Vísir - 10.04.1972, Page 9
LANDSLIÐIÐA LINUÆFINGU
Þaö mætti ætla að
Bandarikin hafi stigið risa-
skref í áttina að því að
verða eitt meiri háttar
handboltaveldi. Svo vel
héldu þeir í við islenzka
landsliðið i fyrri leik lið-
anna i Laugardalnum á
laugardaginn. Enn held ég
þó að um 15 marku munur
sé á liðunum, minnst.
Vissulega er Bandarikjaliðið i
framför. Skárra væri það nú eftir
þann fjáraustur, sem farið hefur i
liðið, æfingar og löng ferðalög
hvað eftir annað. Það er e.t.v.
vörnin sem hefur tekið mestum
framförum, og var þó ekki góð,
þvi islenzka liðið lék sér mest-
allan leikinn i þrengslunum innan
3 metra linunnar, og leikur
islenzka liðsins byggðist upp á
linuspili svo til eingöngu.
Já, það var jafnvel haft á orði
að þarna væri islenzka landsliðið
með linuæfingu, og það voru orð
að sönnu. Fyrsta skotið gegnum
vörnina kom ekki fyrr en eitthvað
7—8 minútur voru til leiksloka. Og
þessar siðustu minútur sýndu
Spánarfararnir á sér nýja og
betri hlið og höfðu algjöra yfir-
burði, skoruðu nú jafnt úr linu-
skotum og langskotum, en fram
að þessu hafði leikurinn einkennst
af dellukendri leit að linu-
mönnum, jafnvel þótt stór-
skytturnar okkar virtust eiga
fullkomin tækifæri á að skora i
gegnum vörnina.
Áreiðanlega hafa áhorfendur,
sem rétt rúmlega hálffylltu
Laugardalshöllina, verið sáró-
ánægðir með islenzka liðið, eftir
það sem undan er gengið, þ.e.
leikina Spáni. Liðið brást nefni-
lega illa i sókninni. Sannleikurinn
er nefnilega sá, að þrátt fyrir að
varnarmál Bandarikjanna i
handknattleiksmálunum hafi
stórlega lagazt, þá er það stað-
reynd engu að siður! að linu-
sendingar heppnuðust með af-
brigðum vel.
Þó létu linumenn Edes mark-
vörð verja hjá sér hvað eftir
islenzku skytturnar tóku að taka
á honum stóra sinum.
Geir var þarna maður dagsins
með 12 mörk, þar af helmingur-
inn úr vitum. Linusendingar hans
voru og margar frábærar, enda
þótt nýting þeirra tækifæra væri i
lágmarki. Birgir i markinu varði
og vel, en varla verða Banda-
rikjamenn sakaðir um að brjóta
stengur eða rifa net með skotum
sinum. Þá var Björgvin
Björgvinsson skemmtilegur i
þessum leik, sifellt vaxandi leik
maður og skoraði 3 falleg mörk af
jlinunni. önnur mörk: Sigur-
bergur 2, Gisli Blöndal 2, Ölafur
Jónsson 1, Sigfús 1.
Beztur i ameriska liðinu var
markvörðurinn Elmer Edes, en
einna næst þvi að geta talizt
skytta er Joel Voelkert,
ágætir leikmenn eru og þeir
Dennis Bertholtz og Terry Tinkle.
Dómarar voru Björn Krist-
jánsson og Karl Jóhannsson og
dæmdu vel.
—JBP
HEIMSMET
Sviinn Kjell Isaksson setti nýtt
lieimsmet i stangarstökki á fr-
jálsiþróttamðti i Austin i Tcxas á
laugardagskvöld, þegar hann
stökk 5.51 inetra i annarri tilraun
sinni. Kjeil á einnig heimsmelið
innanluiss i greininni og ætti að
liafa mikla sigurmöguleika á
Ólympiulcikunum i IVIunchen i
haust.
Austur-þýzki óly mpiumeistar-
inn Koland Matthes setti nýtt
heimsmet i 1110 m. baksundi á
inóti i Moskvu á laugardag. Hann
synti á 56.6 sek., sem er hroti úr
sekúndu hetra en cldra met hans,
sem liann setti i I.eipzig 11170.
Metið var sett nú i landskcppni
milli Sovétrikjanna og Austur-
Þýzkalands.
A sunnudag bætti Matthes aftur
metið, þegar hann synti á 56.3
sek. á sunnudag fyrsta sprett i
1x100 in fjórsundi.
Björgvin Björgvinsson frir á linu og skorar eitt af þremur mörkum sinum
á laugardag.
annað. Hins vegar er ekki hægt að
dæmaumlið eftirleik við land eins
og Bandarikin, þvi á þessu sviði
eru Bandarikjamenn svo sannar-
lega vanþróaðir, enda þótt margt
hafi breytzttil batnaðarhjá þeim
á þeim 8 árum, sem við þekkjum
til þeirra á þessu sviði.
Leikurinn hófst annars með
marki Geirs Hallsteinssonar úr
viti á 4. minútu, en Joel Voelkert,
Indiánamaður skoraði jöfnunar
markið. Eftir það leiddu tslen-
dingar, enda þótt stundum virtist
munurinn furðu litill á liðunum á
markatöflunni, enda þótt munur-
inn að öllu öðru leyti væri mikill.
tsland komst i 4:1 og 8:2, en
siðustu minútur hálfleiksins voru
slappar, og Hjalti sem kom inn i
stað Birgis, átti greinilega ekki
góðan dag. 1 hálfleik var staðan
9:5. Seinni hálfleikurinn leið hægt
og rólega og á tima virtist Banda-
rikjaliðið ætla að ógna, staöan
10:7 og islenzka liðið hafði ekki
skorað i einar 13 minútur hjá þvi
bandariska, þegar Geir skoraði
loks úr viti. Eftir það var enginn
vafi á sigrinum, ekki sizt eftir að
— en skytturnar í fríi
þegar Island vann
þar til undir lokin,
Bandarikin 21:11
Norðurlandamót pilta í handknattleik:
Misstu af öðru sœtinu
vegna taps gegn Finnum
islenzku piltarnir náðu
þriðja sæti á Norðurlanda-
meistaramóti unglinga,
sem háð var í Elverum um
helgina. Þeir sigruðu Norð-
menn, gerðu jafntefli við
Dani, töpuðu mjög óvænt
fyrir Finnum, sem urðu i
neðsta sæti, og töpuðu einn-
ig — með miklum mun —
fyrir Svíum, sem voru í sér-
flokki i keppninni og sigr-
uðu auðveldlega í mótinu.
Einstakir leikir á mótinu fóru
þannig:
tsland-Noregur 12-7
Sviþjóð-Finnland 11-3
Danmörk-Noregur 13-8
Sviþjóð-ísland 11-5
Finnland tsland 12-10
Danmörk-Finnland 17-12
tsland-Danmörk 14-14
Sviþjóð-Noregur 7-5
Sviar unnu Dani einnig og hlutu
átta stig, Danir 5, Islendingar 3 og
Norðmenn og Finnar 2 stig.
Island-Noregur.
Þrátt fyrir, að fimm leikmönn-
um islenzka liðsins var visað af
leikvelli i tvær min. hverjum,
vann tsland öruggan sigur gegn
Noregi með 12-7, en staðan i hálf-
leik var 5-4 fyrir lsland.
íslenzka liðið hafði mun betri
tækni og lék hraðar, segir i frétt
frá NTB, og þegar aðeins fimm
minútur voru eftir stóð 11-4 fyrir
tsland, en norska liðinu tókst að-
eins að laga úrslitin undir lokin.
Markvörður islenzka liðsins, Jón
Hákonarson, vakti athygli i siðari
hálfleik, þegar hann greip nokkur
föst skot Norðmanna og einnig er
Birni Péturssyni hælt og það sé
leikmaður, sem vert er að taka
eftir. Gunnar Einarsson var
markhæstur leikmanna tslands
með 4 mörk. Björn Pétursson
skoraði 3, Björn Guðmundsson 2,
Stefán Þórðarson, Guðjón Mar-
teinsson og Haukur Ottesen eitt
hver.
Finnland-island
Finnar komu mjög á óvart á
mótinu, þegar þeir sigruðu ts-
land, sem talið var öruggt með
sigur i leiknum, með 12-10 á
laugardagskvöld i Elverum.
Staðan i hálfleik var 5-5, en
Finnarnir, sem sýnt hafa framför
i hverjum leik, unnu á þvi að leika
á taktiskan hátt og skora góð
mörk úr hornunum. tslenzki
markvörðurinn gat litið gert við
þvi, þegar finnsku leikmennirnir
lyftu knettinum yfir hann i mark-
ið, en þeir höfðu friir sloppið
framhjá varnarmönnunum úti i
hornunum. Þremur mönnum var
visað af leikvelli — tveimur is-
lenzkum og einum Finna. Beztu
menn tslands voru Torfi Asgeirs-
son og Björn Pétursson.
Gunnar Einarsson var aftur
markhæstur meö 3 mörk, Björn
Pétursson, Guðjón Marteinsson2
hvor, og Björn Guðmundsson eitt
skoruðu fyrir tsland, segir NTB,
en fallið hafa niður þar tvö mörk.
Sviþjóð-ísland.
t fyrsta leiknum á sunnudag i
Elverum áttu Sviar ekki i neinum
erfiðleikum með að sigra islenzka
liöið og gátu þá þegar — eða fyrir
siðasta leik þeirra við Norðmenn
— kallað sig Norðurlandameist-
ara.
tsland byrjaði þó vel i leiknum
og skoraði tvö fyrstu mörkin og
þegar 16 min. voru af leik var
jafnt 3-3, en siðan komst sænska
liðið vel i gang og sigraði með sex
marka mun. n-6. Tveimur Svium
var visað af leikvelli — tvær
minútur hvorum. Mörk tslands
skoruðu Stefán Þórðarson 3,
Björn Pétursson og Haukur Otte-
sen.
tsland-Danmörk
tslenzka liðið gerði jafntefli i
siðasta leik sinum á mótinu — við
Dani 14-14. Þetta var spennandi
leikur, þar sem islenzka liðið
hafði oftast forustuna, en Dönum
tókst að jafna og rétt fyrir leiks-
lok komust Danir i fyrsta skipti
yfir 14-13. Þá var um minúta tii
leiksloka, en islenzka liðið náði
knettinum — komst inn i sendingu
— og Guðjóni Marteinssyni tókst
að jafna. Mörkin dreifðust mjög á
islenzku leikmennina, þeir skor-
uðu flestir i leiknum, Gunnar,
Guðjón, Björn,Haukur og Stefán,
svo nokkrir, sem flest mörk skor-
uðu séu nefndir. — hsim.
Stefán Þórðarson —
skoraði þrisvar gegn
svium.