Vísir - 25.03.1972, Blaðsíða 16

Vísir - 25.03.1972, Blaðsíða 16
visrn Laugardagur 25. marz 1972. 17 árekstr- ar í gœr Veðrið var ekki beinlinis hlið- hollt gangandi vegfarendum i gær, rok og rigning. En þeir, sem akandi voru, virðast hafa tekið veðrið mun nær sér. Arekstrar voru einir 17 i Reykjavik i gær- dag, og er hætt við, að þar hafi margir misst sinar 7.500 krónur. Engin slys urðu á fólki i þessum ákeyrslum, en bilarnir skemmd- ust meira og minna. — SG Sérmálin enn óleyst í stríði við rangan aðila v.Við teljuin að auglýsingunni sé beint gegn röngum aðila, þar sem við ákveðum ekki kaup og kjör þeirra sem vinna hjá rikis- stofnunum” sagði Guðjón Guð- mundsson skrifstofustjóri Itaf- magnsveitna rikisins i samtali yið Visi i gær. f>að var Tækni- fræðingafélag islands.scm beindi þeim cindregnu tilinælum til félagsmanna, að þeir licfðu sam- band við skrifstofu Tæknifræð- ingafélagsins. áður en þeir réðust tilstarfa hjá Rafmagnsveitunum. „Þessi auglýsing er sennilega tilkomin vegna ráðningar tækni- fræðings fyrir skömmu” sagði Guðjón. „Félagið telur, að hann fái minna kaup en tæknifræðing- um ber, en það hefur ekki gert neina beina kjarasamninga við rikið." Jónas Guðlaugsson er varafor- maður Tæknifræðingalélagsins. Hann vildi litið um málið segja og taldi likur á, að það leystist fljót- lega. Jónas sagði, að svona aug- lýsingar væru algengar erlendis, þótt þær væru fátiðar hér. Ilann , kvaö samninganefnd BSRB hafa samið um launamái tæknifræð- inga, sem vinna hjá rikinu, og nú hefði komið upp tilfelli, sem Télagið teldi brjóta i bága við samninga. Höskuldur Jónsson hjá fjár- málaráðuneytinu sagöi málið ekki hafa kpmið til kasta launa- máladeildar. —- SG Eta slikk fyrir 400 kr. á dag Ungmenni i 2. bekk L i Lauga- lækjarskóla neituðu sér um sæl- gæti i 4 daga, en gáfu andvirðið til Hjálparstofnunarinnar. Afrakst- urinn reyndist 1.580 krónur, og er myndin tekin, þegar peningarnir voru afhentir. Unglingarnir á myndinni eru Dttó Guðjónsson, Katrin Dóra Valdimarsdóttir, Þóra Björg Þórisdóttir, Jófriöur Hanna Sigfúsdóttir og Tómas Jóhannesson. —SG Verkalýðsforystan orðin óþolinmóð, enda tveir og hálfur mánuður frá því að sérsamningium átti að Ijúka Verkalýðsforingjarnir eru nú að verða heldur langir i framan vegna seinagangs, sem verið hefur í sérsamningum við atvinnurekendur. Eins og skýrt hefur verið frá var samið um það i byrjun desember að Ijúka sér- samningum fyrir 15. janúar, og var það sam- komulag einn stærsti liður þess, að unnt reyndist þá að afstýra allsherjar verkfalli á elleftu stundu. Þegar samkomulagið var gert i byrjun desember, voru margir raunar vantrúaðir á, að unnt reyndist að ljúka sérsamning- unum fyrir 15. janúar, en fáir munu þá hafa trúað, að sér- samningarnir frestuðust um 2 1/2 mánuð, eins og riú hefur orð- ið raunin á. Enginn asi mun enn vera kominn i samningaþrefið, þannig að búast má við, að enn muni liða nokkur timi, þar til sérsamningunum lýkur. Ýmislegt hefur orðið til þess að draga sérsamningana á lang- inn. Farmannaverkfallið og samningaþófið i sambandi við það tók mikinn tima fulitrúa vinnuveitenda ijanúar. Eftir þá gengu samningaviðræðurnar hægt, enda engin verkfallshótun til að reka á eftir mönnum. Nú undanfarið hafa veikindi i verkalýðsforystunni nokkuð dregið úr hraðanum i samn- ingaviðræðum. Björn Jóns son, forseti ASI gar lagður inn á sjúkrahús með brjósklos i hrygg, og hefur Alþýðusam- bandið þvi verið forsetalaust að undanförnu, en enginn varafor- seti er nú i ASt, sem getur leyst forseta af, eftir að Hannibal sagði af sér sem forseti við stjórnarskiptin og Björn, sem var varaforseti, tók við forseta- starfinu. Þá veiktist Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar, heiftar- lega á laugardaginn og var lagður inn. Hann mun nú vera á batavegi, en verður úr leik a.m.k. næstu vikur. Þess má geta, að ASt verður áfram forsetalaust um tima, þó að Björn hafi verið útskrifaður af spitalanum, þar sem hann og Guðmundur Garðarsson for- maður V.R., fara i nokkurra vikna kynningarferðalag til Bandarikjanna i boði þarlendra aðila. Vegna þess að sérsamningum er enn ekki lokið milli ASI og vinnuveitenda, hefur ekki verið unnt að ganga frá sérmálum ýmissa verkalýðsfélaga úti á landi i samningum við atvinnu- rekendur þar, þar sem verka- lýðsforystan telur sig hafa bundnar hendur, þar til kominn er botn i málin hér i Reykjavik. -VJ Fórnarvakt við „ríldð" í gœr Yið viljum fyrst og gremst vekja athygli fólks á, hvað and- virði álengis pess, sem pao æuar sér að neyta um helgina, getur lijálpap mörgurn, sem búa við skort”, sögðu nokkrir skipti- nemar þjóðkirkjunnar, scm stóðu við dyr útsölunnar i Laugarási i gær. —Ha, jú sjálfsagt að fá eintak, enda er ég búinn að verzla. . . Þeir, sem lögðu ieið sina i rikið, fengu afhent fjölritað blað og stóð á þvi m.a., að andvirði einnar áfengisflösku gæti fætt 32 ibúa Bangla Desh i einn dag. Skipti- nemarnir höfðu einnig meðferðis ilát undir framlög til fórnarvik- unnar, og einstaka áfengiskaup- endur létu eitthvað af hendi rakna i söfnunina. Fórnarviku kirkjunnar lýkur á morgun, og er þvi enn tækifæri til að leggja fram fé i söfnunina. —SG. Rosi á miðum Þcir hafa vcriö að fá frá fjórum og allt upp i 49 tonn, netabátarnir, sem eru á eftir þorskinum i Faxa- flóa. Langflestir báta héðan úr Reykjavik, Hafnarfirði og af Akranesi halda sig undir Jökli, og þar hefur aflinn verið allsæmileg- ur. Þeir láta hins vegar verr af sér Suðurnesjamennirnir, þeir hafa talsvert verið að hjakka út i Kanti, sem kallað er og þar hefur hann verið tregur, samt hafa þeir fengið nokkuð af ufsa með þorsk- Aflinn i Breiðafirði hefur verið svipaður og hér i Faxaflóanum, að þvi Visi var tjáð i gærdag, a.m.k. ekki siðri. Netabátarnir hafa þvi að und- anförnu gert þaö nokkuð gott, en tregar gengur að fá þorskinn i troll. Uppundir 30 bátar munu nú landa að staðaldri hér i Reykja- vik, slangur af þeim landar jafn- an i Hafnarfirði. Eftir hádegið i gær brældi mjög á miðum, og héldu þá flestir til hafnar að biða af sér rosann. — GG Ekki eins löng bið í myrkrinu Rafmagnsveitan fœr tölvustýrt stjórnkerfi á nœsta ári Við þurfuin ekki að biða eins lengi eftir þvi, að rafmagnið komi aftur á — i rafmagnsleysi næsta árs. Þá er nefnilega gert ráð fyrir þvi, að nýtt stjórnkerfi verði komiö upp hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur. Þetta fullkomna tæki, sem mun kosta milli 30 og 35 milljónir króna og ætlað er til fjarstýringar á drcifikerfinu, cr tölvustýrt, og á þvi verður sólar- bringsvakt. Aðalsteinn Guðjohnsen raf- magnsstjóri sagði í viðtali við Visi, að heimild hefði verið gefin fyrir kaupum á þessu tæki. Hagsmunirnir við notkun þessa útbúnaðar eru tviþættir. Annars vegar minnkar salan minna hjá okkur vegna straum- leysis og hins vegar sparar það framleiðslutap i iðnaöi, sem veröur vegna rafmagnsleysis. Einnig þýðir það öryggi og ■ -,o þægindi fyrir okkur, og siöast en ékki siztreiknurri viömeð aö bæta þjónustuna hjá notendum. Viö er- um mjög spenntir að fá þetta stjórnkerfi og vonum, að það standi sig vel i bilunum. Rafmagnsstjóri segir, að stjórnkerfið, sem muni fjarstýra aðveitustöðvunum, sem ‘ eru 11 talsins, muni geta stytt verulega straumleysistima, þegar viðtækt straumleysi er. — t dag þarf að senda ménn i allar aðveitustöðvarnar, þegar slikt kemur fyrir og það tekur sinn tima. Nýja kerfið styttir þann tima, sem það tekur að koma svæðum inn á aftur, ef verulegur hluti af þeim fer úr sambandi. Ef ein aðveitustöð fer út, komum viö einnig notend- unum fyrr i samband. Stjórnkerfinu veröur komið fyrir i bækistöð rafmagnsveit- unnar i Ármúla og sýnir okkur á einum stað ástand kerfisins á hverjum stað fyrir sig. Upplýsingar koma fram á sjón- varpsskermi hjá okkur, og enn- fremur berast stöðugt vélritaðar upplýsingar frá kerfinu. Ollu saman stýrir tölva. Rafmagnsstjóri sagði einnig, að stöðugt yrði fylgzt með álaginu með nýja stjórnkerfinu. —SB—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.