Vísbending - 19.03.1992, Page 1
V
Vi k u
ÍSBENDING
rit u m viðskipti og efnahagsmál
19.
mars
1992
12. tbl. 10. árg.
Hrein skuld íslendinga við útlönd,
% af vergri landsframleiðslu
Viðskiptahalli,
% af vergri landsframleiðslu
Samkvæmt opinberum tölum var viðskiptahalli 3,5% vergrarþjóðarframleiðslu 1982-1991.
Ef sá hluti vaxtagreiðslna sem samsvarar verðbótum er dreginn frá lækkar talan í 1,5%.
Heimildir: Seðlabanki, Þjóðhagsstofnun, eigin útreikningar, 1992: Spá.
ViðskiptahaUi
er ofmetinn
Sjávarútvegsráðherra benti á það í
ræðu um helgina að í áratugi hefði
verið nær samfelldur halli á viðskipta-
jöfnuði. Þetta notaði ráðherrann til
þess að rökstyðja þá skoðun sína að
gengi krónunnar hefði jafnan verið of
hátt skráð. I framhaldi af þessum orðum
er við hæfi að skoða betur tölur um
halla á viðskiptum Islendinga við útlönd.
Á liðnu ári var viðskiptahalli ríflega
18 milljarðar, eða tæp 5% vergrar
landsframleiðslu. Áriðáðurvarhallinn
tæplega3%. IáætlunÞjóðhagsstofnunar
frá því í deseinber 1991 (þeirri nýjustu
sem hefur verið birt) er þvf spáð að
hann verði enn mikill 1992, eða rúm
4% landsframleiðslu. Að meðaltali
var hallinn 3,5% vergrar lands-
framleiðslu áratuginn 1982-1991. Þetta
lítur ískyggilega út, og því kemur kannski
á óvart að hlutfall hreinnar skuldar við
útlönd af landsframleiðslu hefur lítið
breyst frá miðjum níunda áratugnum
(sjá mynd). Þó ferþví fjarri að ástandið
sé gott, skuldahlutfallið jókst mjög
framan af 9. áratugnum og er mun hærra
en áratuginn á undan. Þáerþetta hlutfall
mun hærra en annars staðar á
Norðurlöndum. Árið 1989 var það
lægst í Finnlandi, 17%, en hæst utan
íslands í Danmörku, 39%. Á íslandi var
skuldahlutfallið þá 48%. En þróunin
hér er þó ekki eins slæm og mætti halda
þegar opinberar tölur um viðskiptahalla
eru skoðaðar.
í GreinarumhlutafélögN
Vísbending hyggst á næstunni birta
greinar um afkomu og horfur allra
hlutafélaga á almennum hlutabréfa-
markaði í kjölfar aðalfunda þeirra. í
niðurlagi hverrargreinarkemurfram
ábending höfundar um hlutabréfa-
viðskipti og getur hún orðið á þrjá
vegu: Kaupa, halda óbreyttu eða
selja. Er þá tekið mið af því hvort
búast megi við að afkoma og
eignabreytingar réttlæti hækkun eða
lækkun á verði hlutabréfanna á
næstunni. Þegar hafa birst greinar um
Sæplast og Hampiðjuna og í þessu
tölublaði er fjallað um Eimskip.
Verðbólgureikningsskil í
utanríkisverslun?
Eftir að verðbólga jókst á áttunda
áratugnum varalgengtaðfyrirtæki væru
gerð upp með tapi árum saman þótt
hagur þeirra færi í raun batnandi.
Fyrirtæki sem skulduðu mikið færðu
háar vaxtagreiðslurtil gjalda íbókhaldi
sínu þótt raunvextir væru jafnan undir
núlli og sannleikurinn væri sá að þau
högnuðust á því að skulda. Þetta var
lagfært árið 1979 þegar tekin voru upp
verðbólgureikningsskil í bókhaldi
fyrirtækja hér á landi og verðbreytinga-
færsla innleidd. Opinberar tölur um
utanríkisverslun hafa ekki verið
lagfærðar á þennan hátt. íslendingar
miða þjóðhagsreikningagerð sína við
alþjóðlegan staðal, þjóðhagsreikninga-
kerfi Sameinuðu þjóðanna, en þar er
miðað við nafnvexti en ekki raunvexti.
I Sögulegu yfirliti Iwgtalna frá
Þjóðhagsstofnun má finna mat á
raunvaxtagreiðslum Islendingatil ársins
1988 ásamt tölum um nafnvexti. Sú
röð var framlengd með því að beita
svipuðunt aðferðum og Þjóðhags-
stofnun. Misntunur raunvaxta og
nafnvaxta er dreginn frá viðskipta-
hallanunt (sjá mynd). Með slíkri
leiðréttingu hefði hallinn aðeins verið
um 1,5% landsframleiðslu á árunum
1982-1991, en ekki 3,5% eins og opin-
berar tölur gefa til kynna. Þetta eru ekki
nákvæmir útreikningar en óhætt er þó að
fully rða að lægri talan er mun nær sanni
en hin.
Árið 1991 greidduíslendingartæplega
15 milljarða króna í vexti til útlanda
umfram vaxtatekjur. Sennilega er um
helmingur, 7-8 milljarðar, aðeins uppbót
fyrir verðbólgu. Viðskiptahallinn varí
fyrra rúmir 18 milljarðar, en þegar þessar
verðbætur hafa verið dregnar frá, er
hann kominn niður í 10-11 milljarða.
Þetta má orða á annan hátt: Á meðan
sömu uppgjörsaðferðir eru notaðar og
nú, er engin ástæða til þess að hafa
áhyggjuraf 7-8 milljarða viðskiptahalla.
# Viðskiptahalli er ofmetinn
# Opinher rekstur:
Hagrœðing
Kerfið er samkeppnistœki
Þjóðarhókhlaða
# Eimskipafélagið