Vísir - 25.04.1975, Blaðsíða 13

Vísir - 25.04.1975, Blaðsíða 13
Vísir. Föstudagur 25. apríl 1975. 13 KRAFTAVERK í LOURDES: I IW Lœknaðist ó þrem dögum af ólœkn- andi sjúkdómi gengið um göturnar og fariö með bömin min i skemmtigarðinn. Ég dvaldi svo mörg ár á sjúkrahús- um og kveið næsta degi, vegna þess að ég hefði enga von um að lifa nokkurn tima eðlilegu lifi. Sá, sem ekki hefur þjáðst, veit ekki hvað það er ólýsanleg gleði sam- fara þvi að geta aftur lifað eðli- legu lifi. Sumar konur hafa andstyggð á heimilisstörfum og öskra á börnin sin, þegar þau sóða út. Ég geri það ekki. Mér þykir vænt um aö sjá pjönkur barnanna minna liggja á við og dreif um húsið og vita, að ég get beygt mig eftir þeim.” Elisa segir, að fólk stöðvi hana oft á götunni til að fá að heyra furðulega sögu hennar. Hún hefur ekki á móti þvi. „Hver dagur er mér gjöf,” seg- ir hún. „Þegar maður hefur þjáðst mikið, er dásamlegt að endurheimta lifið.” Elfsa A.loi Vacarelli með börnin sin fjögur — sem hún átti aldrei að geta eignazt. f 10 ár þjáðist Elísa Aloi Vacaralli af háskalegum sjúk- dómi, sem tærði bein hennar og gerði það að verkum, að hún var ÖII i kaunum. Læknavisindin gerðu það, sem I þeirra valdi stóð, en ekkert kom að gangi. t örvæntingu sinni fór hún til kraftaverkalindanna i Lourdes. Þá gat hún ekki gengið, hafði há- an hita og var i gifsi, allt nema hendur og andlit. Innan fárra daga vár hún heil. Kraftaverk? Að minnsta kosti mátti spretta af henni gifsinu og hún gat haldið heil út i lifið á ný. Elisa Aloi Vacaralli er siðasta kraftaverkið, sem Vatfkanið hef- ur viðurkennt frá Lourdes. Bót meina sinna fékk hún árið 1958 en það tók Vatikanið sjö ár að sannfærast um, að þarna hefði orðið kraftaverk. Federico Alessandrini prófess- or, blaðafulltrúi Vatikansins, sagði, að Vatikanið færi mjög varlega i að viðurkenna krafta- verk. Staðfesting á þeim gæti tek- ið allt upp i mannsaldur. Elisa efaði aldrei sjálf, að guð hefði sjálfur gert á henni krafta- verk. „Vegna þess að ég var i gifsi og gat þess vegna ekki baðað mig I hinni helgu laug, fékk ég sprautur með vatni úr henni,” sagði hún. „Við 4. sprautuna fann ég til einkennilegrar hita- tilfinningar og ákafrar gleði. Ekkert getur jafnazt á við andartakið, þegar læknirinn tók af mér gifsið, sem ég haföi borið i nærri fimm ár. Þó ég hefði verið lömuð i mörg ár, voru vöðvarnir i fótunum heilir. Og þótt hægri fót- ur minn hefði verið fjórum þumlungum styttri, þegar ég kom til Lourdes, voru þeir báðir jafn- langir, þegar ég sneri þaðan. Ég var endurfædd við 27 ára aldur. Það var dýrðleg tilfinning. Læknirinn, Leonardo Zappala frá Messina, fylgdi Elísu til Lourdes. Hann hefur látið svo um mælt, að útilokað væri, að bati hennar stafaði af nokkurri þeirri læknismeðferð, sem mönnum væri kunn. Báðir foreldrar Elisu létust, þegar hún var ellefu ára gömul. Sex árum seinna veiktist hún af beinaberklum og átti i þeim veikindum i tiu ár, þar til þeim lauk með kraftaverki. „Þegar ég var 22ja ára”, sagði hún, „var ég öll i kaunum hægra megin og á vinstra fæti. Ég var skorin upp fimmtiu og fjórum sinnum, en ekkert stoðaði. Loks var ég sett i gifs, svo ekkert stóð út úr nema handleggirnir og höf- uðið. Sárin voru meðhöndluð gegnum þar til gerð op á gifsinu.” I júni 1957 fór Elisa fyrst til Lourdes. Sú ferð bar engan árangur. „En i júni næsta ár fór ég aftur, og á þriðja degi hætti að vætla úr sárum minum. Á fáein- um dögum varð ég alheilbrigð.” Nú er Elisa hamingjusöm fjög- urra barna móðir og eiginkona lögreglumanns i Messina á Sikil- ey. „Læknarnir sögðu mér að ég myndi aldrei eignast börn. En sjáið nú bara rollingana mina,” sagði Elisa og benti á barnahjörð- ina. „Mér finnst kannski mesta kraftaverkið að eiga f jölskyldu og fá að horfa á börnin sin vaxa úr grasi. Ég er afar þakklát fyrir hvers- dagslega hluti, svo sem að geta Félög með þjálfaö starfslið í þjónustu við þig Sjötíu sinnum íviku Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs i áætlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða i Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust. En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost. Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og 3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga meö langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar, Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á (slandi. 500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum okkar í 30 stórborgum erlendis. Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis. Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni, þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem stunda reglubundið flug, og fjölda hótela. Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi- legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo mætti verða. ^ÍUGfélac LOFTLEIBIR ISLAJVDS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.