Alþýðublaðið - 10.08.1976, Page 1

Alþýðublaðið - 10.08.1976, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST Áskriftar- síminn er 14-900 I BLAÐINU I DAG Baráttan gegn berklum Dr. Sigurður Sigurðsson fyrrum land- læknir hefur tekið saman itarlegt yfirlit um verkanir berklanna hér á landi og hvernig landsmönnum vegnaði i barátt- unni gegn þessum skelfilega sjúkdómi og hvernig tókst að sigrast að fullu á honum. Sjá opnu Þjóðsagan og skímslið Loch Ness er þekktasta vatn Skotlands. Þar hefur alþýða manna um langan aldur taliðað væri að finna skrimsli og hafa veriö settar fram margar kenningar um hvernig á tilvist þess stendur. Sjá bls. 7 'Sr SOL Rannsóknarstofa KEA Kaupfélag Eyfirðinga hefur ákveðið að koma á fót sérstakri rannsóknastofu til þess að fylgjast með gæðum framleiðslu kjötvinnslustöðvar fyriritækisins. Þetta er ákveðið vegna nýútkominnar reglu- gerðar Sjá bls. 3 íacz o( iCO' 50 n Náttfari fyrir þremur árum Náttfari hefur skelft margan þann sem haft hefur fjármuni sina heima. Alþýðu- blaðið birti fyrir þremur árum bréf frá lesanda sem sagði sögu af náttfara einum sem ekki vann á ósvipaðan hátt og þessi gerir. Eignarhald á landi Alþýðuflokkurinn hefur fyrir alllöngu sett fram itarlegar tillögur um skipan eignar- halds á landi. Þær hafa þvi miður ekki hlotið þann hljómgrunn. enn sem siðar mun verða. Alyktanir ráðstefnu Sameinuöu þjóðanna um þetta mál eru i góðu sam- ræmi við tillögur Alþýðuflokksins. Bolvíkingar mótmæltu í fyrra ENN FAST ENGflR SKÝRINGAR Á SKflTT- LEYSI HflTEKJUMflNNfl Þegar skattskrá Vestfjarðaumdæmis var lögð fram i fyrra báru Bolvik- ingar fram skrifleg mótmæli gegn því misræmi,sem fram kom i skattskrá Bolungarvikur. Undir þetta bréf rituðu 50 skattgreiðendur nöfn sin og bentu á, að nær allir þeir sem stundi vélbátaútgerð séu skattlausir, en ekki fari á milli mála að tekjur þeirra séu miklar. Er bent á bilakaup, siglingar og fleira i þvi sambandi. Alþýðublaðið hafði samband við Ævar tsberg, sem nú gegnir . störfum rikisskattstjóra og spurðist fyrir um hvaða ráðstaf- anir hefðu verið gerðar vegna bréfsins. Ævar sagði, að svipað bréf hefði einnig borizt frá ibú- um Hverageröis. Ákveðið hefði verið að taka skattamál Boivik- ina til rannsóknar og þáverandi skattrannsóknarstjóri, Ólafi Nilssyni, falin framkvæmdin. En Ævar sagðist ekki hafa séð niðurstöður athugunanna. Gunnar Jóhannsson skattrann- sóknarstjóri sagði i samtali við blaðið, að Óiafur Nilsson hefði skilað skýrslu um þessa rann- sókn til fjármálaráðuneytisins og málið þvi ekki lengur hjá skattrannsóknardeild. Höskuldur Jónsson ráðuneyt- isstjóri fjármálaráðuneytisins sagði i samtali við blaðið, að þau atriði sem þarna voru á ferðinni hefðu fyrst og fremst varöaö afskriftir og rekstrar- tap. Þessir liðir væru i skatta- lögunum hversu réttlátir sem þeir væru. En það heföi verið rannsakað hverjar ástæður lægju að baki þessum iágu sköttum, sem vitnað var til i bréfi Bolvikinganna. Hér væri frekar hægt aö tala um heimiid- ir I ska ttalögum heldur en skatt- svik og þvi sneri þetta mál frek- ar að iöggjafanum. Sagði Hösk- uldur, að Bolvikingum hefði ekki verið send greinargerð vegna þessarar könnunar.. Ekkert svar Alþýðublaðið snéri sér tii Ein- ars Helgasonar verksmiðju- stjóra á Bolungarvik, en hann var einn 50 mcnninganna sem skrifuðu undir mótmælabréfið. Einar sagði að lengi vel hefði verið beðið svars við erindi þeirra, en aldrei hefði það kom- ið. Menn voru kallaðir fyrir skattstjóranna á isafirði og beðnir að tilgreina nöfn manna, sem iitla eða enga skatta greiddu. Fannst bréfriturum raunar slikt liggja I augum uppi. Einnig voru þeir spuröir hvort þetta væri pólitiskt, en Einar sagöi að fólk úr öllum fiokkum hefði staðið að undir- skriftunum og þvi út i hött að reyna að gera þetta pólitiskt. Hann sagði að fyrir þeim hefði einfaldiega vakað að fá vitn- eskju um hvort þaö gæti staðist, að menn sem lifðu I vellysting- um bæru ekki tekjuskatt á við aldrað verkafólk, eða hvort þessir skattleysingjar nytu ein- hverra sérstakra friðinda. Þvi hefði verið frdðlegt að fá skýr svör, en þvi miður hefðu engin borizt. Óbreytt ástand Einar var þá spuröur hvort skattskráin i ár væri nokkuð réttiátari en I fyrra. Hann kvaðst ekki hafa kynnt sér hana enn, hins vegar hefði hann heyrt að sömu aðilar væru enn með lágmarksskatt, enda giltu sömu lög og i fyrra. Greinilegt væri að þingmennirnir hefðu ekki tima til að sinna þessum málum. — SG Sektarmiða vantar - og ekkert sektað í fjóra mánuði Undanfarna mánuði hefur Reykjavikurlög- regian ekki beitt sektar- ákvæðum gegn þeim ökumönnum sem lagt hafa bifreiðum sinum ólöglega.l Astæðan til þess er sú að dómsmála- ráðuneytið hefur ekki gefið út svokallaðar sektarbækur, en sektar- miðarnir sem festir eru við bifreiðarnar eru skrifaðir út úr þeim bók- um. Samkvæmt upplýs- ingum sem Alþýðublað- ið hefur aflað sér hefur þetta ástand varað i fjóra og hálfan mánuð. Að sögn HjaltaZóphóniassonari dóm smálaráöuneytinu hefur ráðuneytið ekki gefið téðar sekt- arbækur út vegna þess að staðið hefur yfir endurskoðun sektar- upphæða. Hann kvaðþess þó ekki langt að biða að bækurnar yrðu gefnar út að nýju. Hjalti sagði að upphæðirnar hefðu verið óbreyttar frá í sept- embermánuöi árið 1974 og þvi þætti orðið tfmabært að hækka þær til samræmis við það sem verðlag á öllum hlutum hefur hækkað á þvi timabili sem liöið er frá þvi að upphæðirnar voru hækkaðar siðast. Hann sagði að rikissaksóknari gæfi út skrá þar sem sektarupp- hæðir væru ákveönar og ráðu- neytið færieftir þeirri skrá þegar sektarbækur væru prentaðar. Hjalti sagði aö innan skamms væri að vænta þess að handrit að þeim hluta skrárinnar sem hefði að geyma sektarupphæðir sem lögreglumönnum er heimilt aö beita, yrði tilbúið til prentunar, en trúlega liði lengri timi þar til tæmandi skrá um sektarupphæðir liggur fyrir. — EB Ritst|órn Síöumúla II - Sfmi 8181

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.