Fregnir - 01.03.2004, Blaðsíða 13

Fregnir - 01.03.2004, Blaðsíða 13
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða kerfin? Upplýsingar sem eiga sér stað í einu kerfi komast hvergi fyrir í öðru. í sam- eiginlegu bókasafnskerfi bætist þriðji þátturinn við, þ.e.a.s. sameining upplýsinganna. Það hefur til dæmis reynst þrautin þyngri að sameina einn og sama bókfræðititilinn, annarsvegar úr Gegni og hinsvegar úr Feng og það sama rná segja um lánþegana. Hér á eftir langar mig að segja lítillega frá lánþegaskírteinum í sameiginlegu bókasafns- kerfi. Þjóðskráin Það má segja að lánþegaskírteinin endurspegli hvað best samruna tveggja kerfa og margra bókasafna í eitt kerfi. Ein af grunnhugmyndum um eitt bókasafnskerfi fýrir öll söfn landsins var að útrýma tví/margverknaði bæði varðandi skráningu lánþega- og bókfræðiupplýsinga. Gengið var út frá því að allir landsmenn væru lánþegar bóka- safnanna og því lægi þjóðskráin til grundvallar. Tæknileg vandamál hafa hingað til komið í veg fýrir að hægt sé að hlaða þjóðskránni inn í bókasafnkerfið en nú eru þau vandamál úr sögunni. Þjóðskráin mun því verða aðgengileg í Gegni fljótlega. Hvað þýðir sameiginleg skráning lánþega? Sameiginleg skráning lánþega felur í sér að lánþegar / einstaklingar eru fyrst og fremst skráðir á kennitölu. Hver einstaklingur getur verið lánþegi í mörgum söfnum. í dag eru flestir lánþegar með sérstakt skírteini í þeim söfnum sem þeir eru virkir í. Skír- teinisnúmer er strikamerki sem tengt er við lánþegann. Hver einstaklingur er því með mörg skírteini í jafn mörgum söfnum. I Gegni er hver einstaklingur hinsvegar skráður einu sinni á kennitölu. Við yfir- færslu lánþega bæði úr gamla Gegni og Feng var eitt skírteinisnúmer / strikamerki flutt ffá hverjum einstaklingi í lánþegaskrá Gegnis. Þetta þýðir að einungis eitt skír- teinisnúmer er í kerfinu, sjá mynd. Hvaða bókasafn eða lánþegaskírteini er ríkjandi? Yfirfærsla lánþega stjómar því hvaða númer flyst yfir í nýja Gegni. í raun gildir hvaða safn skráði lánþegann fýrst. Goggunarröðin er eftirfarandi: 1. Gömlu Gegnissöfnin 1.1. Það safn sem skráði einstaklinginn fyrst af gömlu Gegnissöfnunum 2. Einstaklingar sem vom skráðir í nýja Gegni, frá 19. maí 2003 3. Fengssöfnin 3.1. Það safn sem skráði einstaklingin fyrst af Fengssöfnunum Af þessu er ljóst að ekki er hægt að treysta á gömlu lánþegaskírteinin í Gegni. Hend- ing ein ræður hvort lánþeganúmer einstaks safns sé gilt. Þumalputtareglan er að nota 29. árg. - 1. tbl. 2004 - bls. 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.