Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Side 69

Frjáls verslun - 01.01.1995, Side 69
Nýju mjólkurumbúðirnar eru ekki aðeins umbúðir heldur samfelld og góð kennsla í íslensku. á mikilvægi þess að velja íslenskt og standa vörð um þau verðmæi sem íslenskur landbúnaður leggur grunn að.“ En hvað er gert ráð fyrir miklum íjármunum til þessa verkefnis Mjólk- ursamsölunnar? Gunnar Steinn segir að á þessu ári verði um þremur til fjórum milljónum varið til þeinna styrkja og ýmiskonar kostunar. Beinn auglýsingakostnaður verði tvær til þrjár milljónir og kostnaður vegna breytinga á mjólkurumbúðum verði um það bil ein milljón. Verði áfram unnið á svipuðum nótum er því ekki fjarri lagi að segja átakið kosta Mjólkursamsöluna um sjö milljónir á ári eða 35 milljónir þegar upp er stað- ið. En með aðgangi að mjólkurum- búðunum er hins vegar ljóst að „verð- mæti þessa samstarfs eru miklu meiri fyrir auglýsandann, íslenska tungu.“ Gunnar Steinn segist sannfærður um að Mjólkursamsalan fái þennan kostnað margfaldan til baka þegar upp er staðið og að samkeppnisstaða fýrirtækisins gagnvart innfluttum mjólkurvörum verði betri eftir en áður. „En ávinningur þjóðarinnar af þessu átaki verður ekki mældur í pen- ingum og vonandi munu fleiri fyrir- tæki fylgja í kjölfarið og ganga til liðs við íslenska tungu því sannarlega er sótt að henni úr öllu áttum. Nægir þar að nefna alþjóðlegt samstarf, alþjóð- lega fjölmiðlun, tölvuvæðingu og fleira.“ ATHYGLIUM ALLAN HEIM Um þessar mundir gegnir Gunnar Steinn formennsku í Alþjóðlegu aug- lýsingastofusamtökunum 3AI og af þeim sökum hefur hann gert víðreist síðustu mánuðina. Nú síðast fundaði hann með fjölmörgum auglýsingastof- um í Asíu og þar eins og annars staðar vakti hugmyndin um samstarf á sviði málverndar mikla athygli. „Menn þekkja ekki svona metnað fyrir tungumáli sínu. Menningararfur þjóðanna liggur oftast annar staðar og óvíða er að finna jafn einlæga ást á tungunni og á meðal íslensku þjóðar- innar. Við erum vön því hér að leika okkur að málinu, skrifa, yrkja, kveð- ast á, snúa út úr, fara í orðaleiki o.s.frv. Við hlustum á útvarpsþætti um íslenskt mál, lesum greinar, leið- réttum hvert annað og erum, þrátt fyrir allt, ótrúlega vel á verði. Eðli- lega finnst félögum mínum erlendis það merkilegt þegar ráðist er í jafn viðamikið samstarf um málvernd og hér um ræðir. Þeim finnst það reynd- ar alveg nógu merkilegt að við skulum hafa áhyggjur af málinu yfirhöfuð!“ Gunnar Steinn segir að þetta frum- kvæði Mjólkursamsölunnar hafi feng- ið afar góðar viðtökur. „í kvikmynda- húsum hefur það til dæmis margsinn- is gerst að fólk hefur klappað hraustlega að lokinni sýningu auglýs- ingarinnar. Lófatak í lok auglýsingar er nokkuð sem ég held að sé afar fátítt en það segir hins vegar meira en mörg orð um hve þjóðinni þykir vænt um tunguna sína.“ Svipmyndir úr sjónvarpsauglýsingu Mjólkursamsölunnar um íslenska málrækt og málvernd. Herferðin er afar frumleg. Hún hefur vakið athygli erlendra auglýsingamanna sem finnst það stórmerkilegt að auglýsa vernd tunguináls. 69

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.