Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Side 32

Frjáls verslun - 01.07.1996, Side 32
ekki með lægri tekjur en hálfa milljón á mánuði og að flestir séu með tekjur á bil- inu 500 til 800 þúsund. Nauðsynlegt er að geta þess að í tekjukönnun Frjálsrar verslunar er um skattskyldar tekjur að ræða. Þær þurfa ekki alltaf að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn get- ur falist í söluhagnaði eigna, tekjum af eignum, launum fyrir tímabundin nefndar- störf setu í stjórnum og svo framvegis. FORSTJÓRABÍLARNIR HÆKKA TEKJURNAR Ennfremur er vert að minna á að yfirgnæfandi hluti forstjóra og fram- kvæmdastjóra aka um á bíl- um í eigu fyrirtækjanna. Þessi hlunnindi eru metin til tekna og af þeim reiknast skattur; yfirleitt hátekjusk- attur. Þannig geta forstjórar haft um 67 til 80 þúsund á mánuði í reiknuðum tekjum vegna hlunninda. Sýnum þetta með dæmi. Fyrirtæki kaupir nýjan bíl handa forstjóranum á 4 mill- jónir króna. Á skattframtali verður forstjórinn að taka 20% af verði bflsins, eða 800 þúsund krónur á ári, og telja fram til skatts sem tekjur. Það gera um 67 þús- und krónur á mánuði. Kosti bfllinn 5 milljónir verður for- stjórinn að telja fram 1 mill- jón til tekna af bflnum, eða um 83 þúsund á mánuði. Enda þótt hann hafi ekki beint séð þá upphæð í vesk- inu hjá sér þarf hann engu að síður að greiða nær 40 þús- und krónur af henni í skatta á mánuði. Á móti kemur að það eru mikil hlunnindi að hafa for- stjórabfl til umráða. For- stjórinn losnar við að kaupa sér bfl og getur því bundið fé í öðru. Hann þarf aldrei að kaupa bensín eða hugsa um viðhald; fyrirtækið sér al- gerlega um rekstur bflsins. Og takið eftir! Líka þegar hann er notaður í einkaer- indum. Skatturinn gerir engan greinarmun á því hvort for- stjórabfll sé jeppi eða fólks- bfll. Það er verð bflsins sem ræður andvirði hlunnind- anna. Þess vegna velja margirforstjórarjeppa. Þeir nýtast betur í einkaerindun- um - fyrir frítímann og í ferðalögunum - en lúxus- fólksbfll. Ef við gefum okkur að flestir forstjórar séu á fyrir- tækjabflum, sem kosta á bil- inu 2 til 4 milljónir króna, er ljóst að þeir eru að fá hlunn- indatekjur á sig sem nema frá 400 til 800 þúsund krón- um á ári, eða um 34 til 67 þúsund krónum á mánuði. Hafi forstjóri 500 þúsund í laun á mánuði, og auk þess afnot af 4 milljóna króna bfl fyrirtækisins, nema skatt- skyldar tekjur hans um 567 þúsund krónum á mánuði. STJÓRAR í FJÁRMÁLAHEIMINUM SJALDAN UNDIR 500 ÞÚS. Tekjukönnunin sýnir í fyrsta skipti lítinn mun á meðaltekjum forstjóra í fyrirtækjum og stjórnend- um fjármálafyrirtækja. Þeir síðamefndu hafa til þessa verið með talsvert hærri meðaltekjur en forstjórar og helstu stjómendur fyrir- tækja. Hluti af skýringunni er væntanlega hærri meðal- tekjur forstjóra vegna minna úrtaks en áður. Tekjur stjómenda í fjármálafyrir- tækjum fara sjaldan undir 400 þúsund krónur á mán- uði. Langalgengast er að þær séu á bilinu frá 500 til 800þúsund. Könnunin sýnir að um 70% þeirra eru með tekjur á þessu bili. Byr í seglin. Verkfræðingar og arkitektar sem og al- mennir tannlæknar og flugstjórar voru á meðal þeirra starfshópa sem fengu byr í seglin á síðsta ári. Dreifing tekna hjá forstjórunum 50 í úrtakinu. Sex forstjórar eru með tekjur yfir 1 milljón. Langflestir, eða nær helmingur, eru með tekjur á bilinu frá 500 til 800 þúsund krónur á mánuði. 32

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.