Frjáls verslun - 01.04.1959, Blaðsíða 22
ur á hálendinu 35 km suðaustur af Húsavík.
Auk þeirra eru Krýsuvíkurnámur á Reykja-
nesi og Kerlingarfjallanámur undir Hofsjökli
einna þekktastar. Fremur er lítið um brenni-
stein í Krýsuvíkurnámum, og hvað sem líður
brennisteinsmagninu í Kerlingarfjöllum, eru
námurnar þar svo afskekktar, að gera má ráð
fyrir, að þær hafi lítt verið unnar vegna ,.lang-
ræðis“. Sama máli gildir um nokkur minni
háttar brennisteinssvæði á miðhálendi landsins.
GagnstaAt því sem gerðist með íslenzka járnið,
sem allt var notað innanlands, var allur brenni-
steinninn íslenzki fluttur út. Vinnsla hans og
útflutningur virðist hafa byrjað snemma. Nám-
urnar voru lengi fram eftir öldum í eign jarð-
eigenda, og voru bændur þeir eða ættir, sem
námurnar áttu, jafnan vel í álnum.
Um miðja sextándu öld tók konungur brenni-
steinsverzlunina í sínar hendur, og skömmu
seinna tókst krúnunni að ná eignarhaldi á helztu
námunum norðanlands. Upp frá því hafa þær
verið fyrst í eigu konungs, en þá ríkiseign og
ekki komizt í eigu jarðeigenda síðan.
Aðferðirnar við vinnslu íslenzka brennisteins-
ins voru mjög seinlegar. Brennisteinsskorpurnar
í námunum eru allajafna svo þunnar, að ekki
verður komið við mikilvirkari verkfærum en
stunguspaða, ef sæmilega hreinn brennisteinn á
að fást. Á blómaskeiði íslenzka brennisteins-
námsins, var vinnuafl mun ódýrara í hlutfalli
við vöruverð en nú gerist. Auk þess var heildar-
vinnsla brennisteins fremur lítil í þá daga. Hann
var einkum notaður til púðurgerðar og var þess-
vegna mikilvægt efni frá hernaðarlegu sjónar-
miði, og þar af leiðandi þýðingarmikil og eftirsótt
vara.
Þegar nýtízku-efnaiðnaður hófst, varð brenni-
steinn (brennisteinssýra) einn af hornsteinum
hans. Með vaxandi efnaiðnaði eykst brenni-
steinsþörf heimsins hröðum skrefum, og mun
nú vera komin á annan milljónatug smálesta á
ári. Ef unnt væri að vinna hér brennistein með
svo lágum tilkostnaði, að hann væri samkeppnis-
fær á heimsmarkaðinum, er sala á honum jafn-
örugg og á kjöti, fiski eða hverri algengri neyzlu-
vöru sem vera skal. Vinnsla yfirborðsbrenni-
steins með gamla laginu kemur að vísu ekki
lengur til greina, en aftur á móti virðist ekki
óhugsandi, að unnt verði að vinna brennisteins-
gufur sem aukaframleiðslu í sambandi við gufu-
vinnslu með djúpborunum á vissum jarðhita-
svæðum.
Silfurberg
Silfurberg er það góðgrýti, sem lengst hefir
borið hróður íslands, og er það eina míneralið,
sem við landið er kennt í erlendum fræðibók-
um (Ieeland Spar, Islánder Doppelspat). Kol-
súrt kalk er raunar eitthvert algengasta míneral
sem til er. Engu að síður er það afbrigði þess,
sem við nefnum silfurberg, mjög sjaldgæft. Kol-
súrt kalk er venjulega óhreint, sprungið og smá-
kristallað, en silfurberg er það því aðeins kallað,
að kristallarnir séu stórir, tærir og sprungulausir.
Ef vel höggvinn silfurbergskristall er lagður
á blað með letri, sést letrið tvöfalt gegnum krist-
allinn. Stafar fyrirbæri þetta af því, að silfur-
bergið tvíbrýtur eða klýfur ljósið undir svo
gleiðu horni, að tvíbrotsins gætir jafnvel í þunn-
um ílögum. Með því að notfæra þessa náttúru
silfurbergsins, tókst að búa til úr því prismur,
sem skila skautuðu Ijósi. Smásjárrannsóknir á
bergi byggjast á þessari uppfundningu, þannig,
að tvær skautprismur eru felldar inn í ljósbraut
smásjánna. Lengi framan af var náman í Helgu-
staðafjalli eina þekkta silfurbergsnáma veraldar.
Gegndi hún því einstæðu hlutverki í sögu berg-
fræðilegra rannsókna. Eins og gefur að skilja um
jafnsjaldgæfan hlut og silfurberg, var það mjög
eftirsótt og verðið á því þess vegna hátt. Varð
það til þess, að margir urðu til að leita að silfur-
bergi víðs vegar um landið, einkum á Austfjörð-
um. Hér og þar hefir orðið vart við silfurberg,
en víðast hvar í svo smáum stíl, að ekki er not-
liæft í rannsóknartæki. Skömmu fyrir síðustu
aldamót fannst samt nothæft silfurberg í landi
Hoffells í Hornafirði, og hefir allmikið silfurberg
verið unnið úr þeirri námu.
Á síðustu áratugum hefir silfurberg verið unn-
ið á nokkrum stöðum erlendis. Auk þess hefir nú
tekizt að gera ljóskljúfa úr fleiri efnum en silfur-
bergi, nú seinast úr plasti. Silfurbergsvinnslan
á íslandi hefir þess vegna verið æði slitrótt sein-
ustu áratugina. Að vísu er gott silfurberg öllum
gerviefnum fremra í ljóskljúfa, og er þess vegna
enn í dag verðmætt og eftirsóknarvert. Sá er
hængur á vinnslu þess lir jörð, að það er mjög
viðkvæmt fyrir hnjaski. I silfurbergsnámum
má ekki nota sprengiefni né aðra véltækni, og
verður það ekki unnið úr jörðu nema með hand-
22
FRJÁLS VERZLUN