Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 82

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 82
82 OLAFUR F. HJARTAR Síðar fékk Gerd Grieg þá vitneskju, að Rauði krossinn hefði fund- ið eyðilagða flugvél skammt fyrir utan Berlín. Á keðju með silfur- hjarta, gjöf frá Gerd, mátti lesa nafnið Nordahl. Hann og félagar hans voru grafnir í næsta kirkjugarði, en síðar varð leiðið fyrir sprengju og það afmáð með öllu. Gerd Grieg hélt með „Lyru“ til Englands í marz 1944. Hún átti enn eftir för til Islands. Snemma árs 1945 setti hún upp Brúðuheim- ilið eftir Ibsen. Magnús Ásgeirsson skrifaði minningargrein um Nordahl Grieg í Helgafell 1944, Ættjarðarskáld vor allra. Lokaorðin fara hér á eftir: ,,Ef til vill má hæfa, að ég ljúki þessum línum með því að rifja upp frá síðasta fundi okkar ummæli, sem vissulega bregða skýrri, en raunar ekki nýrri birtu yfir viðhorf Nordahls Grieg til dauðans, sem við vitum nú, að þá hefur beðið hans við næsta leiti. Tal okkar hafði borizt að nýlesnu kvæði eftir eitt fremsta núlifandi ljóðskáld Norður- landa, stórbrotnu og fögru minningarljóði um mikilhæfa norræna skáldkonu, sem meinleg örlög og viðkvæmni gagnvart böli samtíðar- innar höfðu leitt til sjálfsmorðs. Nordahl Grieg fór vinsamlegum viðurkenningarorðum um kvæðið og bæði hin norrænu skáldsystkin, sem þar áttu hlut að máli. En eftir stundarhlé á viðræðum sagði hann, alvarlegri í bragði en áður, um leið og hann sýndi á sér far- arsnið: Jeg liker allikevel ikke denne apoteose av den passive döden. Jeg er aktivist! Þessi orð hans kunna að verða fleirum en mér minnis- stæð, þótt boðskapur hans og athafnir hefðu æ og ávallt borið þessari sömu skoðun vitni. — Hver er tilgangur skáldskaparins annar en sá að efla réttlátara og farsælla líf? hafði hann spurt skýrt og skor- inort í formálanum að Ættmold og ástjörð. Vegsömun þeirrar lausnar á vandamálum lífsins, sem fólgin var í uppgjöf gagnvart andstæðu þess, gat ekki verið Nordahl Grieg að skapi: Aðeins af þjónustu við lífið mátti listin öðlast ótvírætt gildi og dauðinn vegsemd. Af þeirri fágætu samkvæmni milli sannfæringar og athafna, sem honum var lagin, staðfesti hann hvort tveggja með dæmi sínu.“ Ljóðabókin Friheten hefur verið fullprentuð 1943. Útgeíandi var Helgafell, Unuhúsi. Aug. Esmarch sendiherra Norðmanna skrifar ör- fá minningarorð á norsku, sem dagsett eru í febrúar 1944. Þá koma „Nokkur minningarorð“ eftir Tómas Guðmundsson, sem í er vitnað hér að framan. Þá er tileinkun skáldsins „Til min hustru" og því- næst kvæðið Gerd, fjögur erindi og fögur ástarjátning, sem lýkur þann- ig;
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.