Vísir - 25.04.1975, Blaðsíða 3

Vísir - 25.04.1975, Blaðsíða 3
Vlsir. Föstudagur 25. apríl 1975. 3 hafa Verks h.f. „hafaskal það er sannara reynist," segir Þorgils Axelsson hjá Kvarða þvi göfugt verk fyrir höndum, svo sem að vinna að úrlausnum á eld- vörnum húsanna og sannfæra embættismenn rikisins um ágæti þeirra, en það tókst mér ekki. Skal gerð grein fyrir þvi, ef þörf krefur. En tæknideildin starfaði á ann- an veg. 1 fyrstu réðu þeir mann- skap af teiknistofunni Kvarða i sina þjónustu! Ráðinn var „reyndur verkfræðingur,” með „meiri menntun og reynslu” en byggingafræðingurinn, sem upp- haflega teiknaði húsin, til að undirrita sömu teikningarnar og löggilda. • Hvað snertir samskipti Kvarða og sölustjóra Verks, er þetta að segja: Sem forráðamanni Kvarða bárust mér oft kvartanir við- skiptavina Verks h.f„ og skal það rakið siðar ef þörf krefur. Ég sneri mér alloft til hans með kvartanir þessar, þar sem enginn tæknimaður var hjá hlutafélaginu Verki. Sinnti hann þeim litt og sumum ekki. Um þverbak keyrði þó, þegar sölustjórinn fór að blanda sér i verðlagningu teikninga frá Kvarða, þar eð hann taldi þær of dýrar, en á timabilinu hafði Verk h.f. fjórum sinnum hækkað útsöluverð eininga. Kvörtunum minum um þessa ihlutun sölustjórans var visað á bug, þótt einn forráðamanna hefði hlustað á umrætt samtal. Enn leiðari varð ég þó, þegar sölustjórinn fór að útskýra fyrir viðskiptamönnum Kvarða hvernig hægt væri að breyta teikningum Kvarða á teiknistofu Verks, en að þvi voru vitni. Er furða, þótt mér leiddist samstarf við slikan mann? Hvað viðkemur aðaluppdrætti hússins i Akurholti, má geta þess að „Tæknideild” Verks h.f. teikn- aði ekki „nýja teikningu af húsi á umræddri ióð,” heldur nýja teikningu á sökklanaá umræddri lóð, og ætti verkfræðingur með mikla „menntun og reynslu” að vita, að þar er regin-munur á. Enda var nefnd teikning Verks ekki samþykkt af hreppsnefnd Mosfellssveitar fyrr en 9. april 1975, en þá var búið að gera húsið fokhelt. Teikning Kvarða, sem sökklar voru gerðir samkvæmt og húsið reist i fokhelt ástand eftir fyrir 9. april 1975, var samþykkt i febrúar 1974. Núverandi forráða- menn Verks ættu að gera sér ljóst að hér skipta dagsétningarnar töluverðu máli, þó svo að þeir telji i athugasemd sinni, að mér stafi ekki bein hætta vegna ábyrgðar á húsinu, heldur hvili hin raunverulega ábyrgð nú á verkfræðingi hlutafélagsins Verks. Með þessu athæfi hefur verkfræðingurinn, Sveinn G. Sveinsson, brotið lög um höfundarrétt og verður lýst fullri ábyrgð á hendur honum fyrir það og fleira. Sú fullyrðing hlutafélagsins Verks að ég hafi neitað að breyta teikningum minum, er ekki alls kostar rétt. 1 fyrsta lagi er ekki hægt að láta breyta teikningum, þegar ekki er vitað á frumstigi, hverjar breytingarnar eiga að vera. í öðru lagi ætti „reyndur og vel menntaður” verkfræðingur að vita, að hann á að útfæra teikningarnar samkvæmt aðal- uppdrætti. Sé honum það ekki ljóst, ætti hann að leita i byggingasamþykktir. í þriðja lagi samræmist það ekki sannfæringu minni að breyta hlutum, er hægt er að láta þá halda sinni upprunalegu mynd, þrátt fyrir breytta framleiðslu- hætti, án kostnaðaraukningar, eins og eiganda umrædds húss var bent á og hann hafði upp- runalega samþykkt. 1 fjórða lagi vel ég mér samstarfsfólk, sem ég treysti og gat þvi ekki lotið þvingunum frá hlutafélaginu Verki um að ég ætti að lúta stjórn þeirra og verkfræðings þeirra sem mér var áður kunnur við lausn á höfundarverkum minum, sem ég er að öllu jöfnu persónu- lega ábyrgur fyrir, en ekki hluta- félagið Verk.” — SHH Félagar í hjólhýsaklúbbnum sýna Smyrli mikinn óhuga — kostar ekki nema 3450 krónur aukalega að taka hjólhýsið með yfir til Bergen „Sama dag og auglýst var, hverjir hefðu aöalumboð fyrir bilaferjuna „Smyril” bárust okk- ur 200 pantanir,” sagði Steinn Lárusson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar tJrVals. „Það voru greinilega margir, sem voru búnir að biða spenntir eftir þvi að geta tryggt sér ferð með ferj- unni.” „Þessum 200 einstaklingum, sem bókuðu sig fyrsta daginn fylgja um 40 bilar, sem verður að teljast mjög mikið,” sagði Steinn. „Þá eru þeir einnig töluvert margir, sem hafa hug á að taka meö sér hjólhýsi yfir til Bergen.” 1 þvi sambandi má geta þess, að Hjólhýsaklúbbur Isl. hefur átt viðræður við Urval um hag- stæö kjör fyrir þá félaga klúbbs- ins, sem hug hafa á að ferðast með ferjunni. í viötali við Visi i gær gat nýkjörinn formaður klúbbsins, Einar Þ. Mathiesen, þess, að mjög margir félags- manna sýndu slikum ferðum áhuga. Með tilkomu bilaferjunnar gefst kjörið tækifæri til að fara i ferð um Norðurlöndin á eigin bil og með rúmið sitt og eldhúsáhöld i eftirdragi. Þannig sparast bæði hótelgjöld og stór hluti matar- kostnaðar. Samkvæmt upplýsingum Steins Lárussonar er fargjaldið fyrir einstakling til og frá Bergen frá 12 til 17 þúsund krónur. Fyrir bil- inn þarf að borga 6600 krónur og 3450 krónur fyrir hjólhýsi. — —ÞJM. Karpov strax í mót Nýi heimsmeistarinn Anatolij Karpov ætlar ekki að sitja með hendur I skauti. Bobby Fischer tefldi ekki á mótum, eftir að liann varð heimsmeistari, en Karpov boðar nú þátttöku I alþjóölegu skákmóti i Júgóslavíu i júni. Júgóslavneska fréttastofan Tanjug segir, að Karpov muni tefla á Vidmar minningarskák- mótinu svonefnda, sem haldið verður i Portoroz og Ljubljana 2.-22. júni i sumar. —HH Myndin sýnir, hvernig fólk i atvinnulifinu skiptist milli helztu atvinnugreina I nokkrum löndum. Með iðnaði er talinn byggingariðnaður og fisk- vinnsla. t þjónustu er innifalin verzlun og samgöngur, opinber þjónustaog fleira. Tölurnar eru „afrúnnaðar” og ekki alveg nákvæmar upp á brot úr prósentum, en tilgangurinn er að gefa til kynna I stórum drátt- um, hvar island stendur miðað við þessi lönd. Við landbúnað starfar hér á landi til dæmis ekki ósvipaður fjöldi að tiltölu og I Danmörku, flest rikin hafa tiltölulega fleiri við iðnað og þjónustu en við, og veldur þvi, að hér er eitthvað á sjötta prósent landsmanna starfandi við útgerð. Væru fiskveiöar teknar meö landbúnaði, sem oft er gert erlendis, yrði talan þar 16.0 fyrir tsland. Höndin á myndinni gefur til kynna að hlutur landbúnaðar minnkar stöðugt. HER RÍS SYSTRA- HEIMILI Þeir, sem hafa gert sér ferð I Garðahrepp til að skoða nýja DAS-húsiö við Furu- lund, hafa ef til vill veitt athygii óvenjulegri byggingu, sem er að rlsa skammt þar fyrir neðan. Það er systurnar I Landakoti, sem eru að láta byggja yfir sig systraheimiii. Hefur byggingaframkvæmdum miðað vel, og má búast viö, að systurnar flytji inn á þessu ári. Húsasmiðameistari er Ingólfur Guðmundsson og er byggingin 2190 fermetrar. Byggingin myndar lokaðan húsagarö I miöju. Garö- ar Halldórsson, arkitekt, teiknaði. Hús nunnanna stendur við götu, sem hefur hlotið nafnið Karlabraut. —ÞJM. — Ljósm. Bragi. Bílarail FÍB verður 24. maí Bilarall Félags islenzkra bif- reiðaeigenda — rally — verður haldiö 24. mai næstkomandi. Þetta er fyrsta opinbera keppn- in sinnan tegundar, sem haldin er á islandi. Rallið verður eingöngu á veg- ura, sem á eru mjög slæmir kaflar á leið þeirri, sem valin hefur verið. Keppnisleið verður haldið leyndri þar til skömmu fyrir brottför, en þá fá þátttak- endur leiðabók til að aka eftir. Rásmark og endamark verður viö hótel Loftleiðir. Vegalengdin er 154 kilómetrar og 145 metrar. Keppendur verða að fara aö öllu leyti eftir umferðarreglum, meðal annars halda sig við leyfðan hámarkshraða I hvl- vetna. Fylgzt verður mjög nákvæm- lega með þátttakendum allan timann og timatökur á ákveðn- um timastöðvum. Um 30 þátttakendur hafa látið skrá sig til keppni og kostar þátttakan 5 þúsund krónur, þegar stjórnendur fá leyfi til að láta auglýsingar sinar á bilana, en 20 þúsund krónur ella. t fyrra tilvikinu getur keppandi auglýst að hluta á bil sinum. Yfirdómarar i keppninni verða Henry Liddon, brezkur rallbilstjóri með mikla reynslu, Kjartan J. Jóhannsson, Árni Guðjónsson og Arinbjörn Kol- beinsson. Keppt verður i tveimur flokk- um, fólksbila og jeppa. t fólks- bílaflokki eru verðlaun kr. 50 þúsund og bikar, 30 þúsund og 15 þúsund og minnispeningur, en i jeppaflokki 30 þúsund og bikar, 20 þúsund og 10 þúsund og minn- ispeningur. —SHH Frðmdu bankarón — áður en bankinn tók til starfa Brotizt var inn i nýtt útibú Iðn- aðarbankans við Völvufell I Breiðholti i nótt eða gærkvöldi. Utibú þetta hefur þó ekki enn tek- ið til starfa og þvi fátt verðmætt að hafa. Nýlega var hafizt handa viö að innrétta húsnæði bankans og misstu unglingar I nágrenninu þar með eina af þeim nýbygging- um, sem þeir hafa hitzt I á kvöld- in. 1 innbrotinu i nótt hafði kross- viðsplata verið mölvuð úr glugga og tvöföld glerrúða, sem geymd hafði verið inni I útibúinu, verið brotin. Eyrnahlif, nokkru af nögl- um og öðru smádóti var stolið. —JB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.