Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 26
26 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUÐAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Hver fínnst Undirbúningur fyrir HM ‘95: Úttekt á stöðu línumanns Geir Svesnsson Gústaf Bjarnason Eiður Smári að leika sér... leika stöðu ^ Unumanns Erla Rafnsdóttir markaðsstjóri Opna Casio-golfmótið Robert Gamezsigraði Opna Casio-mótinu í golfi lauk í gær með sigri Bandaríkjamannsins Robert Gamez. Hann lék hringina íjóra á 68-66-68-69, eða samtals 271 höggi. Scott Hoch frá Bandaríkj- unum kom næstur á 275 höggum og þeir Jose Maria Olazabal og Eiji Mizoguchi voru í þriðja til fjórða sæti á 277 höggum. Mótið fór fram í Ibusuki í Japan.B ATP heimsmeistaramótið í tvíliðaleik Apellog Bjorkman unnu Svíarnir Jan Apell og Jonas Bjorkman unnu í gær þá Todd Woodbridge og Mark Woodforde frá Ástralíu í úrslitaleik ATP heims- meistaramótsins í tvíliðaleik í tenn- is. Leikurinn var æsispennandi all- an tímann en Svíarnir unnu 6-4 4- 64-67-6 (7-5) 7-6 Í7-5)-* Aridartakið Heimsmeistaramótið í alpagreinum Bahler vann sinn fyrsta sigur Svisslenska skíðakonan Heidi Zeller-Bahler vann á laugardag sinn íyrsta sigur í heimsmeistara- keppninni í alpagreinum. Þá vann hún fyrstu stórsvigskeppnina á tímabilinu sem fram fór í Utah. Ba- hler á að baki tíu ára keppnisferil en hefur hingað til ekki tekist að vinna keppni. Það var fyrst og fremst góð seinni umferð sem færði henni sig- ur en þá skaust hún upp fyrir Sa- binu Panzanini, sem hafði forystu eftir fyrri umferð.B Ákveðinn „Árstíðabundnar sveiflur" Hávaxinn Líkamlega sterkur Útsjónarsamur „Heill handboltamaður" Hvetjandi Vinnsla Mikil reynsla Handboltamaður á heimsmælikvarða „Geir Sveinsson og Gústaf Bjarna- son. Geir er allt öðruvísi línumaður en Gústaf. Hann er lykilmaður í vörn og vinnur meira fyrir skyttur í sókninni. Gústaf er ekki eins mikill varnar- maður en engu að síður er gott að hafa hann í horninu í vörn upp á hraðaupphlaupin að gera, því þau nýtast vel með hann í horninu." Samúel Órn Erlingsson íþrótta- fréttamaður „Geir Sveinsson og Gústaf Bjarna- son. Þessir standa öðrum línumönn- um framar, bæði hvað varðar hæfi- leika og reynslu. Geir er einn -besti línumaður heims og verður aðal- maðurinn í íslenska liðinu. Honum hefur gengið upp og ofan undan- farið en ég er sannfærður um að hann eigi eftir að sýna allt sitt besta á HM. Gústaf kemur til með að spila minna en Geir, en hann þarf ekki að skammast sín fyrir að vera varamaður á eftir einum besta handboltamanni heims. Þó Gústaf sé varamaður í íslenska liðinu er hann lykilmaður og geysilega mik- ilvægur fyrir liðið. Hann getur spil- að bæði horn og línu og það er sér- staklega mikilvægt í ljósi þess að aðeins mega tólf leikmenn vera á leikskýrslu.“ ■ Geir og Gústaf verða á línunni I síðustu viku hóf MORGUN- PÓSTURINN niðurtalningu fyrir HM ‘95 með því að gera úttekt á stöðu leikstjórnanda íslenska liðs- ins í keppninni. Niðurstöður voru á þann veg að Dagur Sigurðsson kom best út og Patrekur Jóhann- esson næstur á eftir honum. Nú er komið að öðrum hluta niðurtaln- ingarinnar og að þessu sinni veltum við fyrir okkur stöðu línumanns. Einhvern veginn virðist það liggja í augum uppi-hverjir koma til með að leysa línumannsstöðu ís- lenska landsliðsins á HM. Geir Sveinsson hefur verið lykilmaður, og um leið einn af máttarstólpum íslenska landsliðsins, um árabil. Gústaf Bjarnason er ungur að ár- um en telst þó vart nýliði með landsliðinu. Enn sem komið er hef- ur hann ekki hlotið mikla reynsiu með landsliðinu en hefur þó bætt töluvert við upp á síðkastið og er í dag mikilvægur hlekkur í liðinu. Viðmælendur MORGUNPÓSTSINS voru sammála um að þetta væru þeir tveir leikmenn sem koma til með að leika stöðu línumanns, og hér á síðunni getur að líta ummæli um þá. Þorbjörn Jensson „Ég tel að Geir Sveinsson og Gústaf Bjarnason komi til með leysa þessa stöðu í keppninni. Geir verður línumaður númer eitt og kemur til með að spila meira en Gústaf. Það er hæpið að liðið spili með þá báða í einu í venjulegu spili. Hins vegar getur það komið til greina á móti vissum vörnum, og þá gæti hentað vel að skjóta Gústaf inn á. Ég þekki Geir mjög vel. Hann er heilsteyptur persónuleiki og hefur ákveðnar skoðanir á hlutunum. Ákveðnin fleytir honum langt og hann lætur ekki vaða ofan í sig. Hann er stór og líkamlega sterkur og útsjónarsamur leikmaður. Þá er hann fyrsta flokks varnarmaður, og er það sem menn kalla „heill hand- boltamaður“, en það eru þeir leik- menn sem skila bæði fyrsta flokks varnar- og sóknarhlutverki. Geir er gífurlega sterkur og hvetjandi fyrir liðið, sem er mjög mikilvægt fyrir það. Ef ég ætti að gera upp á milli hvort hann væri betri sem varnar- maður eða sóknarmaður, verð ég að segja að hánn hefur fleiri plúsa sem varnarmaður. Hins vegar verð- ur hann sífellt sterkari og sterkari línumaður. Geir hefur afskaplega fáa veikleika sem handboltamaður. Mér dettur helst í hug að oft er hann verri á haustin en sækir síðan í sig veðrið eftir því sem líður á vet- urinn og nær síðan toppnum á vor- in, eins konar árstíðabundnar sveiflur. Á heildina litið hefur Geir allt til að bera sem góður línumað- ur þarf. Gústaf er mjög ólíkur línumaður miðað við Geir, og munar þar miklu og stærð og styrk. Gústaf er ekki eins stór en býr að sama skapi yfir mikilli útsjónarsemi og snerpu. Þá er það ótvíræður kostur við hann að hann getur spilað bæði horn og línu, og er fljótur í hraða- upphlaupum, sem er akkúrat það sem línumaður þarf að vera. Hann hefur mikið keppnisskap og fórnar sér hundrað prósent fyrir liðið. Veikleikar hans felast í stærðinni og eins því að hann mætti vera líkam- lega sterkari. Þá á hann það til að detta niður á að nýta færin sín illa. Manni finnst eins og það sé ein- stöku sinnum kæruleysisbragur yfir honum, en það batnar með aukinni reynslu.“ Þorgils Ottar Mathiesen „Geir Sveinsson og Gústaf Bjarnason verða í eldlínunni á HM. Þriðji maðurinn í hópnum er Þorbjörn Jensson: „Geir hefur afskaplega fáa veikleika sem handboltamaður." Færeyingar taka sig á Knudsen, tak hatt þmn Hver man ekki eftir færeyska markverðinum Jens Martin Knudsen? Þessum með húfuna sem varði alltaf eins og berserkur? Nú, eru það kannski ekki svo marg- ir. Ja, allavega var hann líklega sá frægasti af þeim öllum og húfan var vörumerki hans um árabil þegar færeyska landsliðið lék undir stjórn Islendingsins Páls Guðlaugsson- ar. Nú eru þeir dagar að baki, Páll hættur með liðið og við er tekin danska goðsögnin Allan Simon- sen og eitt það fyrsta sem Knudsen fékk að heyra var, burt með húf- una! Simonsen segir að nú sé kominn tími til að Færeyingar aðlagi sig að Jens Martin Knudsen hefur orðið að taka vörumerkið sitt niður og nú næðir um eyru hans eins og allra annarra á vellinum. raunveruleikanum og átti sig á því að ef einhver árangur á að nást verður hugurinn og einbeitingin að vera í góðu lagi. Þó segir Knudsen að erfitt sé að ætlast til sigurs frá landsliði svo lít- illar þjóðar. „Ég legg áherslu á að leikirnir séu skemmtilegir og að við leikum sóknarbolta. Þannig ættum við smám saman að geta fjölgað okkar mörkum og með góðri ein- beitingu, einnig að fækka mörkum andstæðinganna. Enn sem komið er hefur dæmið gengið upp og ofan hjá frændum vorum. Liðið leikur skemmtilegan bolta, og víst eru mörkin mörg þótt þau séu flest, enn sem komið er, gerð af andstæðingunum. En eitt er þó athyglisvert; liðið hefur gert tvö mörk í leikjum sínum, og það er meira en sum landslið, ónefnd, geta státað sig af. ■ „Gústaf hefur þann ótvíræða kost að geta spilað bæði horn og línu. síðan Róbert Sighvatsson úr Aft- ureldingu, en ég efast um að hann komi til með leika mikið. Hins veg- ar er þar framtíðarleikmaður á ferð. Geir verður línumaður númer eitt. Hann hefur geysilega vinnslu, er mjög sterkur í vörn og sókn, og hefur í raun allt til að bera sem góð- ur línumaður þarf. Þá býr hann yfir mikilli reynslu sem nýtist liðinu vel. Veikleikarnir eru fáir ef einhverjir. Hins vegur verður hann að passa sig á að keyra sig ekki út og fá leið á þessu. Geir er línumaður á heims- mælikvarða og er tvímælalaust í hópi þeirra bestu í heiminum. Gústaf Bjarnason er ekki eins há- váxinn og Geir, og hefur ekki yfir sama styrk að ráða. Hann vinnur það hins vegar að einhverju leyti upp með snerpu og útsjónarsemi. Hann er hann mjög lipur leikmað- ur og hefur auk þess þann ótvíræða kost að geta spilað bæði horn og línu. Veikleikar Gústafs felast fyrst og fremst í reynsluleysi með lands- liðinu, og því að hann er veikur í vörn. Það háir honum mjög að geta ekki verið alhliða varnarmaður, einfaldlega vegna þess að hann er ekki nógu hávaxinn. Hingað til hef- ur lítið reynt á hann með landslið- inu af því að Geir hefur spilað mun meira. Þegar hann hefur síðan fengið að spreyta sig hefur hann staðið sig vel. Ég held að það geti al- veg komið til greina að spila með tvo línumenn gegn vissum liðum. Það eru nokkur leikkerfi sem byggj- ast upp á því. Hins vegar held ég að það gangi ekki upp að spila með tvo fasta línumenn.“ -RM □ B Útsjónarsemi Líkamlegur styrkleiki Snerpa Hæð Spilar bæði horn og línu Á til að nýta færin illa Fljótur Reynsluleysi Keppnisskap Veikur varnarmaður Ósérhlífinn Lipur

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.