Vísir - 19.05.1970, Blaðsíða 4
4
VISIR . Þriðjudagur 19. maí 1970.
• Sænska landsliðið í knatt-
spyrnu vann mjög athyglisverð-
an sigur á laugardaginn. þegar
það lék gegn Ungverjum í Buda
þest og vann með 2—1. Fáir
hafa talið Svía líklega til árang
urs i Mexíkó — en eftir þennan
sigur verður meira reiknað með
þeim. Svíþjóð er í riðli með Ital
íu, Urugay og ísrael. en Ieikið
verður í Toluca og Puebla. —
Átta atvinnumenn leika í
sænska liðinu.
© Mikið taugastríð er nú hafið
milli leikmanna Englands og
Brasilíu — tveggia þeirra landa
sem talin eru líkiegust til sig-
urs í HM — en bau leika í sama
riðli ásamt Tékkóslóvakíu og
Rúmeníu í Guadalajara, og tvö
efstu löndin í hverjum riðli kom
aist áfram í keppninni. Leik-
menn landanna eru fyrir nokkru
komnir til borgarinnar og kepp
ast nú mjög um að vinna sér
hyllj borgarbúa. Brasilíumenn
unnu í fyrstu lotu, þegar þeir
léku við aðallið borgarinnar og
mættu allir með fána Mexíkó
og hlupu 'heiðurshring fyrir leik
*nn. „Brassar“ unnu 3—0, en
ensku leikmönnunum sem sáu
leikinn í sjónvarpi fannst lítið
tll hans koma. Bobby Charlton
lét þá hafa eftir sér, að Tékkar
væru hættuleguistu mótherjar
þeirra í riðlinum. Os nokkrir
leikmenn Brasilíu voru bá fljótir
að gefa yfirlýsingu: Við óttumst
ekki ensku heimsnieistarana
— Tékkar verða miklu hættu-
legri.
• ítalir, sem gem sér miklar
vonir um góðan árangur i Mexi
kó, hafa orðið fyrir áfalli. Dýr-
astj leikiViaður heims, Anastasia,
serp Juventus keypti fyrir tæpar
100 milljónir íslenzkra króna,
meiddist í sl. viku og er öruggt
að hann getur ekki tekið þátt i
heimsmeistarakeppninni. Annar
leikmaður. Pratj hjá AC Milap,
hefur verið valinn í hans stað
og er nú á leið til Mexíkó. En
Anastasia var bó ekki einn af
stóru „stjömunum” í ítalska lið
inu, það eru Lugi Riva og Gi-
anni Rivera.
• Á fyrstu æfingu heims-
meistaranna frá Englandi i Gu-
adalajara skoruðu Bobbv Charlt
on og Martin Peters fyir aðal-
liðið, en Jeff Astle fvrir hina.
Allir leikmennirnir 28 léku —
og átti Nobbv Stiles í lang-
mestu erfiðleikunum vegna lofts
lagsbreytingarinnar. Þunna loft
ið virtist hafa 'slæm áhrif á
hann. Eftir landsleikinn við
Skota á dögunum, sagði þjálfari
enska liðsins, Sir Alf Ramsey,
að Stiles hefði verið bezti mað-
ur enska liðsins. Enska liðið hélt
frá Mexíkó i gær og leikur
landsleik í Colombíu á miðviku
dag — í 7000 feta hæð. Itölsku
leikmennirnir komu til Mexíkó
'í gær og fluttu inn í það hótel
sem ensku Ieikmennimir höfðu
haft. Aðspurðir hvaða land þeir
teldi líklegast til sigurs var svar
ið: England.
Englendingar á æfingu
í Guadalajara ►
Umsjón Hallur Símonarson.
MikiS sparkað en lítið spilað
— þegar Keflv'ikingar unnu meistarakeppni KSI
Islandsmeistarar Keflavíkur urðu
sigurvegarar í meistaraliðakeppni
KSÍ, þegar þeir sigruðu bikarmeist
ara Akureyrar í fjórða og síðasta
leik liðanna, sem háður var á fag-
urgrænum grasvellinum í Keflavík
í gærdag með 2—0. Veður var hið
fegursta og áhorfendur hátt í tvö
þúsund. Keflvíkingar sigruðu því
í tveimur síðustu leikjunum í
keppninni og hlutu fimm stig —
en Akureyringar þrjú.
Þrátt tfyrir að allar ytri aðstæður
voru hinar beztu var ekki hið
sama hægt að segja um þá knatt-
spyrnu, sem liðin sýndu — það var
mikið sparkað en lítið spilað — og
of mikið um hörkulegan leik. —
Fyrsta markið kom eftir innkast
Magnúsar Torfasonar - langt inn
í vítateig og tókst Grétari Magnús
syni að „pota‘‘ knettinum í mark
eftir talsvert þjark í vítateignum.
Þetta skeöi um miðjan hálfleikinn.
Og síðast í fyrri hálfleiknum tókst
Birgj Einarssynj að hlaupa af sér
vörn Akureyringa, sem hafði hætt
sér of framarlega og skora annað
mark Keflvíkinga.
í síðari hálfleiknum munaði litlu
að Hörður Ragnarsson skoraðj ,3ja
markið þegar hann komst frir
inn á marklínu en Samúei mark-
vörður varði á ótrúlegan hátt. —
Beztu tækifærj Akureyringa voru
þegar Hermann Gunnarsson einlék
upp kantinn og gaif vel fyrir til
Skúla Ágústssonar sem skallaði
rétt yfir — og þegar Magnús Jóna-
tansson átti hörkuskot á mark, sem
Þorsteinn Ólaifsson varði snilldar-
lega. Annars voru heldur fá tæki-
færi, sem komu i leiknum enda
varnarleikur sterkur.
Beztu menn Keflvíkinga voru
Þorsteinn markvörður, miðverðirn
ir Einar Gunnarsson og Guðni
Kjartansson, sem voru máttarstólp
ar varnarinnar. Þá var Birgir Ein-
arsson fljótur og hættu-legur, og
Grétar Magnússon sívinnandi. Hjá
Akureyringum var Skúli beztur —
Magnús átt; einnig ágætan leik, en
var nofckuð seinn og Kári Árnason
var fljótur og ógnandi. Hermann
var sæmilegur — en ekki nógu
virkur. Dómari var Einar Hjartar-
son og lék oft og tíðum einleik á
flautu.
Eftir leikinn afhentj Ingvar Páls
son, varaformaður KSÍ sigurveg-
urunum farandbikar KSI — og lít-
inn bikar til eignar — en þetta er
f annað skipti sem þessi keppni er
háð. í fyrra sigraði KR eftir fjóra
ieiki við Vestmannaeyinga. —ómar
Breiðabliksmenn erf-
iðir heim að sækja
— Sigruðu Skagamenn i,
Eftir óslitna sigurgöngu i allt
vor mættu Akurnesingar loks of-
jörlum sínum, þegar þeir léku gegn
Breiðabliki I „Litlu bikarkeppn-
inni“ á laugardag. Hinir ungu knatt
spyrnumenn úr Kónavogi sigruðu
verðskuldað í leiknum með 2 — 1
við mikinn fögnuð rúmlega eitt þús
und áhorfenda, sem mættu á vell
inum í Kópavogi.
Það. var enfitt að leika knatt-
spyrnu því 5—6 vindstig voru
þegar leikurinn fór fram e.n hann
var samt fjörmikill og spennandi.
Breiöablik sóttj undan vindinum i
fyrri hálfleik og tókst þá að skora
tvö 'mörk, án þess Akurnesingar
svöruðu fyrir sig. Fyrra markið
,Litlu bikarkeppninni" 2:1
skoraðj landsliðsmaðurinn Guð-
mundur Þórðarson snemma í leikn-
um með óvenju glæsilegu skoti af
löngu færi — algerlega óverjandi
— en hið síöara Ríkharð Jónsson
(ekki þó hinn frægi kappi Skaga-
manna) um miðjan hálfleikinn.
Áhorfendur bjuggust þó við að
þetta forskot mundi duga skammt
í síðari háifleik gegn skotglöðum
Skagamönnum, en það varð samt
reyndin. Reyndar skoraði annar
bakvörður Breiðabliks sjálfsmark
snemma í síðari hálfleiknum — en
það varð eina mark Akraness I
leiknum og leikmenn Breiðabliks
sýndu mikinn baráttuvilja — og
fengu meira að ségja ágæt tæki-
færj til að skora. Tvívegis komust
leikmenn liðsins fríir að markinu
og áttu aðeins markvörð Akraness
eftir, en tókst ekki aö skora.
Sigur Breiðabliks var í fyllsta
máta verðskuldaður og þetta er
ekkj fyrsti „stórsigur“ iiðsins I
vor. Fyrir nokkru sigraði það ís-
landsmeistara Keflavíkur í afmælis
leik, og gerðu jafnteflj við sama
•lið i þessari keppni. Þeir eru þvi
erfiðir heim að sækja, leikmenn
Breiðabliks. Þrátt fyrir þetta tap
standa Akurnesingar enn bezt að
vígi keppninni. Þeir hafa átta stig
— en eiga einn erfiðan leik eftir i
Keflavík. ÍBK hefur Motið 7 stig,
Breiðablik 5 stig, en ÍBH , ekkert.
Öll liðin hafa leikið fimm leiki.
Ekkert heppnaðist hjá Akur-
eyringum þegar að marki kom
— í fyrri leiknum á Akureyri á laugardaginn
„Ég man ekki eftir því að hafa
séð Akureyrar-liðið leika betur —
einkum sóknarmennirnir", sagði
Árni Ingimundarson, þegar íþrótta-
síðan ræddi við hann um leik Ak-
ureyrar og Keflavíkur í keppni
meistaraliða, sem háður var á mal-
arvellinum á Akureyri á laugar-
daginn, Akureyringar voru í nær
stanzlausri sókn allan leikinn —
sn eins og svo oft í knattspyrn-
unni voru úrslitin óraunhæf —
Keflvíkingar sigruðu með 2—1.
Þrjú mörk voru dæmd af Akureyr-
'ngum og einnig misnotuðu þeir
■ítaspyrnu.
Þetta var þriðji leikur liðanna i
meistaraképpnj KSÍ. Hinum fyrri
á Akureyri lauk með jafntefíi 1 — i,
er Akureyringar sigruðu í fyrri
leiknum í Keflavík með 2—0 þanh-
ig, að leikurinn í gær í Keflavík,
sem sagt er frá á öörum stað á
síðunni, réð úrslitum í keppninni.
Islandsmeistararnir frá Kefla-
vík léku undan -smágolu i fyrri
hálfleik og á fyrstu 20 mínútum
leiksins áttu þeir tvö upphlaup
— og ekki var hægt að nýta þau
betur, því bæði gáfu mörk. Fyrra
markið skoraði Magnús Torfason,
en hiö síðara Steinar Jóhannsson,
en það verður þó að skrifast nær
eingöngu á Samúel, markvörð
heimamanna.
Knötturinn var hins vegar nær
alltaf á vallarhelmingi Keflvík-
inga og ýmislegt skeði við markið.
Mjög erfitt var að fylgjast með
leiknum, þar sem áhorfendasvæði
við malarvöllinn er ekki upphækk-
að, og voru því áhorfendur fast
viö hliðarlínur. En það sást þó
að þrívegis hafnaði knötturinn í
marki Keflvíkinga — en ekkert
var dæmt mark af dómara leiks-
ins, Rafni Hjaltalín. Tvö munil
hafa verið dæmd af vegna rang-
stöðu — en hvers vegna hið þriðja
fékk eklfi staðizt — vissi enginn
vallargestur. Og í þessum fyrri
hálfleik fengu Akureyringar einnig
vítaspyrnu, sem Magnús Jónatans-
son tók, en honum tókst ekki að
skora.
I síðari hálfleik endurtók sama
sagan sig. Akureyringar sóttu
miklu meir, en Keflvíkingar vörð-
ust af hörku og lögðu mesta á-
herzlu á vamarleikinn — enda
tveimum mörkum yfir — en sum
skyndiupphlaup liðsins eins og oft
í slíkri stöðu voru hættuleg — og
þá bjargaði Samúel í eitt skipti
mjög vel.
I leiknum virtist sem það ætti
ekki fyrir Akureyringum að liggja
að skora 1 mark — knötturinn fór
allt i kringum markið, eða þá í
varnarleikmenn Keflvíkinga — þar
til tveimur mínútum fyrir leikslok,
að Kári Ámason skoraði loks bráö-
fallegt mark. Hann fékk stungu-
bolta milli vamarmanna og hljóp
eldsnöggt í gegn og skoraði.
Hjá Keflvíkingum báru þrir
menn af í þessum leik. Einar
Gunnarsson var mjög sterkur í
vörninni, svo og Magnús Torfason
og Friðrik er bráðefnilegur leik-
maður. Hjá Akureyringum var
Skúli Ágústsson áberandi beztur
— og er það mál manna fyrir
norðan, að hann hafi aldrei verið
betri en einmitt nú. Þá var Eyjólf-
ur bróðir hans einnig ágætur —
og Kári að vanda duglegur og
fljótur. Þjálfari liðsins, Hermann
Gunnarsson, er alls ekki nógu
virkur í liðinu, en knattmeðferð
hans er alltaf skemmtileg. Dóm-
arinn, Rafn Hjaltalín, lék stór hlut
verk í leiknum og notaði flautuna
óspart — auk þess, sem hann
..bókaði“ eina þrjá leikmenn.