Alþýðublaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 7. október 1977 ': Óðaverðbólga 2 við fyrirtæki i löndum sem búa við litla eða enga verðbólgu. En framlenging aðlögunar að EFTA verður að ná jafnt til allra. Þar má ekki refsa þeim sem betur hafa staðið sig í sam-: keppninni. Aðgerðir til eflingar atvinnu- lifsins og þar með iðnaðarins geta þvi aðeins náð tilgangi sin- um aö þegar sé gripið til rót- tækra aðgerða til þess að draga úr verðbólgunni. Meö áfram- haldandi óðaverðbólgu er úti- lokað að byggja upp traustan iðnað. Afkoma þorra iðnaðar hefur ekki verið þannig, að hafst hafi i við verðbólgunni. Vegna skattalaga sem taka mið af stöðugu verðlagi er iðnaðinum gert ómögulegt að viðhalda eig- in fjármagni, hvað þá að treysta hann betur eins og eðlilegt og sjálfsagt ætti að vera. A verðbólgunni verður að vinna bue. A flestum sviðum iðnaðar hafa oröið framfarir þrátt fyrir erfiðar aðstæður, i þvi sam- bandi vildi ég mega nefna fata- gerð úr uil. Þar hafa dugmiklir og hugkvæmir sölumenn, hug- myndarikir hönnuðir og út- sjónasamir framleiðendur unn- ið stórvirki við að gera verðlitla ull að verðmætri útflutnings- vöru. Slikur árangur næst ekki með neinni miðstýringu heldur þar sem hæfileikar einstakl- ingsins fá að njóta sin. A öðrum sviðum hafa framfarir þvi mið- ur ekki orðið eins nauðsynlegar ogæskilegthefði verið t.d. þarf i véla- og málmiðnaði að gera stór átak til þess að bæta fyrir það sem misgert hefur verið gagnvart þeirri iðngrein. Hann þarf að gera svo öflugan og þróttmikinn að hann geti hann- að ný tæki og endurbætt og við- haldið þvi sem i gangi er til þess að islensk framleiðsla geti stað- ið i fremstu röð hver á sinu sviði. Við sem i iðnaði erum megum ekki einskorða okkur við að gera kröfur til annarra. Við verðum aö gera kröfur og það meiri kröfur til okkar sjálfra. Þvi aðeins getum við vænst skilnings og trausts þjóðar og ráðamanna að við sýnum það i verki að við séum traustsins verðir. Það er von min að sú kynning á islenskum iðnaði og iðnaðar- vörum sem staðið hefur nú i eitt ár, megi bera þann árangur sem að var stefnt. Næsta skrefið ætti svo að vera iðnkynning inn- ávið þ.e. að iðnaðarmenn og iðnrekendur reyni að læra hver af öðrum og hvetja hvern annan til dáða. ■. I, UTIVISTARFERÐiP' Föstud: 7/10, kl. 20 Kjölur, Beinahóll, Grettishellir, Hveravellir. Fararstj.: Hall- grimur Jónasson og Kristján M. Baldursson. Gist i húsi. Upplýs- ingar og farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6, si 14606. Útivist. Brúókaup Þann 2. september 1977 voru gefin saman i hjónaband Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Atli Rúnar Halldórsson. Neyðarsímar Slökkvilið Slökkvilið og sjúkrabilar i Reykjavik— simi 11100 i Kópavogi — Simi 11100 i Hafnarfirði — Slökkviliðið simi 51100 — Sjúkrabfll simi 51100 Lögreglan Lögreglan i Rvik — simi 11166 Lögreglan í Kópavogi — simi 41200 Lögreglan i Hafnarfirði — simi 51166 Hitaveitubilanir simi 25520 (utan vinnutima simi 27311) Vatnsveitubilanir simi 85477 Simabiianir simi 05 Rafmagn. 1 Reykjavik og Kópa- vogi i sima 18230. í Hafnarfirði i sima 51336. Heilsugæsla Slysavarðstofan: simi 81200 Sjúkrabifreið: Reykjavik og Kópavogur, simi 11100, Hafnar- fjörður simi 51100. Reykjavík — Kópavogur Dagvakt: Kl. 08.00-17.00. Mánud. föstud. ef ekki næst I heimilis- lækni, simi 11510. Læknar Tannlæknavakt I Heilsuverndar- stööinni. Slysadeild Borgarspitalans. Simi 81200. Sirninn er opinn allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidaga- varsla, simi 21230. Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00- 08.00 mánudag-fimmtud. Simi 21230. A laugardögum og helgi- dögum eru læknastofur lokaöar en læknir er til viðtals á göngu- deild Landspitalans, simi 21230. Upplýsingar um lækna- og lyf ja- búöaþjónustu eru gefnar I sim- svara 18888. Hafnarfjörður Upplýsingar um afgreiöslu i apó- tekinu er i sima 51600. Hafnarfjöröur — Garöahreppur Nætur- og helgidagagæsla: Upplýsingar á Slökkvistööinni simi 51100. Kópavogs Apótekopiööll kvöld til kl. 7, nema laugardaga kl. 9-12 og sunnudaga lokað. i Hafnarfirði — Slökkvilið simi 51100 — Sjúkrabfll simi 51100 51166, slökkviliðið simi 51100. Sjúkrabifreið simi 51100. Tekið við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgar- innar og i öðrum tilfellum sem borgarbúar telja sig þurfa aö fá aðstoð borgarstofnana. Ýmislegt MiR-salurinn Laugav. 178 Kvikmyndin „Lenin i Póllandi” verður sýnd á laugardag kl. 14. — Aðgangur ókeypis og öllum heim- ill. — MIR. Borðtennisklúbburinn ÖRNINN Æfingar hefjast mánudaginn 10. okt. Æfingatimari Laugardalshöll frá kl. 18, mánudaga, miðviku- daga og fimmtudaga. Skráning mánudaginn 10. okt. og fimmtudaginn 13. okt. frá kl. 18 i Laugardalshöll (uppi). Æfingagjöld kr. 5.500,- greiðast við skráningu. Stjórnin. Hvitabandskonur verða með basar á Hallveigar- stöðum laugardaginn 8. okt. kl. 2.00. A boðstólum verður úrval af handunnum munum, kökum og notuðum barnafötum, sem verið hafa mjög vinsæl. Þeim konum sem vilja gefa á basarinn er bent á að koma munum til stjórnar- innar eða að Hallveigarstöðum f.h. sama dag. Prófkjör Alþýðuflokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra um skipan efsta sætis á fram- boðslista til alþingiskosninga, fer fram dag- ana 15. og 16. október n.k. I efsta sæti listans, sem um er kosið, hafa borist þrjú framboð: Arni Gunnarsson, Reykjavík. Bárður Halldórsson,Akureyri. Bragi Sigurjónsson, Akureyri. Kosningin fer fram á þeim tímum og stöðum, sem að neðan greinir: Akureyri: Alþýðuhúsinu kl. 14-19 báða dag- ana. Dalvík: Timi og staður auglýst síðar. Grenivík: Barnaskólanum kl. 14-17 sunnudag 16. okt. Hrísey: Staður augl. síðar. Kosið kl. 14-17. sunnud. 16 okt. Húsavík: Félagsheimilinu kl. 14-19 báða dag- ana. Ölafsf jörður: Verkalýðshúsinu kl. 14-19 báða daqana. Kosið verður ennfremur hjá eftirtöldum trúnaðarmönnum yfirkjörstjórnar kl. 14-17 sunnudaginn 16. október. Grímsey: Sigurjón Jóhannsson kennari. Hauganes: Árni Ólason, Klapparstíg 14 Raufarhöfn: Karl Ágústsson framkvæmdar- stj • Reykjahlíð: ísak Sigurðsson, Helluhrauni í. Þórshöfn: Pálmi Ólason skólastjóri. Utankjörstaðakosning fer fram bréf lega 8.- 14. október: Kjörseðlar fást hjá formönnum kjörstjórna: Akureyri: Snælaugur Stefánsson,Víðilundi 8c sími 11153 Húsavík: Guðmundur Hákonarson.Sólvöllum 7, sími 41136 Ólafsf jörður: Sigurður Jóhannsson,Ólafsvegi 43,sími 62260 Skrifstofa Alþýðuf lokksins, Reykjavík, sími 29244. Allir 18 ára og eldri sem lögheimili eiga í kjördæminu og ekki eru f lokksbundnir í öðrum stjórnmálaf lokkum hafa þátttökurétt í próf- kjörinu. Fh. yfirkjörstjórnar Alþýðuf lokksins í Norðurlandsk jördæmi eystra. Þorvaldur Jónsson form. f WokKsstartfid j Simi flokks- skrifstof- unnar i Reykjavik er 2-92-44 Auglýsing um prófkjör i Vesturlandskjör- dæmi Alþýðuflokkurinn efnir til prófkjörs I Vesturlandskjör- dæmi um val frambjóðanda á lista fiokksins við næstu Al- þingiskosningar og mun prófkjörið fara fram i síðari hluta nóvember n.k. Kjósa ber i prófkjörinu um tvö efstu sæti á væntanlegum framboðslista Alþýöuflokksins. Kjörgengi hafa allir þeir sem kjörgengi hafa til Alþingis og hafa meðmæli minnst 25 flokksbundinna og atkvæðis- bærra Alþýðufiokksmanna i kjördæminu. Tillögur um framboð skulu sendast formanni yfirkjör- stjórnar Braga Nielssyni, lækni, BorgarnesLog verða þær að hafa borist honum eða verið póstlagðar til hans fyrir 29. október n.k. og veitir hann jafnframt allar nánari upplýs- ingar. F.h. kjördæmisráðs Alþýöuflokksins i Vesturlandskjör- dæmi, Bragi Nielsson, læknir, Borgarnesi Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjaneskjör- dæmi. Prófkjör um skipan 2ja efstu sæta á lista Alþýðuf lokksins i Reykjaneskjördæmi í næstu alþingiskosningum fer fram laugardaginn 8. okt. og supnudaginn 9. okt. n.k. Á laugardegin- um verður kjörfundur frá kl. 14 til 20, en á súnnudeginum frá kl. 14 til 22. Frambjóðendur eru þessir, sem gefa kost á sér i neðangreind sæti: Hilmar Jónsson, Hátúni 27, Keflavik, i 1. og 2. sæti. Gunnlaugur Stefánsson, Austurgötu 29, Hafnarfirði, i 2. sæti. Jón Ármann Héðinsson, Kópavogsbraut 102, Kópavogi, I 1. sæti. Karl Steinar Guðnason, Heiðarbrún 8, Keflavik, 11 og 2. sæti. Kjartan Jóhannsson, Jófriðarstaðavegi 11, Hafnarfirði, i 1. og 2. sæti. Ölafur Björnsson, Drangavöllum 4, Keflavik, i 1. og 2. sæti. örn Eiðsson, Hörgslundi 8, Garðabæ, i 2. sæti. Kjörstaðir verða eftirgreindir og er formaður undirkjör- stjórnar á hverjum stað tilgreindur með kjörstaðnum: Brúarland, Mosfellssveit: Kjörstaður fyrir ibúa Kjósar- sýslu, utan kaupstaða. Form. Kristján Þorgeirsáon. Hamraborg 1, Kópavogi: Form. Steingrimur Steingrimsson. Melabraut 67, Seltjarnarnesi. Form. Guðmundur Illugason. Gamli gagnfræðaskólinn við Lyngás, Garðabæ. Form. Rósa Oddsdóttir. Alþýðuhúsið, Hafnarfirði. Form. Sigþór Jóhannesson. Glaðheimar, Vatnsleysustrandarhreppi. Form. Simon Kristjánsson. Stapi, Njarðvikum. Stapi er jafnframt kjörstaður fyrir ibúa Hafna hrepps. Formaður Guðjón Helgason Tjarnarlundur, Keflávik. Formaöur Guðleifur Sigur- jónsson. Tjarnarlundur er jafnframt kjörstaður fyrir ibúa Gerðahrepps. Leikvallahúsið, Sandgerði. Form. ólafur Gunnlaugs- son. Vikurbraut 21, Grindavik. Formaður Svavar Arnason. Atkvæðisrétt hafa allir ibúar Reykjaneskjör- dæmis 18 ára og eldri, sem ekki eru flokks- bundnir í öðrum stjórnmálaf lokkum. Kjósendum ber að kjósa á kjörstað í því sveitarfélagi, sem þeir eru búsettir, sbr. þó undantekningar um íbúa þeirra sveitarfélaga, þar sem ekki er opinn kjörstaður, sbr. hér að ofan. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla er óheimil Hverjum kjósanda ber að kjósa frambjóðend- ur í bæði sætin. Óheimilt er að kjósa sama frambjóðanda í bæði sætin. Ekki má kjósa aðra en þá, sem í framboði eru. Niðurstöður prófkjörsins eru bindandi um skipan 2ja efstu sæta listans, ef f rambjóðandi i hvort sæti fær a.m.k. 1/5 hluta þeirra at- kvæða, sem framboðslisti Alþýðuflokksins í kjördæminu, hiaut í síðustu alþingiskosning- um' Reykjaneskjördæmi, 26. sept. 1977, Kjörstjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.