Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Page 56

Frjáls verslun - 01.02.1994, Page 56
FOLK HILMAR BÖÐVARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRIBESTA Hilmar vann hjá Jöfur hf. frá því hann var 17 ára og flutti sig síðan um set á Nýbýlaveg- inum þegar Besta hóf starfsemi sína. „Besta býður upp á hreinlætis- og rekstrar- vörur fyrir fyrirtæki og leggur mikla áherslu á tæki eins og gólfþvotta- véiar, bónslípivélar, ræstivagna o.þ.h. Við vorum með þeim fyrstu til að bjóða upp á slíkar vélar á lager þar sem menn gátu skoðað tæk- in og fengið síðan full- komna varahluta- og viðgerðaþjónustu. Við tókum við af „tösku- heildsölunum“ sem seldu tæki út á myndir og voru svo allir á bak og burt þegar vantaði vara- hluti eða viðgerðaþjón- ustu,“ segir Hilmar Böðvarsson, fram- kvæmdastjóri Besta hf. Hilmar er 33 ára og tók verslunarpróf frá Fjölbraut- skólanum við Ármúla 1981. Hann vann allan tímann með skólanum við sölustörf, var aðeins 17 ára þegar hann byrjaði í sölumennsku hjá bílaumboðinujöfrihf. ogvar sölustjóri nýrra Chrysler bíla og notaðra bíla þegar hann hætti um áramótin 1987 til 1988. En hann fór ekki langt, því að Besta er við sömu götu og Jöfur. Hilmar hefur því aldrei unn- ið annars staðar en við Nýbýlaveginn í Kópavogi. „Besta var stofnað í jan- úar 1988 og opnað í apríl sama ár. Fyrirtækið er í eigu aðila sem eiga einnig Burstagerðina-Sápugerðina Frigg í Garðabæ. Rekstur fyrirtækjanna er alveg að- skilinn þó að samvinnan sé auðvitað náin. ALLTAF PÖRF Á ÞRIFUM Reksturinn gengur prýði- lega en samkeppnin er hörð á þessum vettvangi. Það verður alltaf þörf fyrir þrif, sama hvað kreppir að, en í samdrættinum hefur helst dregið úr fjárfestingum í stórum og dýrum vélum. Það er þó ekki alltaf sparn- aður því sumir kaupa of litlar vélar og lenda í vandræð- um. Okkar mottó hefur verið að bjóða fyrsta flokks þjón- ustu við viðskiptavini og það hefur skilað sér í traustum hópi viðskiptavina sem margir hafa skipt við okkur frá upphafi. Það er mikil- vægt að þjónusta á þessu sviði sé lipur og traust og alltaf sé hægt að leita til okk- ar. Veitingastaðir og fleiri aðilar geta t.d. lent í algjör- um vandræðum ef þá vantar eitthvað til þrifa eða vélar bila. Vélamar sem við seljum eru frá Bandaríkjunum og Þýskalandi. Nú er að koma ný lína af gólfþvottavélum frá Þýskalandi, töluvert sjálfvirkari og afkastameiri en þær eldri. Frá viðskipta- aðilum okkar í Bandaríkjun- um koma reglulega ný hreinsiefni og gólfbón. Bandaríkjamenn geta lagt milljónir í þróunarstarf á slíkum efnum og em t.d. gólfbónin þaðan töluvert betri en þau íslensku." BOLTAÁHUGAMAÐUR ÚRVAL Hilmar er í sambúð með Steinunni Lindu Jónsdóttur, líffræðingi við Líffræði- stofnun Háskóla íslands. Hann á 9 ára gamla dóttur. „Ég hef verið áhugamað- ur um gamla bíla og hefur gaman af að gera upp og aka gömlum bflum. Ég starfaði í Fornbflaklúbbnum og flutti t.d. inn gamlan amerískan blæjubfl sem ég seldi ný- lega. Boltaíþróttir eru mitt uppáhald, ég var um tíma í stjórn handknattleiksdeildar Vals í fyrra og í vetur sé ég um framkvæmd heimaleikja Vals í handbolta. Öðru hverju spila ég fótbolta með gömlum félögum úr Val og fer í veggjatennis einu sinni í viku. Svo er húsið og garð- urinn líka áhugamál sem þarf að sinna,“ sagði Hilm- ar. 56

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.