Vísbending


Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 20

Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 20
ÍSBENDING inn til sín og segist Stefán hafa gert þeim ljóst að utanríkisráðuneytinu bæri skylda til, skv. 91. grein hegn- ingarlaga, „að vera á verði gegn slíkum fréttaflutningi, og afleiðingunum yrði blaðið því að taka ef það þverskallaðist við afturkölluninni.“ í 91. grein almennra hegningarlaga frá þessum heims- styrjaldarárum (lög nr. 19, 12. febrúar 1940) segir m.a. svo: „Hver, sem kunngerir, skýrirfráeðalæturáannan hátt uppi viðóviðkomandi menn leynilegasamninga,ráðagerðir eða ályktanirríkisinsum málefni.sem heillþesseðaréttindi gagnvart öðrum rfkjum eru undir komin, eða hafa miki 1 væga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.“ Ekki er fullljóst hvað fyrir Vilhjálmi Þór vakti með því að hóta Morgunblaðinu málssókn á grundvelli þessa laga- ákvæðis né yfirleitt þessum skollaleik við ritstjóra blaðsins. Engin efnisleg rök sýnast fyrir þessum hörðu viðbrögðum, tillagan um að flytja Pétur til Moskvu hafði verið til umræðu í tvo mánuði, m.a. í utanríkismálanefnd, og var þannig á margra vitorði. Til dæmis má nefna að ellefu dögum áður en Morgunblaðið birti frétt sína, kom stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna ti 1 sérstaks fundar sem ályktaði að skora á utanríkisráðherra að Pétur Benediktsson verði „áfram sendiherra í London og ekki fluttur þaðan svo sem heyrst hefur“. Fiskútflytjendur mátu störf Péturs í London ákaflega mikils. Þá nær engri átt að álykta að frétt Morgunblaðsins hafi ljóstraðupp„leynilegumsamningi“sem„heiH“íslands hafi verið komin undir og engum fjárhags- eða viðskipta- hagsmunum rfkisins var stefnt í voða með birtingu fréttar- innar. Heimurinnhafði umannaðaðhugsaáramótin 1943- 44 en flutning á starfsmanni í utanríkisþjónustu Islands! Þá er óskiljanleg sú fullyrðing Vilhjálms að frétt Morgun- blaðsins hafi „í verulegum atriðum“ verið röng, hún reyndist í öllum atriðum hárrétt, eins og kom á daginn aðeins fáunt dögum síðar. Líklegast er að Vilhjálmur hafi einfaldlega talið að frétt Morgunblaðins gæti stefnt í tvísýnu áformum hans um að senda Pétur til Moskvu, auk þess sem hann hefur viljað nota tækifærið til að sýna ritstjórum blaðsins „vald“ sitt. Meðan Pétur dvaldi í Reykjavík gekk hann á fund utan- ríkismálanefndar Alþingis og var þar hælt á hvert reipi fyrir störf sín í London. Var greinilegt að mikils var vænst af sendiför hans til Rússlands. Pétur sagðist nú hafa „sætt sig við það, sem ráðamenn hefðu ráðið“. Hann kvaðst þó tæplega eins bjartsýnn og aðrir um verkefni í Rússlandi. Hann taldi ólfklegt að Rússar væru reiðubúnir að gera almenna verslunarsamninga, heldureinvörðungu samninga um einstakar vörutegundir, svo sem á daginn kom. Hann kvað það samt sem áður eitt af sínum helstu verkefnum að athuga möguleika á verslun og viðskiptum milli landanna. Pétur Benediktsson var skipaður fy rsti sendiherra Islands í Sovétríkríkjunum 21. janúar 1944 og þann 10. apríl hélt hann af stað áleiðis þangað frá London. Hann afhenti trúnaðarbréf sitt Kalinin, forseta æðsta ráðs Sovétríkjanna, 7. maí 1944, en hitti síðan Molotov utanríkisráðherra stuttlega að máli. Pétur var lengi einsamall í Moskvu og leiddist mjög, en um haustið kom loks aðstoðarmaður hans, PéturThorsteins- son, síðar sendiherra. Tók Pétur nafna sínum fagnandi, en þaðhafði verið skilyrði hans þegarhann sættistáaðfaratil Moskvu að hann fengi að velja sér aðstoðarmann sjálfur. í bréfi til Ólafar systur sinnar sagði hann að nafni sinni væri „einmitt þess konar maður, sem vert væri að kjósa til farar með sér á Norðurpólinn.“ Hann bætti við: „Ég hugsa stundum til þess með skelfingu, hvernig lífið hefði orðið hér, ef Vilhjálmur Þór hefði kosið mér aðstoð- armann í sinni eigin mynd!“ Höfundur vinnur að œvisögu Péturs Benediktssonar. Markmið og hlutverk r Lánasýslu ríkisins) Lánasýsla ríkisins var stofnuð árið 1990 með lögum frá Alþingi. Hlutverk hennar er að annast lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana innanlands og utan, útgáfu og sölu ríkisverðbréfa á innlendum markaði og fara með endurlán lánsfjár og ríkisábyrgðir. Meginmarkmið Lánasýslu ríkisins eru m.a: Halda erlendum og innlendum vaxta- og fjármagnskostnaði ríkisins í lágmarki. Efla markað fyrir ríkisverðbréf á innlendum fjármagnsmarkaði með kynningu og þjónustu. Efla lánstraust íslenska ríkisins á erlendum lánsfjármörkuðum og bæta þannig lánskjör þjóðarinnar erlendis. Undir Lánasýslu ríkisins heyra þrjú meginsvið: Útboð, sala og innlausn ríkisverðbréfa. Áskrift spariskírteina ríkissjóðs. Ríkisábyrgðasjóður. Lánasýsla ríkisins gegnir mikilvægu hlutverki við að stuðla að heilbrigðri þróun íslensks fjármagnsmarkaðar og aukinni vitund almennings um sparnað og fjárfestingu í öruggum verðbréfum. LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 562 4070. 20

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.