Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 9
VÍ-SIR. Mánudagur 11. október 1971.
71. skoðanakönnun V'isis: Viljið þér hafa lokunartima verzlana frjálsan eða bundinn ákveðn-
um takmórkunum, til dæmis til klukkan sex og fvö kvöld i viku til klukkan 10?
Kemur krökkunum upp á
//
sjoppuhangs á kvöldin
//
„Það er alveg óþarfi að venja fólk á að þurfa
ekki að hugsa eða sjá neitt fram í iímann“ —
„Hætt er við, að útgerðarmönnum þætti sér
nóg boðið, ef einhver fetti fingur út í það, hven-
ær þeir láta báta sína róa“ — „Sjálfri er mér
sama, en mörgum húsmæðrum, sem vinna úti,
kæmi betur að geta skroppið í búðir að loknum
vinnutíma.“
★ „Takmarkaðan. Það er ekki sanngjarnt að
lengja vinnutíma hjá suraum, meðan aðrir eru
allir að stytta sinn vinnutíma“ — „Fólk hlýtur
að geta sætt sig við fastan tíma“ — „Samkeppn
in ætti að ráða í þessu“.
ir „Ég vil hafa opið lengur, aðallega vegna verka-
mannanna“ — „Þessi lokunartími kemur ákaf-
lega lítið við mig. Ég fæ vörur eftir pöntun einu
sinni í viku“ — „Meirihlutinn af þeim, sem
í þessu eru, vill víst hafa takmarkað“ —
„Verzlunarfólk á líka að eiga sín frí“.
★ „Ætti að vera frjáls, en ef til vill með einhverj-
um skilyrðum“ — „Það er bara til að spilla
bæjarbragnum og koma krökkunum upp á
sjoppuhangs á kvöldin, að þetta sé allt frjáist<<!**
— „Það hafa flestir orðið frystikistur og geymsl
ur og þeir geta vel komizt af með venjulegan
lokunartima“ — „Mér leiðast öll afskipti ann-
arra af því, hvernig menn haga vinnutíma sín-
um“.
Nýju reglumar um lokunar-
tíma sölubúða í Reykjavík eru
að hljóta skírn sína þessa dag-
ana. Þær hafa verið umdeildar,
en þær eru til komnar vegria
kröfu meirihluta kaupmanna
og meirihluta verzlunarmanna,
sem borgarstjórn samþykkti aö
fylgja. Meðal kaupmanna í
borginnj er hins vegar talsverð-
ur fjöldi, sem telur, að með
reglunutn sé gengið á athafna-
frelsj sitt. Þetta er sá hópur,
sem hefur haft verzlanir opnar
á öörum t'ima en meirihlutinn,
svo sem eftir hádegi á laugar-
dögum og ýmis kvöld.
í deilumáli sem þessu er það
þó væntanlega hagur neytand-
ans sem mestu ætti aö skipta.
Andstæöingar nýju reglnanna
hafa haldið því fram, að meö
þeim væri dregið úr þjónustu
við neytendur. Það er einnig aug
ljóst mál, að nú verður fólk i
Reykjavík að leggja meira á sig
en áöur t d. ef eitthvað vant-
ar i matinn, þegar óvænta gesti
ber að garð; eða ef meira er
etið á laugardögum en menn
ætluðu, fólk er fjarverandi og
slíkt. Nýju reglurnar hljóða i
aðalatriðum upp á það, að verzl-
anir megi vera opnar til klukk-
an sex alla daga nema tvo í viku
og þá til klukkan tíu, þriðju-
uaga og föstudaga. Margar búð-
ir verða því opnar til klukkan
tíu þessi tvö kvöld, sem ekki
hefðu verið það annars. Sú
aukna þjónusta, sem meö þvi
er veitt, vegur að einhverju
leyti upp á mótj þeirri minnkun
þjónustu sem það veldur, að
sumir eru neyddir til að loka
á öðrum tímum
Þeir, sem styðja nýju reglurn-
ar, telja, að ekki sé viðunandi,
að kaupmenn fari sínu fram að
viid. Sú samkeppni. sem af þvi
leiði, hljóti að leiða í ógöngur,-
og hver grafi ahnars..gröf. Verzl-
unarmenn telja sér hættu búna,
ef mikil samkeppni verður milli
kaupmanna í þessum efnum,
svo að vinnutími verði óhóflega
langur og erfiður.
Skiptast því sem næst í
iafna hópa
Vísir vildi komast að því,
hvað almenningi fyndist um
þetta hitamál, og hafði því
skoðanakönnun um afstöðu
fólksins. Skoðanakönnunin var
gerð samkvæmt viðurkenndum
reglum um skoðanakannanir.
Niðurstöðurnar urðu þær, að
menn skiptust því sem næst
jafnt í afstöðu með og móti.
Könnunin náði til landsins alls
í hlutfalli við skiptingu íbúa á
landshluta. Að öllu samanlögðu
var naumur meirihluti fylgj-
andi takmörkun lokunartímans
með því orðalagi, sem spurn-
ingin hafði: Viljið þér hafa lok-
unartíma verzlana frjálsan eða
bundinn ákveðnum takmörkun-
um, til dæmis til klukkan sex
og tvö kvöld í viku ti) klukkan
tíu?
Samtals reyndust 47,5 af
m... ...... - - -.
Fólk að verzla á föstudagskvöld
hverjum 100 landsmönnum vilja
hafa lokunartíma budinn tak-
mörkunum og 42 af 100 voru
því andvígir. 10,5% höfðu enga
afstöðu til málsins.
Á höfuðborgarsvæðinu var
meirihlutinn hins vegar fylgj-
andi því, að lokunartíminn væri
frjáls, en það var mjög naumur
meirihluti. Af 105, sem könnun-
in náði til á því svæði, var 51
fylgjandi frjálsum lokunartíma,
43 vildu hafa hann bundinn tak-
mörkunum, og 11 voru óákveðn-
ir.
Utan Reykjavíkursvæðisins
vildu 33 hafa lokunartíma frjáls-
an, 52 bundinn takmörkunum
og 10 voru óákveðnir.
Konumar fremur fylgj-
andi takmörkunum
Það voru konurnar, sem
réðu úrslitum í þessu máli. Af
99 karlmönnum, sem spurðir
voru. vildu 45 hafa tímann
frjálsan, 43 bundinn og 11 voru
óákveðnir. Af 101 konu vildu
hins vegar 52 hafa lokunartím-
ann bundinn 39 frjálsan og 10
voru óákveðnar í málinu.
Gert ráð fyrir 5%
fráviki
1 könnunum sem gerðar eru
eirts og skoðanakönnun Visis, má
Niðurstöður úr skoðanakönnuninni urðu þessar:
Frjcflsnn ... 84 eðu 42%
Bundinn ... 95 eðn 47,5%
Óákveðnir.. 21 eðn 10,5%
Ef aðeins eru taldir þeir, sem afstöðu tóku,
lítur taflan þannig út:
Frjáisnn. .... 47%
Tukmarkaðiin • 53%
/
gera ráð fyrir skekkju eða töl-
fræðilegu fráviki, sem er eitt-
hvað um 5% á hvora hliðina.
Þetta höfðum við alla tíö lagt
áherzlu á, þegar litlu hefur
munað f þeim 70 skoðanakönn-
unum, sem farið hafa á undan
þessari. Þegar áðeins eru tekn-
ir þeir sem tóku afstöðu i þess-
ari könnun, eru 53% fylgjandi
takmörkun lokunartíma og 47%
fylgjandj frjálsum lokunartíma.
Þarna er aðeihá i 6%r munur,
sem þýðir það, aö ekki verður
tölfræðiléga fúllýrt,'' 'áð niðúr- *
stööurnar sýni, hvað meirihluti
fólks vill eða vill ekki, heldur
aðeins að menn skiptist því sem
næst jafnt í hópa um málið,
þar sem annar helmingurinn vill
frjálsan og hinn helmingurinn
takmarkaðan lokunartfma.
Athyglisverðasta niðurstaða
könnunarinnar er ef til vill sú.
að helmingur neytenda að
minnsta kosti sér ekkj ástæðu
til að láta i ljós andstöðu við
takmörkun á lokunartíma sölu-
búða. Forsendur þeirrar af-
stöðu koma sumar hverjar fram
i umsögnum fólksins, sem nefnd
ar eru fremst i þessar; grein.
Úti á landi er þetta mál víðast
hvar lítið á döfinni. en margir
utanbæjarmenn sögðu sem svo,
að þeir vildu ekki þrælka verzl-
unarmönnum í ReykjavVk með
kvöld- og helgarvinnu. — HH
visiEm
— Viljið þér híifa lokun
artíma verzlana frjálsan
eða bundinn ákveðnum
takmörkunum eins og
nú er?
Steinunn Egilsdóttir, húsmóðir:
— Mér finnst hann vera ágæt-
ur eins og hann er nú. Ég get
að minnsta kosti hlaupið út í
búð hvenær sem er dagsins og
þarf ekki lengri afgreiðslutíma
fyrir mig.
Jón Tómasson: — Reglur finnst
mér sjálfsagðar í þessu tilviki.
Frá minum bæjardyrum séð er
allt i himnalagi með þann af-
greiðslutíma, sem nú gildir. Ég
kaupi nú raunar ekki sjálfur í
matinn, það gerir frúin, en hún
hefur ekki kvartað.
Róslfn ióhannesdóttir, fram-
reiðslustúlka: — Mér finnst
hann hafa mátt vera áfram
frjáls eins og hann var. Mér
kom það að minnsta kostj afar-
vel oft á tiðum, þar eð ég
vinn á vöktum.
Guðmundur Guðjónsson, gjald-
keri: — Mér fannst hann ágæt-
ur, eins og hann var og ekki
vera nein þörf á að breyta þar
frá Nýja fyrirkomulagið finnst
mér vera fremur til óþæginda
en hitt.
Gestur Sigurjónsson: — Afsalútt
frjálsan, þannig að dugnaöur
hvers og eins kaupmanns fái
notið sín. og þeir getj haft opiö
eins lengi og þeir sjá sér fært.
mm
Svava Bernharðsdóttir, húsmóð-
ir: — Ég trúj ekki öðru en að
á hverju heimili sé einhver, sem
hafi tök á því að gera innkaup
til heimilisins fyrir klukkan sex
á daginn. Mér finnst það vera
hreinasti óþarfí að vera að
halda verzlunum opnum lengur
frameftir