Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 10
10 Loks eftir eins árs setu við stjórnvölinn í borginni má merkja lífsmark með R-list- anum. Á laugardag mun Regnboginn, samtök um Reykja- víkurlista, efna til sumarhátíðar í mið- borg Reykjavíkur. Hefst hátíðin klukkan hálftvö með skrúð- göngu frá Laugaveg- inum niður á ingólfs- torg, en í fararbroddi verður Götuleikhús- ið sem mun hreyfa sig í takt við lifandi tónlist. Aðaluppá- koman á Ingólfstorgi verður þegar hljóm- sveitin Unun stígur á stall ásamt sveitun- um Stingandi strái og Glimmeri. En það er ekki það eina sem um verður að vera á torginu því einnig verður komið fyrir spákonutjaldi, Kvennakór Reykja- víkur syngur og efnt verður til flóamark- aðs, svo fátt eitt sé nefnt. Og svona til þess að krydda uppákomuna pólit- ískum blæ mun borg- arstjórinn, Ingibjörg SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, flytja ávarp. Um kvöldið verður hátíð- inni haldið áfram undir tónum hinna ástsælu Spaða á Kaffi Reykjavík, sem stundum hefur verið kölluð menntaðasta hljómsveit, það er að segja í öðru en hljóð- færaleik... veitingastaðarins L.A. Café um tæplega þriggja mánaða skeið. Það var áður „farfuglaheimili fyrir Tæiendinga" að sögn fyrrum starfsmanns Jósteins. Umfangsmiklar breyt- ingar voru ráðgerðar en á endanum var látið nægja að skipta um tæki í eldhúsinu og dýnur í rúmum. Suzuki BALENO N$r Japanskar fjðlikyldubm ífullrl stoarð Útúlegs Imgstætt verð Mkr. 1.089.000.- Suzuki Baleno býðst 3ja eða 4ra dyra með vali um tvær aflmiklar 16 ventla vélar, 86 hö eða 99 hö. Val er um 5 gíra handskiptingu eða sjálfskiptingu í öllum gerðum Suzuki Baleno. Komið og reynsluakið. $ SUZUKI wmmmmmmmjý^^^Lm ÐALENO - AFL OG ÖRYGGI SUZUKI BILAR HF. SKEIFAN 17 - SÍMI: 568 5100 f nóvember síðastliðnum opnaði Jósteinn Kristjánsson hótel og veit- ingahús á Pattaya á Tælandi undir nafninu L.A. Café. Það ævintýri varði stutt, því í febrúar var búið að loka því aftur. Mönnum ber hins vegar ekki saman um hvernig að þeirri lok- un var staðið í febrúar síðastliðnum endaði Tælandsævintýri Jósteins Krist- jánssonar sem setti upp útibú frá L.A. Café á Pattaya á Tælandi. Samkvæmt heimildum PÓSTSINS lauk ævintýrinu með því að eig- endur húsnæðisins létu henda hótelstjóranum, Kristjáni Jó- steinssyni, og þremur öðrum ís- lendingum út af hótelinu en héldu eftir pjönkum þeirra og vegabréfum vegna vanskila. Áð- ur var búið að fjarlægja bæði sjónvörp og loftkælingar úr gestaherbergjunum, þar sem ekkert hafði verið greitt af tækj- unum umfram upphaflegu út- borgunina. „Þetta er ekki rétt,“ sagði Jó- steinn í samtali við blaðamann. „Við lokuðum hótelinu sjálfir af því þetta bar sig ekki og við töld- um ekki rétt að halda áfram með þetta. Og þegar rekstrinum var hætt þá seldum við auðvitað þau tæki sem við gátum. Þetta var keypt á afborgunum, en það var allt borgað upp í topp, annars hefðum við ekki getað selt þetta.“ ALLT GERT UPPTÆKT íslenskur starfsmaður á hótel- inu hefur aðra sögu að segja. „Hótelið var vaktað undir lokin, bæði af eigendunum og fulltrú- um fyrirtækjanna sem seldu þeim græjurnar. Þegar búið var að veðsetja fyrstu tvær loftkæ- lingarnar komu menn frá söluað- ilunum og fjarlægðu það sem eft- ir var, enda höfðu þeir ekki feng- ið neitt borgað utan afborgun- ina. Gestir sátu eftir sjónvarps- lausir og í svitakófi.“ Þessi starfs- maður flutti sig ásamt kollega sínum á annað hótel nokkru síð- ar, og daginn eftir var L.A. Café lokað. „Það voru fjórir íslending- ar eftir þegar þetta gerðist, Krist- ján, Vilhjálmur Ástráðsson og tveir til viðbótar. Þeim var hent út en dótinu þeirra haldið eftir, þar á meðal vegabréfunum. Þeim tókst síðan að komast inn aftur og ná í það sem þá vantaði." „Þetta er bara hauga helvítis blaður,“ segir Jósteinn. „Vil- hjálmur er góður vinur minn og hann lenti ekki í neinum vand- ræðum þarna úti.“ LAUIUAGREIÐSLUR í VAIUSKILUM Að sögn íslensku kokkanna tveggja sem unnu fyrir Jóstein greiddi hann Iaun þeirra bæði seint og illa og öðrum greiddi hann jafnvel ekki neitt. „Þegar þessu var lokað skuldaði hann jafnvel þessum láglaunuðu Tæ- lendingum sem búið var að þræla út í meira en mánuð þau litlu laun sem þeir áttu að fá.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.