Vísbending


Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 23

Vísbending - 20.12.1996, Blaðsíða 23
minna en nokkra hestburði af vaðmáli. Vaðmálið hafði sem sagt þann kost að vera verðmætt miðað við þyngd og jafnframt hægt að pakka því þétt svo að vaðmálsfarmur nýtti sæmilegaburðargetu skipsins. Báða þessa eiginleika skorti skreiðina mjög tilfinnanlega svo að það dærndi hana alveg úr leik sem útflutningsvöru. Hins vegar voru loðskinn mjög eftirsóknarverð fyrir kaupmenn, jafnvel þótt ekki væri nema kattarskinn, því að þau fylltu svo lítið í skipinu miðað við verðmæti. Þar skipti ekki meginmáli hvort framleiðsla þeirra á Islandi var í sjálfu sér samkeppnisfær við erlenda framleiðslu. Farmenn réðu miklu egar farmenn höfðu selt íslensku vöruna ytra og bjuggust til Islandsferðar áný, völdu þeir sér að sjálf- sögðu farm eftir því hvað eftirsóttast var á Islandi og í hæstu verði miðað við verðhlutföll í Noregi, þó þannig að farmurinn væri ekki of dýr. Of gírugur kaupmaður, sem flytti mikiðaflérefti og dýrum litklæðum, vönduðum vopn- um, malti og hunangi til ölgerðar, reykelsi og glergluggum, hann kæmist aldrei heim með andvirðið. Þess vegna var hyggilegt að flytja að nokkru leyti byggmjöl, sem var eftir- sótt í graut og bar háa álagningu þótt íslendingar greiddu þaðekki meðjafnþyngdsinniívaðmálum.ogjafnveltimbur til að nýta það rými í skipinu sent eiginlega var afgangs á leiðinni til íslands. Við vildum kannski hafa vit fyrir stýrimönnunum fornu og stinga upp á að þeirfjárfestu bara á Islandi, flyttu þangað eins dýra farma og best hentaði og keyptu svo jarðir eða búfé fyrir þann hluta andvirðisins sem þeir kæmu ekki í skip. En h vernig ættu þeir þá að koma til sín leigutekjunum sem slíkar eignir gæfu? Nei, þeir yrðu að flytjast til Islands ogbúa ájörðum sínum sjálfir til að njóta slíkrarfjárfestingar. Og það freistaði þeirra einhvern veginn ekki. Á fyrsta skeiði íslandssiglinga hefur þetta samhengi flíSBENDING kannski snúið öðru vísi við. Landnámi var þá nýlokið, fólks- fátt í landinu og sennilega talsverður innnytjendastraumur. Innnytjendur, sem ætluðu að koma undir sig fótunum á Islandi með því að kaupa þar ódýrt land og vísi að bústofni, hafa selt eignir sínar í gamla landinu og haft með sér varning sem auðvelt væri að rtytja og í háu verði á Islandi. Þeir þurftu ekki að hafa áhyggjur af að koma andvirðinu aftur úr landi. Farmenn hafa þá tekið marga farþega til íslands og e.t.v. haft nóg rúm í skipunum hina leiðina til að nytja frá Islandi matvæli eða óunna ull. En þegar fólksnutningi til landsins linnti hefur fljótt komið upp sú staða sem við þekkjum frá seinni hluta þjóðveldisaldar. Bæði kaupmenn og íslenskir ferðalangar voru f vandræðum með að troða í skipin öllum þeim verðmætum sem þeir vildu Bytja með sér úr landi. Þessi vandræði komu íslendingum upp á að vefa klæði úr útflulningsullinni, binda þannig í henni nýtt verðmæti sem hvorki hafði þyngd né rúmtak. Þannig gerðu þrengslin í víkingaskipunum Forn-Islendinga að iðnaðar- þjóð. ýlebilecf, jót <Kjf {jWWzfct ýtelbilefy jil ocf {wiocett fóomOMcU <vt fóomcuidi vi Landssamband Ábyrgð hf. lífeyrissjóða ýtobitecf fót ocf {jcvwxtt fóomcuicU <vi Nói-Síríus hf. tftábiley jót ocf {cvucdt teomcuicU <vi Póstur og sími 23

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.