Vísir - 06.03.1973, Blaðsíða 2

Vísir - 06.03.1973, Blaðsíða 2
2 Vísir. Þriðjudagur 6. marz, 1973. VÍSUtSFTB: Finnst yður, að gefa ætti rekstur útvarpsstöðva frjálsan hér á landi? Þráinn Sigurjónsson, endur skoðandi: Þvi ekki það. Fyrst yrði þó að setja lög um það, þvi að ekki dygði að hafa sjálfdæmi um slikt, og það verður að vera innan skynsamlegra marka. Agúst Walterss., bifreiðarstjóri: Mér fyndist ekkert þvi til fyrir- stöðu. Ég álit, að rikisútvarpið hefði gott af'samkeppni. Jón Sigþórsson, bifreiðarstjóri: Nei, það álit ég ekki að væri heppilegt. Rikisútvarpið getur alveg séð fyrir þörfum okkar i þessu efni. Þorgils Georgsson, eftirlits- maður: Mér fyndist það vel koma til greina. Ég álit, að öll einokun sé óæskileg, samkeppnin gæti haft góð áhrif. Frfða Hjaltested húsmóðir: Já, ég sé ekkert á móti þvi. Ég álit að slikt hefði góð áhrif á rikisút- varpið. Haukur Kjartansson, bifvéla- virki: Nei, það finnst mér ekki. Okkur nægja alveg þær stöðvar, sem við getum nú þegar hlustað á. „Sízt af öllu áttum við von á að verða lögreglumenn'7 segja þrír Vestmannaeyingar á lögreglunámskeiðinu ,,Sizt af öllu áttum við von á að starfa einhvern tfma sem lögreglumenn”, sögðu Vest- mannaeyingarnir þrír, þeir Arngrimur Magnússon, Helgi Gunnarssonog Snorri Ólafsson, ,,Við megum ekki vera svartsýnir”. Frá vinstri: Arngrfmur Magnússon, Helgi Gunnarsson og Snorri Ólafsson. sem Visismenn ræddu við á lög- reglustöðinni I gærdag, en þeir eru meðal þeirra, sem nú sitja á skólabekk I lögregluskólanum og búa sig undir starf I heima- byggð sinni. í bigerð er að fækka utanað- komandi mönnum i Eyjum, þeim mönnum, sem eru i föstu starfi hér i Reykjavík, og fá frekar Vestmannaeyinga sjálfa til starfa i Eyjum, sem þeir kjósa lika sjálfir. Til dæmis hefur mönnum úr Slökkviliði Reykjavikur verið fækkað niður I fjóra I Eyjum. Tólf menn sitja á skólabekk lög- reglunnar, én námskeið það, sem þeir sækja, hófst siðast- liðinn miðvikudag, og á morgun verða þeir siðan sendir til Eyja. „Það er áætlað, að við verðum i 12 daga, en siðan fáum við fri I fjóra daga og fáum þá að koma hingað. Ætli við þiggjum það ekki að sjá ætt- ingja og vini, þó að við viljum helzt vera i Eyjum”, sögðu þremenningarnir. „1 Eyjum verðum við að minnsta kosti i tvo mánuði við störf á venjulegum lögreglu- taxta. Við byrjum á þessu nám- skeiði klukkan 8 á hverjum degi og erum til 5. Og lærum allt á milli himins og jarðar. Svo sem Lesendur J5 hafa „Það er sýknt og heilagt verið að hnýta í leigubflstjóra fyrir þá sök, að það er hörgull á leigu- bilum við skemmtistaðina að loknum dansleikjum um helgar. Það er leiðinlegt að liggja undir ámæli fyrir þetta, þvi að okkur tekur það sárt að sjá fólk hrekjast I allavcga veðri um göturnar og vanta leigubíl — og finna, að við getum ekki veitt því lið”. Þannig hófu mál sitt tveir leigubilstjórar, sem tóku okkur tali vegna leigubilaeklunnar á helgarkvöldum. Þeir telja, að fólk mundi sjá, hve ómaklegt þetta hnútukast er, ef athygli þess yrði vakin á ýmsu, sem snertir þennan helgarakstur. „T.d. hve bilaflotinn nýtist illa þessar nætur fyrir hringlanda og snöfl farþega, sem hirða ekkert um það — eftir að þeir eru sjálfir búnir að ná sér 1 leigubil — að eftirstendur fólk, sem biður eftir þvi, að leigubillinn losni og komi aftur að sækja fleiri. Einungis eitt einasta laugardags kvöld höfum við sloppið við það — það sem af er þessu ári — að aka með farþega beint út á nætur- afgreiðslu Umferðarmiðstöðvar- innar, þar sem maður er oft látinn biða timunum saman, meðan farþeginn fær sér pylsu, tekur farþega i næstu bflum tali, hlerar eftir þvi, hvar sé parti, fær sér kók, meiri pylsu, hittir kunningja sina og tekur þá tali, blandar sér I umræðurnar um, hvar halda skuli partiið.. og svona endalaust. Þá er ekki verið að hugsa um það, að hundruð manna séu á hrakhólum i bænum og vanti til- finnanlega far heim til sin. Eða þá hitt, sem er orðið svo al- gengt, að það gerist i fleiri til vikum en ekki. — Nefnilega, að menn eru ekki með greiðslu handbæra fyrir aksturinn, þegar svo loks ferðin er á enda. Þeir þurfa að fara inn og sækja greiðsluna. „Verð enga stund!”. 0, jæja, það er upp á fjórðu og fimmtu hæð að fara. Og eitthvað vefst að finna peningana, nema það liða minúturnar, fimm, tiu, kannski, fimmtán, og loks kemur maðurinn. „Ha, hvað, ertu búinn að hækka fargjaldið? Annaö „Margir leigubílar fró helgarakstri — vegna koma I þúsundatali út úr skemmtistöðunum — allir á sömu mlnútunni, eða hér um bil. Kannski eru næturklúbbar eina lausnin? — Þetta minnkaði til mikilla muna, þegar þeir voru hér hvað flestir. fiða kannski væri ráð að láta samkomuhúsin loka á mismunandi timum eins og stungið hefur verið upp á?— (Þeir, sem erú svolitið klókir, fara venjulega út af skemmti- stöðunum tiu minútum áður en lokað er, þvi að þá biða leigubilar i hrönnum fyrir utan.) Annars veitir maður eftirtekt einu skrýtnu i þessu starfi. Enginn farþegi frá Hótel Sögu ætlar á Melana, heldur I austur- bæinn. Enginn farþegi frá Glæsi- bæ fer I Vogana, heldur I vestur- bæinn! — Það er eins og allir fari yfir i allt annað hverfi, ef þeir ætla út að skemmta sér. Alveg eins og tófan bitur aldrei nærri greninu, virðast menn sniðganga samkomuhúsið i nágrenni heimilis sins! En að öllu gamni slepptu verður að benda á, að það er hægara að heimta úrlausn en finna hana sovna I snarhasti. Þvi hefur ein- hvers staðar verið slegið fram, að nær 12.000 Reykvikingar séu á samkomustöðunum að skemmta sér á laugardagskvöldi. Ef við hugsuðum okkur að hafa tiltæka bila við hvern skemmtistað, svo að hægt væri að útvega fólki far án þess að láta það biða mjög lengi — kannski i mesta lagi hálf- tima eða þrjú kortér — þá þyrftu aö minnsta kosti að vera staddir kl. tvö 300 bílar við Hótel Sögu, 300 bilar við Hótel Loftleiðir, 180 bflar við Sigtún, 150 við Hótel Borg, 250 við Klúbbinn, 150 við Rööul, 200 við Þórskaffi, 150 við Glæsibæ. = Samtals 1680 leigu- bilar! Þá eru ekki talin Ingólfskaffi, Leikhúskjallarinn, Silfurtunglið o.s.frv. Leigubilaflotinn i Reykjavik er sennilega um 900 bflar i dag, og þar af aka á laugardagskvöldum milli 600 og 700 bilar. Svoaðmennsjá, að það er rétt meiraenbara að segja það — að kippa þessu i lag. hringlanda" — segja leigubílstjórar sem leiðist ámœlið sagöirðu áðan, maður! Hvað á þetta að þýða?” Þannig kemur töf og meira þref. Ekki er heldur þá verið að hugsa um það, að hundruð manna biða.... Menn geta rétt imyndað sér, hvernig tekið er I það hjá far- þeganum, ef bilstjórinn imprar eitthvað á þvi, hvort ekki megi sleppa einhverjum af þessum töfum. — Óskammfeilni! Aldrei hugsið þið um neitt nema peninga! Maður veit svo sem, að þið hafið mest upp úr start- gjaldinu og viljið fá sem flesta túra! — Og svo náttúrlega enn verri svivirðingar. Það er annars einkennilegt að fólki, sem greinilega nýtur þess vel að eiga fri þessi helgarkvöld, —og mundi örugglega ekki gera handtak á þessum tima eða tylli- dögum, nema fá góða borgun fyrir — skuli finnast það svona svivirðilegt, að við, sem erum að vinna á þessum óguðlega tima, skulum gera það fyrir peninga! Það mundi að visu ekki leysa allan vandann, þótt svona hringl út á Umferðarmiðstöðina eða töfin, meðan beðið er eftir greiðslum, fengist lagt af. — Menn hafa mikið lagt heilann i bleyti, hvernig hægt er að leysa þessi óskapa vandræði, sem skapast, þegar Reykvikingar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.