Vísir - 14.10.1970, Page 3
VÍSIR . Miðvikudagur 14. október 1970.
I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND É MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason.
„SIDASTI FRCSTIIRIMN"
— segja mannræningjarnif' — Trudeau segir,
að „pólitisku" fangarnir séu bófar og stigamenn
— ræningjarnir vilji aðeins vekja á sér athygli
0) „Svokallaðir pólitískir
fangar, sem mannræn
ingjar krefjast að verði
látnir lausir, eru bófar og
stigamenn,“ sagði Pierre
Trudeau, forsætisráðherra
Kanada í útvarpsávarpi í
gærkvöldi. „Þeir sitja í
fangelsi af þessum sök-
um.“ Trudeau sagði, að
frelsishreyfing Quebec
vildi með mannránunum
einungis vekja á sér at-
hygli.
„Þeim er mest í mun aö eftir
þeim sé tekið. Þvi' meiri athygli,
sem þeir vekja, þeim mun ánægöari
verða þeir, og ég vil ekki taka þátt
í þeim leik,“ sagði forsætisráðherr-
„Ég tek ekki þátt í þessum leik,“ segir Trudeau.
60:5 á móti klámi
Öldungadeild Bandaríkjaþings niðurstöðum „hinnar opinberu
vfsaði í gær á bug öllum helztu nefndar, sem hafði athugað á-
hrif kláms og Iagt til, að létt
yröi hömium af klámi.
Það var öldungadeildarþing-
maðurinn McClellan, demókrati
frá Arkansasfylki, sem harðast
mælti gegn niðurstöðum nefnd-
arinnar og kallaði þær villi-
mennsku.
Fréttamenn sögðu i gærkvöldi
að fáir þingmenn hefðu þorað
að mæla klámi bót svona rétt
, * . , ...* . .* fyrir kosningar, sem eru í næsta
harðastur í andstoðunm við mánuði
McClellan þingmaður varð
klámið.
Ný stjórn í Líbanon
® Stjórnmálamaðurinn Saeb Sal-
am myndaði í gærkvöldi nýja
ríkisstjórn í Líbanon. Tólf ráðherr-
ar eru í ríkisstjórninni, og er Sal-
am sá eini, sem á sæti á þinginu.
Hann gegnir einnig innanríkisráðu-
neytinu.
Salam hefur verið forsætisráð-
herra áður. Hann reyndi nú fyrst
að mynda ríkisstjóm með ráðherr-
um, er sæti ættu á þingi, en varð
að gefast upp við það vegna illvígra
deilna á þinginu.
Bourassa forsætisráðh. Quebec.
ann. Trudeau er, sem kunnugt er
sjáilfur franskrar ættar, en mann-
ræningjarnir eru f hópi hinna rót-
tækustu fransk-ættaðra manna sem
vilja aöskilnað fylkisins Quebec frá
öðrum hilutum Kanada.
Trudeau kvaðst telja þá ráðstöf-
un sína hafa verið rétta að kalla
her út og fela honum gæzlu stjórn-
málamanna og eriendra sendi-
manna í Ottawa. „Þjóðfélagið verð-
ur að taka með skref, sem nauð-
synlegt er, til að vemda borgar-
ana fyrir þeim öfgum, sem virða
að vettugi landslög og kjörna leiö-
toga. Meðan til eru þeir, sem ögra
leiðtogum, verðum við að gera allt,
til að hindna ofbeldisverk.“
Á meðan er haldiö áfram að
reyna að semja viö mannræningj-
ana. Lögfræðingurinn Robert Lemi-
eux, sem kemur fram fyrir hönd
aöskMnaðarsinna í Quebec í viðræö-
um við ríkisstjómina, sagði f nött,
að hann gæti ekki haldiö viðræð-
um áfram vegna áhugaleysis ríkis-
stjórnarinnar á samningum.
Ríkisstjómin bauð það í
gærkvöldi að ræningjamir mættu
fara frjálsir ferða sinna úr landi,
ef þeir létu gísla sfna lausa. Frels-
ishreyfingin visaði þessu tilboði á
bug. Lemieux lagði áherzlu á þaö
í nótt, að hann yrði að fá ný fyrir-
mæli frá ræningjunum, ef eitthvert
vit ætti að vera í áframha'ldandi
tilraunum ti'l samninga.
Aðilar ræddust við f tvær stund-
ir og þrjá stundarfjórðunga í gær-
kvöldi. Robert Demers fuiltrúi rík-
isstjórnarinnar vildi ekkert segja
um fundinn. Mitche'll Sharp utan-
ríkisráðherra hefur skýrt frá því,
að fulltrúar kanadísku stjórnarinn-
ar hafi farið til Alsír og Kúbu og
rætt við stjórnir þessara landa um
gíslana. Mannræningjarnir hafa
meða'l annars krafizt þess, aö þeir
fái flugvél, svo að þeir geti farið
til Alsír eðá Kúbu með hina 23
fanga, sem þeir vi'lja að veröi
sleppt úr fangelsum.
Lemieux segist ekkert umboð
hafa til að semja um sjálfar kröf-
ur mannræningjanna eða breyta
þeim í neinu. Umboð hans sé til
þess eins að ræða atriði f fram-
kvæmd þess, að föngum sé sleppt
og lausnargjald greitt. .
Þetta er Laporte, ráðherrann,
sem nú er í gíslingu mannræn-
ingjanna í Quebec ásamt Bret-
anum Cross.
Forsætisráðherra Quebecs Rob-
ert Bourassa hefur ítreteaö, að ekki
komi til greina aö greiða neitt
iausnargjald, nerna tryggt verði,
að gfsiarnir fari frjálsir feröa sinna.
Freisishreyfingin segir, að „síð-
asti frestur" hennar sé til klukkan
fimm í dag, og muni hann nú ekki
framlengdur. Verði ekki gengið að
kröfum þeirra fyrir þann tíma,
muni gíslamir teknir af Ifi. Var
skýrt frá þessum fresti í skevti til
útvarpsstöövarinnar í Montreal.
Vopnaðir hermenn gættu enn f
morguin stjórnimá'lamanna í ýmsum
borgum.
Enn í morgun biðu gíslamir,
brezki verzlunarfuiMtrúinn James
Cross og Laporte ráðherra, þess,
hvað verða mundi. Var sagt, að
þeir væru við „góða lfðan“.
„Útlaga-Rússar og áróðursmenn
eru bak við veitingu Nóbels-
verðlaunanna44
— segir timaritið Literaturnaja Gazeta
Það er að hitna í kolunum
umhverfis Nóbelsskáldið
Solzhenitsyn. Bókstafstrú-
armenn í félögum rithöf-
unda í Sovétríkjunum
beina spjótum sínum að
honum. Samtímis hefur
verið dreift nýrri yfirlýs-
ingu frá stjórnarandstæð-
ingum, þar sem Solzhenit-
syn er borinn lofi.
Literaturnaja Gazeta, málgagn
rithöfundasambandsins, sem rak
Solzhenitsyn úr röðum sínum í
fyrra, segir í morgun að það séu
atvinnuáróðursmenn og burt fluttir
Rússar, sem andstæðir séu Sovét-
ríkjunum, sem hafi ráðið því, að
verðlaunin voru veitt Solzhenitsyn.
Sovézka fréttastofnunin TASS
birti útdrátt úr árásum tímaritsins
á Solzhenitsyn. Með skrifum Lit-
eratumaja Gazeta er ha'ldið áfram
árásum á Solzhenitsyn, sem hóf-
ust strax á föstudaginn eftir að til-
kynnt var, hverjum verðlaunin
yrðu veitt. Þá lýstu rithöfundasam
tökin yfir því, að verðlaunaveiting-
in væri af pólitískum toga spunn-
in, og hefðu samtökin haft að baki
sér meirihluta þjóðarinnar, þegar
Solzhenitsyn var rekinn.
Literatumaja Gazeta segir, að
„Nóbelsnefndin hafi látið tæla sig
í siðlaust pólití'skt spil“. Þá er fjall-
að um ötula starfsemi útlaga-Rússa
sem ritið kveður halda uppi skef ja-
lausri baráttu gegn Sovétríkjunum.
Það hafi einmtit verið þessir menn,
sem rekiö hafi harðastan áróður
fvrir þvi, að Solzhenitsyn fengi
N ób els verölauni n.
„Það 6r greinilegt, að það er aka
demian á við með „siögæði höfund-
ar“, segir tímaritið, „er tilhneiging
Solzhenitsyns til að vera á móti
Sovétríkjunum". — Tímaritið er að
alm'áigagn bótestafsitrúarmanna i
Sovétrikjunurh.
Vito Wrap
Hcimilisplast
Sjólflímandi plastfilma . .
til að leggja yfir köku-
og matardiska
og pakka
inn matvælum
til geymslu
í ísskópnum.
Fæst í matvöruverzlunum.