Vísir - 02.04.1970, Blaðsíða 8

Vísir - 02.04.1970, Blaðsíða 8
s V í SIR . Fimmtudagur 2. apríl 1970. Utgefandi: keyKjaprent n.». Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóltsson Ritstjóri: Jónas Krtstjánsson Fréttastjóri Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóharmesson Auglýsingar. Aðaistræti 8. Símar 15610. 11660 og 15099 Afgreiösla: Aöalstræti 8. Sími 11660 Ritstjórn. Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 tinur) Askriftargjald kr 165.00 á mánuöi innanlands f lausasölu kr. 10.00 eintakiö Prentsmiöja Vísis — Edda hJ. Skammt stórra högga milli Enn hafa verið stigin tvö mikilvæg skref í þá átt að / gera íslenzkan iðnað samkeppnishæfan á hinum stóra ) alþjóðamarkaði, sem opnazt hefur við inngöngu ís- \ lands í Fríverzlunarsamtökin, EFTA. Jóhann Hafstein \ iðnaðarráðherra hefur ákveðið, að ráðuneytið komi á ( fót föstum námskeiðum í sfjórn fyrirtækja og vinni / að stofnun útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins. I Þessar ákvarðanir koma í kjölfar stórfelldra um- ) svifa hins opinbera, er miða að sama marki. \ Skemmst er að minnast hinnar ýtarlegu rannsóknar \ á stöðu og horfum einstakra iðngreina, er gerð var ( í fyrra, og athugunar á útflutningsmöguleikum iðn- í( aðarins. Mjög mikið hefur verið ritað og rætt um /( efni þessara skýrslna og verða áhrif þeirra því vænt- )) anlega varanleg. Síðar koma frá ríkisstjórninni laga- ) frumvörp um lagfæringar á sköttum fyrirtækja til \ samræmis við erlenda skatta af slíku tagi. Og senn \ tekur stóri iðnþróunarsjóðurinn til starfa. í Jakobi Gíslasyni orkustjóra, Sveini Björnssyni iðn- / aðarstofnunarstjóra og Árna Vilhjálmssyni prófessor / hefur verið falið að sjá um stjórnunarnámskeiðin. ) Með tilkomu þessara námskeiða er viðurkennt, að \ mörgu er hér á landi ábótavant á sviði stjórnunar fyr- l irtækja. Námskeiðin eiga að gefa starfandi og verð- ( andi stjórnendum kost á að afla sér hagnýtrar þekk- / ingar á ýmsum þáttum stjórnunar, svo sem rekstrar- / hagfræði, framleiðslu, sölu, fjármálum, hagræðingu, ) starfsmannahaldi og almennri stjórnun. \ Stjórnunarfélagið hefur unnið merkilegt brautryðj- V endastarf í námskeiðum í stjórnun á undanförnum ( árum. Nú hefur ríkisvaldið tekið þessa menntun upp /( á sína arma, enda má reikna með, að í framtíðinni fær- / ist nám í stjórnun einnig inn í skólakerfið sjálft. ) Um nokkurt skeið hefur starfað útflutningsskrif- \ stofa á vegum Félags íslenzkra iðnrekenda. Hið opin- ( bera hefur stutt það starf og er framlagið nú þrjár / milljónir króna á ári. Sú skrifstofa hefur þegar náð / sýnilegum árangri í starfi sínu. Áhugi hefur verið á ) því að koma þessu starfi í fastara og varanlegra form. \ Þess vegna hefur ráðuneytið hafið undirbúning að \ stofnun Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, er rekin ( verði í samstarfi við iðnaðinn, samtök hans og fjár- ( málastofnanir. Er gert ráð fyrir því, að hið opinbera / styrki miðstöðina í fyrstu, en útflytjendur beri síðan ) kostnaðinn, þegar útflutningur hefur eflzt. Er nú á \ vegum Árna Snævarr ráðuneytisstjóra verið að vinna \ að samningu stofnskrár fyrir þessa miðstöð. ( Ríkisvaldið er á réttri braut í þessu framtaki. Það ( er ekki að mæla fyrir um, hver útflutningsiðnaðurinn / eigi að vera, heldur að rækta jarðveginn og hlúa að ) þeim gróðri, sem sprettur upp. Að því verki er gengið ) af krafti og fyrirhyggju. ) (Jmsjón: Haukur Helgason Aðskilnaðarstefnan í vanda — Ofgafyllstu Búarnir hata klofið stjórnarflokkinn i Suður-Afriku og saka stjórnina um undanslátt — Simahleranir og „siðgæðislög" ein- kenna mannlifið Það er vandlifaö í Suður- Afríku, landi aðskilnaðar kynþáttanna. Siðgæðislögin gera Iögreglunni kleift að ryðjast fyrirvaralaust inn á hvers manns heimili til að aðgæta, hvort „óeðlileg sam- skipti" hafi átt sér stað milli hvítra og þeldökkra. Síma- hleranir lögreglunnar eru ó- hindraðar, hvenær sem á- stæða þykir til, og jafnvel þingmenn verða að þola þær mótmælalaust. Jafnvel leigu bifreiðir eru ýmist „hvitar“ eða „svartar“, og lögum sam- kvæmt má hvítur ferðalangur í Höfðaborg ekki ferðast með Ieigubfl, er svartur ökumaö- ur ekur. I ofanálag hafa öfgafullir að skilnaöarmenn í stjórnarflokkn- um klofið flokkinn og sakað for sætisráðherrann um að vera of undanlátssamur og „frjálslynd- ur.“ Sú ásökun hljómar annar- lega í eyrum flestra útlendinga. en hún hefur haft þau áhrif, að stjórnarstefnan hefur orðið enn harðari vegna þessarar ógnunar öfgamanna. Kosningar standa fyrir dyrum i Suður-Afríku hinn 22. þessa mánaðar. Þótt ekki sé búizt við því, aö klofnings- brotiö fái verulegt fylgi, þá verð ur Vorster, forsætisráðherra, að gæta sín, svo að Afríkanamir hans sundrist ekki. ingi öfgamanna, sé að opna allar flóðgáttir. Ef einn svert ingi býr í hvítu húsi, hví þá ekki mörg hundruð slíkra dipló mata? Ef þeldökkir menn keppa í íþróttasveit, hví skyldi ekki leyfa þúsund hjónabönd hvítra og svartra? Herzog telur, aö hér verði að spyrna við fótum, ella muni svertingjarnir verða ofan á og hvítum ýtt til hliðar. Hvíti kynþátturinn víki fyrir blend- ingjum. miðar að því, að hvítir og svart- ir byggi hvorir sín héruð í land- inu og búi að sínu. Samskipti á milli kynþáttanna verði eins lítil og unnt er. Þetta er „kenningin um aðskilda þróun kynþátt- anna“. Ber dauðann í sjálfri sér Fréttamenn telja þó, að þessi stefna beri dauðann í sjálfri sér. Þrjár og hálf milljón hvítra FJÖLDAMORÐ í SHARPEVILLE. — Sextíu og níu blökku- menn féllu og 180 særðust fyrir tíu árum, þegar lögreglan hóf skothríð á hóp blökkumanna í Sharpeville í Suður-Afríku. Þess var minnzt I London hinn 21. marz síðastliðinn, að 10 ár voru liðin frá þessum atburði. Voru fjöldamorðin leikín á Trafalgartorgi að viðstöddum 3000 áhorfendum. Efri myndin er frá fjöldamorðunum I Sharpeville, en sú neðri frá minn- ingarathöfninni í London. Brezkir of „frjálslyndir“ Það eru tvær milljónir Afrí- kana af hollenzkum stofni i S- Afríku af þremur og hálfri millj. hvítra manna samtals. íbúar eru þó samtals tuttugu milljónir, svo að þeldökkir eru um 16 og hálf eða mikill meirihluti. — Þess vegna leggja hinir hvítu, en þó einkum Afríkanarnir, meg ináherzlu á að halda völdum, með því að hinir þeldökku veröi áfram óæðri manntegund í rík- inu. Jafnvel menn af brezkum stofni eru í augum Afríkananna hættulegir og of frjálslyndir I þessum efnum. „Sjáið þið,“ segja Afríkanamir, „hvemig Bretar hafa verið reknir úr hverju Afríkurfkinu á fætur öðru, vegna undanlátsstefnu þeirra gagnvart svertingjun- um“. Tvær milljónir kynblendinga Hið kynduga við Suður Afríku eru leifarnar af fyrra „frjáls- lyndi" í kynþáttamálum. í land inu eru tvær milljónir kynblend inga, sem eru afkomendur hvítra og svartra frá fyrstu dög um Búanna í landinu, til orðnir vegna maka hvítra karla og svartra kvenna á þeim tima. Einn svartur í „hvítu húsi“ Klofningsmenn úr stjómar- flokknum, þjóðemisflokknum, benda á fáein dæmi um mót- sögn í stjómarstefnunni. Einn svartur sendiráðssendiherra býr x „hvítu húsi“ f Pretóríu, banda rískir negrar komast stundum á beztu hótel landsins, í ,rugby‘ liði frá Nýja Sjálandi, sem mun keppa í Suður-Afríku, hefur ver iö leyft að nokkrir þeldökkir keppendur verði meðal þátttak- enda. Þetta, segir Herzog, for- Lítil hætta af Sambandsflokknum Tfl þess að stemma stigu við framsókn klofningsmanna, hef- ur Vorster, forsætisráðherra, hert aðskilnaðarstefnuna. Hann óttast ekki annan flokk hvítra manna, sem eitt sinn höfðu völd in í þessu ríki, sambandsflokk- inn, sem einkum er byggður a'f mönnum af brezkum stofni. Þessi flokkur hefur jafnan tap- að í kosningum í tuttugu ár og er ekki líklegur til að auka fylgi sitt að ráði. Þó kynni harðari stefna stjómarinnar nú að verða til þess, að sambands- flokkurinn gæti bætt við sig fáeinum þingsætum. - Þess var fyrir fáum dögum minnzt í Bretlandi, að tíu ár eru liðin frá fjöldamorðunum í Sharpeville í Suður-Afríku, þeg- ar lögreglan myrti fjölda svert- ingja. Það er hið eina sinn, sem þeldökkir hafa látið til skarar skríða í borgum landsins. Lög- reglan hóf skothríð á hóp blökkumanna, sem safnazt hafði saman og látið ófriðlega. Aðskilnaðarstefnan, apartheid, manna geti einfaldlega ekki annazt aðalþarfir tuttugu millj- ón manna ríkis á tímum efna- hagslegra framfara. Eitt dæmið ær mikill skortur vinnuafls á sviðum, þar sem hvítir eiga að vera einir um hituna. Þannig skortir 50 þúsund faglærða verkamenn, og hefur það tálmað ýmsum framkvæmdum. Strætis- vagnaþjónusta í Jóhannesarborg er í rústum, þar sem hvítir eiga einir að aka þeim. Þar varð að hætta við miklar framkvæmdir vegna vinnuaflsskorts. Svert- ingjum er svo laumað í störf, sem ætluð eru hvítum, til þess aö bæta úr þessu, og verkalýðs- félög, atvinnurekendur og stjórnin bera kíkinn fvrir blinda augað. Hinum þeldökka meiri- hluta er haldið snauðum, og þess verða fyrirtækin að gjalda í minni sölu afurða sinna innan- lands. Svæði það,1 sem ætlað er svörtum, er lítiö að flatarmáli og illa búið auðlindvsm. Upp- Teisnar er vart í norðinffluta landsins. Athugendur telia litlar Ifkur til, að apartheid fái stað izt til lengdar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.