Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Page 103
LANDSBÓKASAFNIÐ 1981
103
SÝNINGAR Opnuð var í anddyri Safnahússins 19.
maí, á 150 ára afmæli Steingríms Thor-
steinssonar skálds, sýning á ýmsu úr verkum hans. Jafnframt var þá
minnzt með sýningu tveggja alda afmælis föður hans, Bjarna amt-
manns Thorsteinssonar, en það var raunar fyrr á árinu, 31. marz.
Marmaraplata sú, er frá segir í kaflanum um Þjóðarbókhlöðu síðar í
þessu yfirliti, var höfð til sýnis í anddyri Safnahússins í október.
Landsbókasafn útvegaði og léði nokkur handrit, auk fáeinna bóka, á
sýningu, er Rithöfundasamband Islands og félög bókaútgefenda,
bókagerðarmanna og bókasafnsfræðinga efndu til í október í samvinnu
við Kjarvalsstaði og tengd var íslenzkri bókaútgáfu 1980.
Liðin voru 11. nóvember 150 ár frá fæðingu Daniels Willards Fiskes,
og var þess minnzt með sýningu á verkum hans og ýmsu, sem um hann
hefur verið ritað.
NEFNDASIÖRF Undirritaður var á árinu formaður sam-
OG FERÐIR starfsnefndar um upplýsingamál. Ólafur
Pálmason deildarstjóri átti sæti í skráningarnefnd og tölvunefnd, Að-
alheiður Friðþjófsdóttir bókavörður í skráningarnefnd og Nanna
Bjarnadóttir bókavörður í flokkunarnefnd.
Tvær síðari nefndirnar eru skipaðar af samstarfsnefndinni og bóka-
fulltrúa ríkisins, en tölvunefndin af samstarfsnefndinni einni.
Ólafur Pálmason sat dagana 23. og 24. apríl norræna ráðstefnu í
Linköping í Svíþjóð, er skráningarnefnd á vegum Sænska bókavarða-
félagsins og sænsku samstarfsnefndarinnar um upplýsingamál efndi
til, en umræðuefnið voru ensk-ameríska skráningarreglurnar, önnur
útgáfa þeirra, og norrænar skráningarreglur.
Ólafur dvaldist á heimleið tvo daga í Kaupmannahöfn og ráðgaðist
við starfsbræður þar um tölvuvinnslu íslenzkrar bókaskrár.
ÞJÓÐFIÁ1ÍÐAR- Landsbókasafn hlaut á árinu 25 000 króna
SJÓÐSSTYRKUR styrk úr Þjóðhátíðarsjóði til filmunar ým-
issa íslenzkra blaða og tímarita frá 19. öld. Styrknum var varið til
efniskaupa og annars viðbúnaðar vegna þessa mikilvæga verkefnis.