Frjáls verslun - 01.05.2000, Blaðsíða 21
Vitnað í
Vísbendingu
Áskriftarsími: 561 7575
Áhættufjárfestar segja að nú sé meira framboð á áhættufé en góðum hugmynd-
um sem eru komnar það langt í rannsóknum og þróunarvinnu að hægt sé að
taka afstöðu til viðskiptahugmynda er á þeim byggjast.
Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri RANNIS
(Nýsköpun í þekkingarþjóðfélagi)
Langflestir þeirra innflytjenda sem eru á Islandi eru frá mjög ríkum þjóðum, eða
64%, þannig að í hæsta lagi eru það um 5.300 manns eða 2% íbúa landsins, sem
gætu talist til innflytjenda frá þróunarlöndum.
Eyþór ívar Jónsson, ritstjóri Vísbendingar (Fólksflutningar til landsins)
Skuldirnar [sjávarútvegsinsj námu um 170 milljörðum króna í árslok 1999 skv.
nýáætluðum tölum frá Seðlabanka íslands og Þjóðhagsstofnun og hafa aldrei ver-
ið meiri. Þetta gerir 12,5 milljónir króna á hvern vinnandi mann í sjávarútvegi.
Þorvaldur Gylfason, prófessor (Framleiðni og lánsfé)
Þetta þýðir að verg landsframleiðsla á mann hefur nær fimmtánfaldast á Islandi
á öldinni. Þetta verður að teljast talsvert góður árangur í samanburði við að á
heimsvísu hefur framleiðsla á mann fimmfaldast.
Eyþór Ivar Jónsson, ritstjóri Vísbendingar (Öld hagsældar)
Viltnundur Jósefsson, formaður Samtaka iðnað-
arins, flutti ávarp á sýningunni.
Bygginga-
dagar
tórsýningin Byggingadagar 2000 var nylega hald-
in í Laugardalshöll undir yfirskriftinni Hús og
garðar - hönnun og handverk og tóku um 100
sýnendur þátt. Á sýningunni mátti sjá allt milli himins og
jarðar viðkomandi húsum og görðum en meðal annars
vakti athygli handverkssýning meistara- og sveinafélaga í
sérsmíðuðu húsi inni í Höllinni. Um 10 þúsund manns
sóttu sýninguna.IH
Iðnaðarmenn sýndu handverk sitt i Höllinni.
Myndir: Geir
Olafsson.
Ip/Y)/Jn//Ay
VERÐBRÉF
Garðastrœti 38 ■ Sími:S40 3200 ■ Fax: S40 3201 ■ www.mp.is
19