Alþýðublaðið - 04.05.1977, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 04.05.1977, Blaðsíða 16
Sölumiðstöðin biður um aukavinnuheimildir: Eina leidin ad ganga til samninga sem fyrst - segir í svari Alþýdusambandsins t gær sendi Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna bréf til samninga- nefndar ASI, þar sem þess var farið á leit við nefndina að boðað yfirvinnuverkfall verði ekki látið ná til vinnslu sjávarafurða. Þau rök eru lögö fram fyrir þessari beiðni, aö banniö leiði af sér skemmd á afla og viða leiöi það ekki aðeins af sér yfirvinnubann, heldur einnig atvinnuieysi, svo sem i þeim þorpum útiá landi þar sem atvinna byggist á einu tog- skipi, sem vinna þurfi aflann úr þegar það kemur að landi. Eina leiðin að semja Bréf þetta var borið upp i upp- hafi samningafundar i gær og var svar samninganefndar til SH sent að vörmu spori. Það hljóöaði þannig: „Vegna bréfs yðar, dags. i dag, þar sem þér óskið undanþágu frá yfirvinnubanni vegna vinnslu sjávarafurða vill samninga- nefndin tjá yður eftirfarandi: 1. Að frá upphafi hefur banniö verið hugsað án undantekninga og þvi óhugsandi að veita undan- þágu sem næði til einnar stærstu atvinnugreinarinnar. 2. Eins og samþykktir stjórna- og trúnaöarmannaráða verkalýðsfé- laganna bera með sér hafa þau á- kveðið að yfirvinnubannið nái til allra atvinnugreina. 3. Sé hér um að ræða svo baga- lega aðgerð fyrir fiskiönaðinn, sem bréf yðar lýsir, eiga atvinnu- rekendasamtökin þá leið eina færa að ganga þegar I stað eða sem fyrst til samninga við verka- lýöshreyfinguna, en okkur er vel kunnugt um að fjöldi forustu- manna fyrirtækja i fiskiðnaði og sjávarútvegi telja kröfur verka- lýðssamtakanna bæði sanngjarn- ar og framkvæmanlegar vegna góðrar afkomu fyrirtækjanna.” Hægt að dreifa aflanum Björn Jónsson lét i ljós þá skoð- un á fundinum i gær, að vanda- málið með fiskvinnsluna væri hægt að leysa á annan hátt en þann, að gefa undanþágu undan yfirvinnubanninu. Þannig væru sjávarþorp viða um land sem gætu auðveldlega tekið við meiri fiski til vinnslu og þvi væri leiðin einfaldlega sú, að dreifa aflanum á þessa staöi. —hm Atvinnurekendur: Boda heildar- tillögur Baknefndarfundi frestað A samningafundi sem hald- inn var á Loftleiöahótelinu i gær klukkan 17,— og lauk eftir háifan annan tima — boðuöu atvinnurekendur aö þeir myndu ieggja fram heildartil- lögur til lausnar vinnudeilunni á morgun, fimmtudag. Vegna þessa hefur verið boöaður sáttafundur kl. 14 á morgun, en baknefndarfundi sem boð- aöur hafði verið kl. 16 á morg- un hefur verið frestað til nk. laugardags. —hm Fiskvinnslustöðvar viija semja — Sjá bls. 10 Fljótlega byrjað að dæla kisilgúr í eina þró: HONNUÐIR ÞRONNA í MÝVATNSSVEIT — Alit jarðvisindamanna varðandi þróun mála hér á næstu mánuðum og árum setur okkur auðvitað I mikinn vanda og á þessu stigi málsins er ekk- ert hægt aö setja hvaö munum taka til bragös. Hér er stöðugt unniö að rannsóknum á svæðinu umhverfis verksmiðjuna og á mannvirkjum tengdum verk- smiðjuekstrinum. Meðal annars eru hér nú staddir sérfræðingar þeir sem hönnuðu hráefnis- þrærnar á sfnum tima. Þannig fórust orð Þorsteini Ólafssyni framkvæmdastjóra Kisiliðjunnar, er Alþýðublaðið grennslaðist fyrir um þaö, hvort teknar hafi verið fullnaðar- ákvarðanir um framtiöarrekst- ur verksmiöjunnar eftir áfallið sem hún varö fyrir á dögunum. Tvær af þremur hráefnisþróm verksmiðjunnar eyöilögöust I náttúruhamförunum, en nú er unniö af fullum krafti viö vinnslu hráefnis úr þrónni sem slapp óskemmd. Mun vinnsla þess taka einn mánuð. Þor- steinn sagði að fljótlega myndi dæluprammi Kísiliðjunnar sett- ur á flot og þá yrði dælt kisilgúr af botni Mývants I heilu þróna. Þarf kfsillinn að standa I henni áður en hann veröur vinnslu- hæfur og tekur það kisilinn um einn mánuð að setjast til. Von- ast er til að hægt veröi að vinna i verksmiðjunni án tafa, þrátt fyrir að aöeins sé ein hráefnis- þró f lagi. Þorsteinn kvað þaö fjarlægan möguleika að gera við þrærnar tvær sem eyöilögð- ust. —ARH fslenzkt bílaflutn ingaskip í sigling um erlendis Verkalýðsfélag Grindavíkur: 110 ÞÚSUND FYRIR DAG- VINNUNA EÐA YFIRVINNUBANN Stjórn og trúnaðar- mannaráð Verkalýðs- félags Grindavíkur hélt fund á mánudagsmorg- un og var yfirvinnu- bann Alþýðusam- bandsins til umræðu. Var samþykkt með 7 atkvæðum gegn 1 að taka þátt i yfirvinnu- banni. Fundurinn samþykkti að gera Vinnuveitendasamband Grinda- vfkur tilboö og var þaö afhent vinnuveitendum f gær. í bréfi verkalýðsfélagsins segir, að samþykkt hafi verið að „bjóða vinnuveitendum að létta af yfir- vinnubanninu ef þeir vilja sam- þykkja aö borga launþegum kr. HOþúsundfyrir 8 stunda vinnu- dag 5 daga vikunnar — virka. Sjái vinnuveitendur sér ekki fært að ganga að tilboði þessu, þá stendur yfirvinnubanniö þar til öðru visi verður ákveðið”. —ARH Þann 5. april siðast liðinn bættist enn eitt skip i islenzka skipa- flotann, er bílaflutn- ineaskmið Bifröst var ekki alls fyrir löngu, en að félaginu standa 132 hluthafar. næst komandi. Islenzk áhöfn er á Bifröst og er skipstjóri Valdi- mar Björnsson. Svo sem kunnugt er, eru þaö islenzkir bifreiðainnflytjendur og nokkrir fiskútflytjendur sem standa að kaupum skipsins og afhent sinum islenzku eigendum. Bifröst er eign samnefnds skipa- félags sem stofnað var Þess er þó ekki að vænta að skipaáhugamenn islenzkir fái að berja Bifröstina augum á næstunni, þvi skipið var þegar I stað leigt frönskum aöilum til fimm mánaða. Veröur skipið I flutningum erlendis þar til það kemur til Islands I september er Alþýöublaöiö ræddi við Þóri Jónsson, einn af forráöamönn- um fétagsins i gær, sagði hann að nú þegar væri búið að tryggja skipinu næg verkefni þegar það kæmi til landsins. —GEK Vilja virkja Héraös- ■■ ■ ■ votmn Fyrir skömmu hélt bæjarstjórn Sauðár- króks fund, þar sem til umræðu voru virkj- unarmál og staða þeirra. Samþykktu allir bæjarfulltrú- ar að lýsa yfir stuöningi viö framkomna þingsályktunartil- Frá Sauöárkróki lögu um undirbúning að virkjun Héraðsvatna hjá Villinganesi, enda verði allur undirbúningur virkjunarinnar miðaður við aö hér sé um að ræða áfanga stærri virkjunar I Héraðsvötnum og Jökulsá eystri. Þá skorar Bæjarstjórnin á þingmenn Norðurlands vestra aö beita sér fyrir, að fjármagn til hönnunar virkjana þessara veröi tryggt og öllum rannsókn- um og undirbúningi verði lokið sem fyrst, þannig aö ákvöröun um framkvæmdir megi taka án verulegs fyrirvara. —JSS MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1977 alþýðu blaðið HEYRT, SÉÐ 0G HLERAÐ Heyrt: Stefán Jónsson sagði I umræðum um þing- húsbyggingu i Sameinuðu þingi fyrir skömmu, að gamla Alþingishúsið rúm- aði vel vit og dómgreind al- þingismanna. — „Ekki jókst húsnæðisþörfin, þeg- ar Stefán tók hér sæti”, varð einum þingbróður hans þá að orði. * Lesið: í Frjálsri verzlun fyrir skömmu: „Stjórnar- ráösmenn segja, að utan- rikisráðherra, auk dóms- málaráöherra hafi undir höndum mjög greinargóöa skýrslu um sovézku njósna og hlerunartækin, sem fundust I Kleifarvatni. í skýrslunni kemur m.a. fram, að tækin hafi verið notuð I fjölda ára til að hlusta á simtöl milli ís- lands og útlanda. Simtöl við útlönd fara i loftinu milli Reykjavikur og Eyja, en þaðan fara þau áfram um sæsima. Sovézkir sendiráðsmenn notuðu tækin til að hlusta á simtöl milli lands og Eyja. Það mun vera einhver „fram- sóknarpólitík”, sem ræöur þvl aö ráðherrarnir vilja ekki greina opinberlega frá innihaldi skýrslunnar, sem gerö er af færustu sérfræö- ingum. Nú velta menn þvi fyrir sér hvort sovézku full- trúarnir noti hér á landi enn fullkomnari hlerunar- tæki en Kleifarvatnstæk- * Frétt: Að Alþýðusamband íslands hafi nú ráöið sér- stakan blaðafulltrúa, sem mun starfa fyrir samband- ið á meðan á kjaradeilunni stendur. Fyrir valinu varð einn af blaöamönnum Alþýðublaðsins, Haukur Már Haraldsson, og þykir blaðinu talsverður heiöur að þvi. Hlutverk blaöafull- trúans veröur aö senda út ýmsar fréttatilkynningar og vera ráöamönnum ASl til aðstoðar I samskiptum við frétta- og blaðamenn. Heyrt: Fróða menn full- yröa, að mjög verulegur hluti þeirra gesta, sem sótt hafa leiksýningar Alþýöu- bandalagsins aö undan- förnu, hafi eingöngu komið þangað til að njóta ókeypis skemmtunar og góöra skemmtikrafta, eins og t.d. Jónasar Arnasonar, alþingismanns.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.