Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Side 17

Frjáls verslun - 01.02.1994, Side 17
EKKIFER SAMAN VELTA OG HAGNAÐUR FYRIRTÆKJA Afkoma bflaumboðanna árin 1990 til 1992 var mjög misjöfn. Hún sýnir líka enn og aftur að ekki fer alltaf saman mikil velta og hagnaður í fyrir- tækjum. Þannig gekk rekstur Ingvars Helgasonar best þrátt fyrir að Hekla og P. Samúelsson, Toyota, væru bæði með meiri veltu. vinkill á málinu, vinkill sem ekki er oft í sviðsljósinu en skýrir margt. Aréttað skal að þau opinberu gjöld, sem hér eru birt, eru lögð á fyrirtæk- in árið eftir rekstrarár þeirra. Þannig eru álögð gjöld sumarið 1993 vegna ársins 1992. Þótt tölur liggi ekki enn fyrir um afkomu bflaumboðanna á síðasta ári er ljóst að síðasta ár reyndist þeim öllum fremur erfitt. Enda hafa ekki jafn fáir bflar verið fluttir inn til lands- ins í áraraðir. Verði næstu ár jafn mögur getur hæglega stefnt í voða hjá þessari atvinnugrein. Rekstur Brimborgar gekk vel þessi ár en fyrirtækið er með fimmtu mestu veltuna á bflamarkaðnum. Inni í tölum Brimborgar, í þessu yfirliti, er einnig rekstur bflaverkstæðis þess, Ventils hf. Það er haft í yfirlitinu til að gæta samræmis við önnur þau bfla- umboð sem eru með verkstæði. Búland, áður Jötunn og þar áður Bifreiðadeild Sambandsins, er ekki inni í þessu yfirliti. Búland hætti starf- semi snemma á síðasta ári og tók fyrirtæki Ingvars Helgasonar, Bfl- heimar, við umboðum þess: GM, Is- uzu og Opel. Þar með er Ingvar Helgason, í gegnum bæði fyrirtæki sín, kominn með svipaðan hlut í inn- flutningi nýrra bfla og Toyota, og Hekla. Bílheimar eru til húsa í gamla Bflaborgarhúsinu við Fosshálsinn. ít- alska verslunarfélagið, sem var með Fiat um tíma, er heldur ekki inni í yfirlitinu. ÞRJÚ UMBOÐ GREIDDU TEKJUSKATT ÖLL ÁRIN Þrjú bflaumboð greiddu tekjuskatt öll árin frá 1990 til 1992. Þetta eru fyrirtækin Ingvar Helgason, Brim- borg og Suzuki-bflar. Hekla var með tekjuskatt fyrstu tvö árin en ekki árið 1992. P. Samúelsson, Toyota, greiddi tekjuskatt vegna rekstrarárs- ins 1990 en ekki seinni tvö árin. Aréttað skal á að fyrirtæki geta yfirfært tap vegna fyrri ára. Einhver þeirra, sem ekki greiddu tekjuskatt kunna að hafa hagnast eitthvert árið, eða verið með smáhagnað öll árin á tímabilinu, án þess að hafa þurft að greiða tekjuskatt. Yfirlitið er því fyrst og fremst vísbending um rekstur og stöðu bflaumboðanna. AFKOMAINGVARS HELGASONAR SKER SIG ALGERLEGA ÚR Samanlagður tekjuskattur Ingvars Helgasonar hf. á tímabilinu var um 179 milljónir króna. Segja má að af- koma Ingvars Helgasonar skeri sig algerlega úr á meðal bflaumboðanna. Þó er ljóst að hagnaður þess hefur farið aðeins minnkandi. Brimborg greiddi 64 milljónir króna samanlagt í tekjusk- att á þessum þremur 17

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.