarfakrl ajónvarps- mynd sam aýnd verður laugar- daglnn 2. mal. Myndln fjallar um lelt að varðmastu glmatalnaaafni. fimm þáttum byggður á tveimur skáldsögum eftir Selmu Lagerlöf. Annar þáttur. Efni fyrsta þáttar: Ungur guðfræðingur, Karl Arthúr, gerist aðstoðarprestur sr. Forsiusar prófasts. Hann trúlofast Karlottu, uppeldisdóttur prófastshjónanna, en skömmu síðar kemur Schager- ström óðalsherra og biður um hönd Karlottu. Karli Arthúri er skýrt frá því, að Karlotta ætli honum mik- inn frama. Hann reiðist, slítur trú- lofuninni og strengir þess heit að ganga að eiga fyrstu ólofuðu stúlk- una sem verði á vegi hans. Þýð- andi Dóra HafstéiTisdóttir. (Nord- vision — Sænska sjónvarpið). 8tan Qatz og fétagar blrtaat á akjánum aunnudaglnn 3. maf. 21.45 Stan Getz. Kvintett Stan Getz leikur á Jasshátíðinni i Stokkhólmi 1980. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 22.45 Dagskrárlok. seinna hefur hann náð ótrúlega. langt á framabrautinni. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.35 Dagskrárlok. Laugardagur 2. maí 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Einu sinni var. Franskur teikni- myndaflokkur, þar sem rakin er saga mannkyns frá upphafi og fram á okkar daga. Annar þáttur. Þýð- andi Ólöf Pétursdóttir. Sögumaður Þórhallur Sigurðsson. 18.55 Enska knattspyrnan. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Löður. Gamanmyndaflokkur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. Katherine Hepburn fer með aðalhlutverkið i myndinni. Hún er nú orðin 72 ára gömul. KORNIÐ ER GRÆNT—sjónvarp laugardag kl. 22,05: Kennslukona ætlar að fræða námuverkamenn — en eigandi námunnar, gamall íhaldssamur óðalsbóndi, erlítthrifinn af þvf Katherine Hepbum er i aðalhlut- verki bandarisku sjónvarpsmynd- arinnar sem sýnd verður annað kvöld. Myndin er frá árinu 1979 og fjallar um eldri konu, fröken Moffat, sem erft hefur hús 1 námabæ í Wales. Þangað flyzt frú Moffat og þar hyggst hún starfrækja skóla. En íhaldssamur óöalsbóndi sem á ekki aðeins námuna sem bærinn lifir á heldur flest 1 bænum, er ekki of hrifinn af þvl að fröken Moffat skuli ætla sér að fræða námuverka- mennina. Hann er gamall og óttast að virðingu þeirri sem hann nýtur starfi hætta af, ef bæjarbúar verða óf menntaðir. Kennslukonan lætur slíkan drag- bit ekki hafa áhrif á skólastarfið heldur lætur hendur standa fram úr ermum og ræðst ákveðinn til verka. Meðal nemendanna er ungur og efnilegur piltur sem sýnir mikla hæfileika. Og hún setur sér það takmark að koma þessum pilti áfram og í háskólanám i Óxford. Þýðandinn, Dóra Hafsteinsdóttir, sagði þetta létta og skerfimtilega mynd en leikstjóri hennar er George Cukor. -KMU. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. APRlL 1981. JÆIARINS ESTU Stutt kynning á því athyglis- verðasta sem kvikmyndahús borgarinnar sýna Geimkötturinn LolkstJóH: Norman Tokar Lalkandur: Ken Berry, Sandy Duncan, Mclean Stevenson Sýningarstaflur: Qamla b(ó Mikið hefur verið ritað á síðustu árum um skaölegar barnamynd- ir og þá sérstaklega um myndir sem innræta börnum rangar hug- myndir um veruleikann. Inn i þessa umræðu hafa myndir frá Dis- neyfirmanu flækst og ekki að ástæðulausu. Disneymyndirnar eru afskaplega fjarstæðukenndar og fullar af rangtúlkunum á veruleik- anum. Persónusköpun þeirra er að sjálfsögðu kafli út af fyrir sig en það er ekki ofsagt að myndirnar gerist í ákveðinni veröld, heimatil- búinni draumaveröld, sem tengist meira en margan grunar okkar vestræna hagkerfi. Hvað sem öllu þessu líður getur verið óskaplega gaman að Disneymyndum. Geimkötturinn er nýjasta afþreyingin frá Disney og ég vona að ég móðgi engan þó ég mæli með henni sen. góðri skemmtun. Húmorinn er græskulausari en oft áður — kannski örlítið fullorðinslegur — og ímyndunaraflið 1 fima Disney- lagi. Auðvitað er geimkötturinn bamamynd, þó varla fyrir yngri en sjö ára, en ef fullorðnir fara með opnum huga þá ætti hún ekki að svíkja sem skemmtun og hún ætti að geta orðið tvöföld i fylgd með börnum. Kramer vs. Kramer Lslkstjóri: Robort Banton Lalkandur: Dustin Hoffman, Maryl Straap, Justin Hanry Sýnlngarstaflur: Stjömubfó Ótvlræður sigurvegari óskarsverðlaunanna 1980 var Kramer vs. Kramer, hún hlaut ftmm stykki. Sennilega markar þessi mynd tíma- mót í Bandarikjunum hvað varðar efnivið og einnig hvað varðar upprisu gömlu drama myndanna þvi útfærsla og efnismeöferö er með þeim hætti að gamaldags verður að telja. Ég er ekki alls kostar sáttur við þessa mynd, hún byrjar vel og er sannfærandi framan af en síðan er eins og viðkvæmnin verði alls ráðandi og fólk kemur ekki upp einu orði án tára í augum. Einnig get ég ekki fellt mig við þá mynd sem dregin er upp af konunni í myndinni, henni er sýnt of mikið skilningsleysi af leikstjóranum. Hvað um það, myndin er vel leikin; Hoffman og Streep standa sínar vaktir méð prýði, lika hinn ómannlega eðlilegi Justin Henry, sem reyndar eru nú gefnai kannski full fullorðinslegar linur („Af hverju ertu svona sveittur i lófunum, pabbi?”). Þrátt fyrir að Kramer vs. Kramer muni ábyggi- lega ekki komast í neina annála og fljótlega gleymast 1 kvikmynda- sögunni, þá er samt ástæöa til aö benda fólki á þessa umfjöllun á þörfu umræðuefni. Punktur, punktur, komma strik Lelkstjóri: Þorstainn Jónsson Leikondur: Erlingur Glslason, Kristbjörg Kjold, Pétur Jónsson og Hallur Holgoson. Sýningarstaður Laugarésbfó og Hóskólabfó: íslenskar kvikmyndir eru ekki sýndar á hverjum degi, því ánægjulegra er þegar maður sér eina, sérstaklega ef vel tekst til. Kvikmyndin „Punktur, punktur. . . ” er nýjasti afrakstur islenskr- ar kvikmyndagerðar. Myndin byggir eins og flestum er kunnugt á bók Péturs Gunnarssonar með sama nafni. Myndin bregður upp svipmyndum úr lífi nokkuð venjulegs stráks og er reyndar þroska- saga hans frá barnsárum til unglingsára. Uppbygging myndarinnar ,er kannski svolítið gölluð og safalaus, en mestanpart hennar — sér- staklega fyrri hluta — er gamansemin og vinnubrögðin slik, að allt annað er fyrirgefið. Efnistök Þorsteins leikstjóra bera með sér, að hann er hæfileikamaður, sem greinilega hefur verið gefinn sá hæfi- leiki að leikstýra börnum. Kvikmyndataka Sigurðar Sverris er með því besta frá hans hendi og þá er það talsvert. Loks er þá ógetið sviðsmyndar og búninga, sem eiga sinn þátt í endursköpun gömlu áranna og gefa myndinni „fíling”. Hvað get ég sagt meira, annað en hvernig væri að drífa sig og sjá Punktinn. Kvik myndir ÖRN ÞÓRISSON

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.